Glóðafeykir - 01.11.1977, Page 55

Glóðafeykir - 01.11.1977, Page 55
GLOÐAFEYKIR 53 kona hans Margrét Guðmundsdóttir bónda í Kollugerði á Skagaströnd. Eiríkssonar, og konu hans Jóhönnu Guðmundsdóttur. Æskuárin dvaldist Olafur með foreldrum sínum bláfátækum í Hringey, en fór snemma að heiman til að vinna fyrir sér sem þau systkini öll, en þau voru 4, er upp komust, Hjörleifur elzmr, Marka-Leifi, nafnkunnur maður um margar sýslur fyrir frábæra þekkingu sína á fjármörkum og fyrirgreiðslu við menn og skepn- ur. Ólafur var snemma ötull til verka, harðskarpur og eftirsóttur til vinnu, var fram yfir tvímgs- aldur í vistum, m.a. hjá Olafi Breim á Alfgeirsvöllum. Hann reisti bú í Álftagerði 1906 og bjó þar óslitið til 1943, er dóttir hans og tengdasonur tóku við. Hann hóf búskap í illu árferði með tvær hendur tómar. En hann var ódeigur, kappsfullur og kröfuharður við sjálfan sig, en um leið búhirðu- maður, fyrirhyggjusamur, aflaði jafnan mikilla heyja, enda afburða hey- skaparmaður. Með frábærum dugnaði og atorku þeirra hjóna beggja tókst þeim að koma upp góðu búi og efnast sæmilega — og var þó í engu nokk- ur búrahátmr á hafður. Um Alftagerðisheimilið varð sannarlega eigi sagt, að það lægi „úr þjóðbraut þvert", heldur öllu frekar „á hvers manns vegi". Þar var hverjum manni tekið opnum örmum, þeim er að garði bar. Þar var mikil glaðværð og mikið sungið og heimilisbragur þvílíkur, að þar þótti öllum gott að koma; átm þar foreldrar og börn óskilið mál. Arið 1908 kvæntist Olafur Amfríði Halldórsdóttur smiðs á Syðsm- Grund í Blönduhlíð, bróður Indriða skálds og síra Gísla í Hvammi og síðar í Stafholti, Einarssonar í Krossanesi, og konu hans Sigríðar Jónas- dótrnr, mikilli myndarkonu og atgervis. Var hún alsystir Solveigar í Flugu- mýrarhvammi, sjá Glóðaf. 1967, 7. h. bls. 31- Böm þeirra em 4: Bjöm, söngstjóri og bóndi á Krithóli, Sigríður, áður húsfr. í Ytra-Vallholti, nú ekkja i Hveragerði, Sigrún húsfr. í Álftagerði og Herdís, húsfr. í Brenni- gerði í Borgarsveit. Dætur tvær eignaðist Olafur utan hjónabands, Olöfu, húsfr. á Siglufirði og Sesselju, húsfr. á Sauðárkr., ekkju Jóhanns á Daða- stöðum, sjá Glóðaf. 14. h. bls. 64. Ölafur missti konu sína 1953. Eftir það var hann hjá Sigrúnu dóttur stnni og eiginmanni hennar, Pétri bónda Sigfússyni í Álftagerði til æviloka. Olafur í Álftagerði var í minna meðallagi á vöxt, hvatlegur í hreyf- Arnfríður Halldórsdóttir og Ólafur Sigfússon

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.