Glóðafeykir - 01.11.1977, Síða 41
GLÓÐAFEYKIR
39
Mér kom nú í hug að panta mér trésmíðavélar og setja upp verkstæði.
Minntist ég á það við Jósep Stefánsson, sem ólmur vildi komast í félags-
skap um það. Varð það úr og rákum við trésmíðaverkstæði um hríð,
en svo komu atvinnuleysis- og kreppuárin og leiddu til þess, að bygginga-
vinna minnkaði verulega og þar með grundvöllur fyrir rekstri trésmíða-
verkstæðis. Sat þá mjög í mér í bili að flytja til Siglufjarðar, því að þar
voru atvinnuhorfur betri en á Króknum.
Þetta vissi Steindór heitinn Jónsson. Hann var þá að hugsa um að
koma upp frystihúsi á Króknum og stóð Eggert Jónsson frá Nautabúi á
bak við það. ,„Blessaður vertu ekki að rjúka til Siglufjarðar", sagði Stein-
dór, „komdu heldur til mín sem verkstjóri. Við höfum aldrei of mikið
af góðum mönnum hér á Króknum og ég vil ekki missa þá burtu ef
annað er hægt". Varð það svo úr, að ég fór til þeirra sem verkstjóri.
En þá stóð nú einmitt svo á, að ég var formaður Verkamannafélags-
ins og því var kannski ekki nema eðlilegt, að þessi ráðning min mætti
mótstöðu innan Sjálfstæðisflokksins. En þeir Steindór Jónsson og Ey-
steinn Bjarnason, sem einnig stóð að ráðningu minni í þetta starf, voru
miklir áhrifamenn innan Sjálfstæðisflokksins og þeir höfðu sitt mál fram.
Eg var svo verkstjóri hjá Steindóri í 5 ár. Mér líkaði ágætlega að vinna
hjá honum. Kannski átti hann það til að vera full fastheldinn á köflum,
að því er sumum fannst, en hann þurfti að vera það. Steindór var mjög
heilsteyptur maður. „Eg skal hugsa til þess", sagði hann gjarnan ef hann
var beðinn einhvers. En þessi orð af munni hans reyndust betri en loforð
sumra annarra. Um þetta get ég borið af ærnum kunnugleika því að
ég vann bæði í bygginganefnl og hafnarnefnd o. fl. og þekkti hann orðið
nokkuð vel. Steindóri kynntist ég annars fyrst á meðan ég var enn í sveit-
inni, þá var ég fláningsmaður hjá honum í slámrtíðinni. Þá vildi hann
gera mig að beyki hjá sér, en ég færðist undan og varð ekki úr. Steindór
hafði lært trésmíði hjá frænda mínum, Þorsteini Sigurðssyni, og hélt
mikið upp á hann. Kannski hef ég notið þess.
Upp úr þessu gerðist það, að ég tók að mér að sjá um síldarsöltun fyrir
Ingvar heitinn Guðjónsson, en hann tók þarna plan á leigu. Hafði það
eftirlit raunar á hendi jafnframt því sem ég vann hjá Steindóri, en þar
var ég aðeins á tímakaupi. Matsmaður hjá mér í síldinni var Guðný,
sem nú er kona mín. Jafnhliða þessum störfum greip ég svo öðru
hvoru í byggingavinnu. Arið 1936 byggði ég t.d. húsið Lindargöm
15 og síðan Skagfirðingabraut 25, en þar bjó ég seinusm ár mín á
Króknum.
Framhald síðar.
-mhg