Glóðafeykir - 01.11.1977, Side 47
GLOÐAFEYKIR
45
vikin og hjálpsöm við fátæka, orðvör og mild í dómum, hreinlynd og
hreinskiptin, gat verið þykkjuþung, ef henni þótti sem hallað væri réttu
máli eða harðir dómar felldir.
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR, fyrrum húsfr. á Skíðastöðum á Neðri-
byggð o. v., lézt þ. 17. sept. 1971.
Hún var fædd á Hvanneyri í Siglufirði 11. nóv. 1873, og því nál. 98
ára gömul, er hún andaðist. Foreldrar hennar
voru Jóhann Isak, síðast bóndi í Miklagarði
á Langholti, Jónssonar, bónda á Breiðstöðum
í Gönguskörðum, Jónssonar, og Sigríður
Magnúsdóttir, bónda á Þorgautsstöðum í Stíflu,
Þorgeirssonar, og konu hans Maríu Sigurðar-
dóttur. Var Jóhann Isak vinnum. á Dalabæ í
Ulfsdölum, er Guðrún dóttir hans fæddist, en
Sigríður móðir hennar vinnuk. á Hvanneyri.
Þau gictust tveim árum síðar.
A þriðja ári fór Guðrún með foreldrum
sínum að Vestara-Hólsgerði í Flókadal, þaðan
að Neðra-Haganesi 1877 og ólst þar upp til 15
ára aldurs. Þegar eftir fermingu réðst hún í vist til vandalausra og var í
vinnumennsku á ýmsum stöðum, síðast í Skarðsdal í Siglufirði, miklu
myndarheimili.
Rösklega tvímg að aldri gekk Guðrún að eiga Jóbann Björnsson, síðast
bónda í Kolgröf á Efribyggð, Gottskálkssonar, og konu hans Jóhönnu
Jóhannsdóttur, er síðar átti Björn bónda þar, Þorláksson. Reism þau
Jóhann bú í Litladalskoti (nú Laugardalur) í Dalsplássi 1893 og bjuggu
þar 2 ár, þá 1 ár á Krithóli á Neðribyggð, á Ipishóli á Langholti
1896—1915 og loks á Skíðastöðum á Neðribyggð 1915—1933, er þau
hjón slim samvismm. Eftir þar dvaldist Guðrún lengsmm með Maríu
dótmr sinni og manni hennar, Valdimar Jóhannessyni, er bjuggu í Gilkoti
(nú Steintún) á Neðribyggð, unz María andaðist 1. nóv. 1955. Skömmu
síðar fluttist Guðrún til Sauðárkr. og dvaldist þar til æviloka hjá Jóhönnu
dóttur sinni og eiginmanni hennar, Jóni Magnússyni.
Þau Guðrún og Jóhann eignuðust 3 dæmr: Jóhönnu, húsfr. á Sauðárkr.,
Margréti, húsfr. í Laugardal og Maríu, er húsfr. var í Gilkoti, en nú látin
sem fyrr segir.
Guðrúnu Jóhannsdótmr var margt vel gefið. Hún var myndarkona í sjón
og vel verki farin. Hún var kona vel kynnt og greiðasöm og kom hvarvetna