Glóðafeykir - 01.11.1977, Side 72
70
GLOÐAFEYKIR
Arni Jónsson var í hærra lagi, grannvaxinn, holdskarpur, íölur á yfirlit,
sviphlýr og geðfelldur. Hann var höfðingi 1 ltmd, hugulsamur og greið-
vikinn, vildi allt fyrir alla gera enda hverjum manni kær, þeim er honum
kynntist. Hann var listfengur, tilfinningamaður og viðkvæmur, unni öllu,
sem fagurt var, lifði lífi sínu í góðvild til allra, öðlingsmaður á hverja
grein.
JÓN JÓNSSON frá Hafsteinsstöðum, síðast bóndi á Gýgjarhóli, lézt þ.
5. nóv. 1972.
Hann var fæddur á Hafsteinsstöðum í Staðarhreppi 21. maí 1888, sonur
Jóns bónda þar, hreppstj. og dbrm., Jónssonar,
og konu hans Steinunnar Arnadóttur frá Yzta-
Mói. Var Jón albróðir Arna J. Hafstað sjá
Glf. 1975, 16. h. bls. 57.
Jón óx upp með foreldrum sínum á Haf-
steinsstöðum. Stundaði nám í Hólaskóla og lauk
búfræðiprófi 1908. Bóndi á Hafsteinsstöðum
1919—1940, þá í Steinholti hjá Vík til 1952
er þeir feðgar, Jón og Ingvar sonur hans, reistu
nýbýlið Gýgjarhól í landi Hafsteinsstaða, fluttu
þangað og bjuggu þar í félagi nokkra smnd
unz Jón hætti búsýslu fyrir allmörgum árum,
en dvaldist eftir það ásamt með konu sinni
hjá syni sínum og tengdadóttur á Gýgjarhóli; var Jón blindur síðustu
árin en lét eigi á sér festa, enda þrekmenni andlega jafnt sem líkamlega.
Jón á Gýgjarhóli var mikill atorkumaður, hraustmenni og vinnugarpur.
A efri árum átti hann við vanheilsu að stríða, þjáðist mjög af astma, svo
að stundum þótti tvísýnt hversu fara mundi. En er í milli varð og af
bráði, tók hann upp þráðinn að nýju við sín venjulegu bústörf eins og
ekkert hefði í skorizt".
Arið 1926 kvæntist Jón Olgu Sigurbjörgu Jónsdóttur bónda á Kimba-
stöðum í Borgarsveit, Jónssonar bónda í Merkigarði í Tungusveit, Jóns-
sonar, og bústýru hans Bjargar Sigurðardóttur bónda í Vatnskoti í
Hegranesi, Stefánssonar, og konu hans Þorbjargar Guðmundsdóttur. „Björg
var skörungskona, glæsileg og vel gefin". Hálfbróðir Sigurbjargar sam-
feðra var Pétur verkstjóri, sjá Glóðaf. 5. h. bls. 28. Synir þeirra hjóna
eru tveir: Jón Hafsteinn, kennari við Menntaskólann á Akureyri og
Ingvar Gýgjar, bóndi á Gýgjarhóli og byggingarfulltrúi..
Jón á Gýgjarhóli var mikill maður vexti, hár og þrekinn og beinn i
Jón Jónsson