Glóðafeykir - 01.11.1977, Page 48
46
GLÓÐAFEYKIR
fram til góðs. Hún lifði langa ævi og eigi áfallalausa, en dugnaður hennar
og þrek, samfara öruggu trúnaðanrusti barg henni heilli og óskaddaðri yfir
allar torfærur.
EAÍIL GUNNLAUGSSON, vm. frá Daðastöðum á Reykjaströnd, lézt
þ. 24. nóv. 1971.
Hann var fæddur að Stóragerði í Oslandshlíð 23. júní 1914, sonur
Gunnlaugs bónda á Sjöundastöðum í Flókadal, Sigfússonar bónda í
Asgeirsbrekku o. v., Dagssonar, og Sigríðar Gísladóttur Asmundssonar.
Emil ólst upp á ýmsum stöðum austan Héraðsvatna, mun að mesm
hafa verið á vegum föður síns á æskuárum, eftir það í vist á nokkrum
bæjum í Blönduhlíð, síðast í Litladal hjá Jóhanni Jónssyni og Sesselju
Olafsdóttur, er þar bjuggu. Með þeim fluttist hann að Daðastöðum
árið 1947. I skjóli þeirra og barna þeirra dvaldi hann meðan þau bjuggu
á Daðastöðum, og til þeirra gat hann ávallt leitað ef einhvern vanda
bar að höndum. En er þau fluttu til Sauðárkróks gerðist hann vist-
maður á ellideild Sjúkrahúss Skagfirðinga á Sauðárkróki og þar dvaldi
hann þau ár er hann átti ólifuð en tók sér þó smndum ferð á hendur
til að heimsækja vini og kunn.'ngja og dvaldi hjá þeim um lengri eða
skemmri tíma.
„Emil var meðalmaður á hæð, þrekvaxinn, fremur stirðlegur í hreyf-
ingum, búlduleimr ásýndum. Hann var alla ævi vanheill, og bar útlit
hans og framganga öll þess nokkur merki. Hann kvæntist ekki né átti
börn, en nokkmm árum áður en hann dó eignaðist hann vinkonu, sem
hann kallaði unnusm sína; hét hún Þuríður Þorsteinsdóttir og var úr
Ólafsfirði. Hann ól þá von í brjósti að þau gætu, er fram liðu stundir,
stofnað sitt eigið heimili. En heilsa hans og aðstæður allar leyfðu eigi, að
sá draumur gæti rætst".
„Enda þótt lífið færi ekki alltaf mjúkum höndum um Emil, þá átti
það þó sínar björm hliðar. Hann varðveitti ávallt barnslundina, var alltaf
glaður og hress og eignaðist góða vini, er að honum hlúðu. Övildarmenn
átti hann enga". (St. M.).
SIGRÍÐUR RÖGNVALDSDÓTTIR, húsfr. í Réttarholti í Blönduhlíð,
lézt þ. 10. febrúar 1972.
Hún var fædd að Réttarholti 13. des. 1886 og ól þar aldur sinn allan.
Var faðir hennar Rögnvaldur sýslunefndarm. og bóndi í Réttarholti Björns-
son, síðast bónda í Eyhildarholti, þess er drukknaði í Héraðsvötnum (Suður-