Glóðafeykir - 01.11.1977, Síða 57

Glóðafeykir - 01.11.1977, Síða 57
GLOÐAFEYKIR 55 Sölvi Sveinsson var í hærra lagi, grannvaxinn og grannholda; fölleitur, eigi yfirbragðsmikill á að sjá, en góðlegur og hlýr, tryggur í lund og einstakt prúðmenni. „Hann var frekar fáorður við fyrsm fundi, en rættist vel úr, skýr og skemmtilegur í tali, enda maðurinn vel greindur". (H. B.). Hann var óhlutdeilinn um annarra hagi og eigi umsvifamaður, vel skapi farinn og vandaður um alla hluti. Sölvi dó ókvænmr og barnlaus. ELÍSABET JÚLÍUSDÓTTIR, f. húsfr. í Efra-Ási í Hjaltadal, lézt þ. 6. maí 1972. Hún var fædd á Hreiðarsstöðum í Svarfaðardal 20. okt. 1895, dóttir Júlíusar bónda á Þverá í Urðasókn Magnús- sonar, Þorleifssonar, og konu hans Önnu Frið- riku Jónsdótmr, er gifmr var Rósu Sigfúsdótmr. Elísabet ólst að miklu leyti upp hjá þeim sæmdarhjónum síra Stefáni Kristinssyni og Sol- veigu Pémrsdótmr Eggerz á Völlum í Svarf- aðardal. Síðar var hún í vist hjá þeim vígslu- biskupshjónum á Akureyri, síra Geir og frú Sigríði. Eftir það hvarf hún vesmr hingað til Skagafjarðar og dvaldist á ýmsum stöðum áður en hún gifrist, m.a. á Hellulandi um stund og einnig hjá læknishjónunum í Hofsósi, Magnúsi Elísabet júlíusdóttir Jóhannssyni og frú Rannveigu Tómasdótmr. Nálægt áramótum 1916 og 1917 giftist hún Rósmundi Sveinssyni, sjá þátt um hann í Glóðafeyki 1972, 13. h. bls. 60. Þar er greint frá dvalar- stöðum og ábýlisjörðum þeirra hjóna svo og talin börn þeirra. Rósmundur féll frá 1963. „Elísabet Júlíusdóttir var glæsileg kona, grannvaxin á yngri árum en varð þéttvaxin, er aldur færðist yfir hana. Hamhleypa til starfa. Hún var mannkostakona, hrein og bein, án undirhyggju, hið mesta tryggða- tröll... Hún var glaðvær í skapi, óvílin og reyndi að líta björmm augum á lífið og framtíðina. Vel mun henni hafa komið, að Rósmundur maður hennar var geðgæðingur". (Kolb. Kr.). JÓN SIGURÐSSON, bóndi í Réttarholti í Blönduhlíð, lézt þ. 23. maí 1972. Fæddur var hann að Bási í Hörgárdal 26. júní 1890. Foreldrar: Sigurður bóndi í Sólheimum í Blönduhlíð Jónsson, bónda á Hallfríðarstöðum í

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.