Glóðafeykir - 01.11.1977, Page 68

Glóðafeykir - 01.11.1977, Page 68
66 GLOÐAFEYKIR eftirlifandi eiginkonu sinni, Emilíu Lárusdóttur bónda 1 Skarði, Stefáns- sonar, og seinni konu hans Sigríðar Sveinsdóttur. Er Emilía alsystir Vil- helms á Sævarlandi, sjá Glóðaf. 1972, 13. h. bls. 6l. Börn þeirra hjóna eru 5: Sveinn, bús. í Keflavík suður, Ragnbeiður, ljósmóðir í Keflavík, Stefanía, húsfr. á Hvolsvelli, Jóhanna, hjúkrunarkona, húsfr. á Hawai- eyjum, Erla, yngst, hefur ávallt dvalið í foreldrahúsum. Aður hafði Brynj- ólfur eignazt son með Steinunni Hansen frá Sauðá: Björgvin, sem nú er sparisjóðsstjóri á Skagaströnd. Brynjólfur stundaði löngum verkamannavinnu á Sauðárkróki en rak þar jafnframt nokkurn búskap, enda mjög hneigður fyrir skepnur, einkurn kindur, og hafði af þeim yndi og arð. Hann var einlægur dýravinur og mikill fyrirgreiðslumaður um skepnur, var og kjörinn til að annast fjall- skilastjórn fyri Sauðkrækinga um árabil. Fleiri trúnaðarstörf voru honum falin, sat m.a. eitt kjörtímabil í bæjarstjórn Sauðárkr. Brynjólfur Danívalsson var meðalmaður á hæð, grannvaxinn, togin- leitur, móeygur, stillilegur á svip. Hann var greindur maður, hægur í fasi og hlédrægur, mikill trúleiksmaður. Hann var vinsæll maður, heill í skoðunum, einlægur og hreinskiptinn og vildi ávallt gera rétt. Síðustu árin tvö til þrjú var hann farinn að heilsu. SIGURÐUR P. JÓNSSON, kaupm. á Sauðárkr., lézt þ. 15. sept. 1972. Hann var fæddur á Sauðárkróki 10. okt. 1910, sonur Jóns verzlunarm. Daníelssonar, bónda á Skáldstöðum í Eyjafirði, Daníelssonar bónda í Gull- brekku, Daníelssonar, og konu hans Ingi- bjargar Þorgrímsdóttur. „Nýfæddur missti hann móður sína og var fyrsm misserin hjá Rósu föðursystur sinni og manni hennar Pétri Sighvatssyni, en fór síðan í fóstur til föðurbróður síns, Sigurgeirs Daníels- tonar kaupmanns og konu hans Jóhönnu Jóns- dóttur" (G. S.). Sigurður átti alla ævi heima á Sauðárkróki. Snemma sótti hann sjóinn og hafði ávallt síðan áhuga á útgerð og sjósókn. Hann stundaði nám við Verzlunarskóla íslands, gerðist kaup- maður og rak verzlunina „Drangey". Upp úr 1950 gerðist hann starfsmaður Sparisjóðs Sauðárkróks og síðar útibús Búnaðarbankans, mörg hin síðari ár gjaldkeri, og vann þar unz þrotinn var að starfsþreki. Jafnframt ráku þau hjónin verslunina, sem að vísu var Sig-urður P. Jónsson

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.