Glóðafeykir - 01.11.1977, Blaðsíða 62
60
GLOÐAFEYKIR
GUÐJÓN JÓNSSON, f. bóndi og oddviti á Tunguhálsi í Tungusveit,
lézt þ. 30. júní 1972.
Hann var fæddur að Tunguhálsi 27. jan. 1902, sonur Jóns húsmanns þar
og síðar bónda í Héraðsdal, Einarssonar, og
konu hans Sigríðar Sigurðardótrur bóndi í
Svartádal fremri, sjá þátt um Jón í Glóðaf.
1967, 6. h. bls. 46.
Guðjón var þegar eftir fæðingu tekinn í fóst-
ur af þeim Tunguhálshjónum, Guðmundi Olafs-
syni og Guðrúnu Þorleifsdómir. Guðmundur
lézt 1908, en Guðrún giftist aftur 1910 og gekk
þá að eiga Svein Stefánsson, merkan fram-
kvæmdamann og mikinn búhöld. Guðjón ólst
upp á Tunguhálsi með fósturforeldrum sínum,
stundaði nám í Hólaskóla og lauk búfræðiprófi
1922. Vann svo að búi fósturforeldra sinna enn
um hríð.
Arið 1928 kvæntist Guðjónl'cilborgu Hjálmarsdóttur bónda á Breið
í Tungusveit og síðar í Saurbæ, Jónssonar, og konu hans Rósu Björns-
dóttur bónda á Grímsstöðum í Svartárdal, Jónssonar, alsysmr Helga,
föður Erlends, sjá Glóðaf. 1972, 13- h. bls. 68. Þau reistu bú á Tungu-
hálsi 1929 og bjuggu á móti fósturforeldrum Guðjóns til 1938, er
gömlu hjónin brugðu búi og fluttu til Akureyrar, eftir það á allri jörð-
inni til 1955, en létu þá af búskap og fóru byggðum til Sauðárkróks.
Guðjón var mikill starfsmaður og ágætur bóndi, hagsýnn í bezta lagi,
bjó stórbúi og gagnsömu að sama skapi, kunni vel til allrar fjárgæzlu
og varð sterkefnaður maður á bænda vísu. Eftir að til Sauðárkróks kom
stundaði hann byggingarvinnu o. fl., var og um hríð forstjóri Verzlunar-
félags Skagfirðinga; mun hafa hugsað sér að verja það fyrirtæki falli
og gæða þ?.ð nýju lífi, en það var raunar vonlaust verk.
Guðjón á Tunguhálsi gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sveit sína.
Hann var í hreppsnefnd 1944—1958 og oddviti sveitarstjórnar þann
tíma mestallan; sat lengi í skattanefnd og fleira mætti telja. Oll slík
störf annaðist hann af stakri alúð og trúmennsku, enda traustur maður
og reglusamur um alla hluti.
Sex eru börn þeirra Tunguhálshjóna, dóttir ein og fimm synir:
Valgeir, bóndi á Daufá á Neðribyggð, Auður, húsfr. á Akureyri, Garðar,
verkam. á Sauðárkr., Guðsteinn og Hjálmar, bændur á Tunguhálsi og
Stefán, yngstur, dvelst í foreldrahúsum.
Guðjón á Tunguhálsi var í hærra lagi en frekar grannvaxinn, vel á
Guðjón Jónsson