Glóðafeykir - 01.11.1977, Blaðsíða 73
GLOÐAFEYKIR
71
baki, karlmenni með afburðum. Hann var þeldökkur í andliti, mikill á
yfirbragð, eigi smáfríður, en svipurinn gæddur gerðarþokka. Jón var
ágætlega greindur, áhugasamur um menn og málefni, sjálfstæður í skoðun-
um, hreinskilinn, einarður og hispurslaus, málafylgjumaður nokkur, vatt
sér undan opinberum störfum svo sem mátti. Hann var sterklundaður
og eigi vílmóður, drenglyndur, raungóður og greiðvikinn, merkur maður
fyrir margra hluta sakir.
LeiÖrétting
Þau mistök urðu í þættinum um Steingrím á Akri í síðasta (17.) hefti
Glóðafeykis, að börn hans eru þar talin þrjú. Niður féll nafn Erlu, húsfr.
á Sauðárkr., konu Gísla Óskarssonar frá Þúfum í Óslandshlið.