Glóðafeykir - 01.11.1977, Page 38
36
GLOÐAFEYKIR
þegar skólahúsið var stækkað um helming. Um það leyti var Páll
Zóphoníasson skólastjóri, en hvarf frá því starfi á þeim árum og við tók
Steingrímur Steinþórsson, sem ekki þarf að kynna fyrir Skagfirðingum.
A Hólum kynntist ég m.a. vini mínum Vigfúsi Helgasyni kennara,
elskulegum manni. Yfirsmiður og eftirlitsmaður með byggingunni var Sig-
urður Sigurðsson úr Reykjavík, en tveir Akureyringar tóku verkið í akkorði.
Er lokið var byggingavinnunni á Hólum fór ég að Hvalnesi á Skaga
Gerði það fyrir þrábeiðni Sigurjóns Oslands, sem þar bjó þá. Byggði
fyrir hann 300 kinda fjárhús vesmr í Skagaheiði. Hafði komið þeirri
byggingu upp í ágúst um sumarið og taldi mig hafa gert með því talsvert
gagn á ekki lengri tíma.
Um þetta leyti urðu töluverð tímamót í lífi mínu. Eg hefði e.t.v.
snúið mér að búskap, ef gott jarðnæði hefði legið á lausu og þá jafnframt
reynt að sinna eitthvað smiðum, bæði fyrir sjálfan mig og aðra. En
stefnan varð nú önnur. Eftir að hafa lokið fjárhúsbyggingunni hjá Sigur-
jóni á Hvalnesi flutti ég til Sauðárkróks í ágúst um sumarið, og þar var
ég svo búsettur í 26 ár. Tók til að byrja með eitt herbergi á leigu og
bjó þar með yngsta barnið. Fólk bjó ákaflega þröngt á Króknum í þá
daga og var nægjusemin í þeim efnum með hreinum ólíkindum, en ekki
var kvartað.
Fyrsta verk mitt þegar til Sauðárkróks kom, var að taka að mér upp-
setningu á 1000 kjöttunnum fyrir Kaupfélagið, en þá var kjötið saltað
en ekki fryst. Tunnurnar þurfm að vera til fyrir haustið en vinnuplássið,
sem kaupfélagið hafði, lítið og því óhægt um vik við vinnuna Mér var
því um og ó að taka þetta að mér á svo smrtum tíma, en sr. Sigfús Jónsson
var þá kaupfélagsstjóri og lagði hann mjög fast að mér að gera þetta
fyrir sig. Sr. Sigfús var mikill afbragðsmaður og tel ég mér það mikla
gæfu, að hafa kynnst honum.
Ekki gat heitið að neitt væri um nýbyggingar húsa á Sauðárkróki um
þessar mundir. Ég réð mig því á bát hjá einum kunningja mínum er
slámrtíð var úti, og réri nokkra róðra.
A þessum árum var það töluvert tíðkað að fara á vertíð til Suður-
nesja eða Vestmannaeyja og varð úr, að við tókum okkur saman nokkrir
Króksarar og ákváðum að fara til Sandgerðis. Tókum okkur far með
Esjunni, rétt fyrir jólin. Auk mín voru þetta Jón Oddsson, Valdimar Péturs-
son, Hallgrímur Konráðsson, Abel Jónsson og e.t.v. einhverjir fleiri, þótt
ég muni það nú ekki í svipinn. Kaupið, sem okkur var greitt frá ára-
mótum til 11. maí, var kr. 625,- Auk fæðis og húsnæðis, en það höfðum
við frítt. Haustið eftir byrjaði Loftur Loftsson sinn reksmr í Sandgerði.
Bað hann mig að koma til sín sem frystihússtjóra og bauð 1600,- kr. í