Glóðafeykir - 01.11.1977, Page 56

Glóðafeykir - 01.11.1977, Page 56
54 GLOÐAFEYKIR ingum, mikill vaskleikamaður, djarffær og eitilharður. Hann var fríður maður ásýndum, fölleimr og grannleitur, glaðlegur og broshýr, augun hvöss og snör, en um leið hlý og glettnisleg. Hann var rakinn gleðimaður, hlaðinn miklu lífsf jöri og lífsþrótti, unni vífum og víni á gamla og góða hófsemdarvísu, söngelskur og söngvinn og frábær raddmaður, hafði háa og fagra tenórrödd. Hann var hverjum manni vinsælli, flestum mönnum meiri ljúflingur. Hann lifði lífinu af hjartans lyst — og gleymdi þó enga smnd skyldum sínum við lífið og samfélagið, við fjölskyldu sína og sjálfan sig. Hann hvarf af þessum heimi háaldraður með hreinan skjöld og hvers manns þökk, sérstæður maður og samferðamönnum minnilegur. SÖLVI SVEINSSON, f. bóndi í Valagerði á Skörðum, lézt þ. 25. apríl 1972. Fæddur var hann að Álftagerði í Seyluhreppi 12. sept. 1895, sonur Sveins bónda þar Sölvasonar, hreppstj. og bónda á Sjávarborg, Guðmundssonar bónda í Skarði, Björnssonar, og konu hans Elísabetar Stefáns- dótmr bónda í Vatnshlíð, Einarssonar bónda í Holtskoti, Jónssonar, en kona Stefáns og móðir Elísabetar var Lilja Jónsdóttir bónda í Kirkju- skarði á Laxárdal fremra. Sölvi, sem var yngstur fjögurra systkina, missti föður sinn 10 ára gamall. Skömmu áður hafði móðir hans fengið heilablæðingu, er síð- ar tók sig upp, svo að hún varð farlama og rúmföst upp þaðan. Eftir lát eiginmanns síns fluttist Elísabet, ásamt með börnum þeirra, til Þuríðar sysmr sinnar og eiginmanns hennar, Guðmundar bónda í Vatns- hlíð Sigurð'sonar. Var hún þar til æviloka, síðusm árin hjá Pétri bónda, sysmrsyni sínum, og Herdísi konu hans. Hún lézt árið 1925. Roskin kona, er Jóhanna hét, sá að verulegu leyti um uppeldi Sölva. Hálfþrímgur að aldri, árið 1920, reisti hann bú í Valagerði og bjó þar til 1923. Hvarf þá til annarra starfa um stundarsakir, en hóf afmr búskap á sömu jörð árið 1927 og bjó þar óslitið til 1954. Síðusm árin allmörg var hann á Víðimýri í skjóli Jóhanns bónda þar Gunnlaugssonar, farinn að heilsu og nær blindur að lokum. Sölvi hafði jafnan lítið bú, enda jörðin eigi stór. En búið var gagnsamt, hann fór ágæta vel með allar skepnur og gáfu þær honum góðan arð. Hann var hirðumaður mikill og þrifamaður í allri umgengni. Sölvi Sveinsson

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.