Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 14.12.1981, Blaðsíða 9

Vestfirska fréttablaðið - 14.12.1981, Blaðsíða 9
I vesttirska I rB.ETTA3i.ADlB Heimir Már: Hugsað á vorkvöldi Þú hefur víst heyrt þetta um það þegar fólk kemur og fer. Hvernig fólk kemur og snýst í kring um þig og hverfur svo. Þú þekkir víst þessa tilfinningu þegar svipum bregður fyrir í huga þér og þú fyllist einhverskonar saknaðartilfinningu. Þú þekkir víst tilfinninguna þegar gleðistraumar fara um þig og þig langar til að grípa öll augnablikin og njóta þeirra á ný. Svo ég þarf ekki að segja þér hvemig mér leið kvöldið sem minningin um þig gagntók mig. Heimir Már: í kyrrðinni I kyrrðinni og aðeins í kyrrðinni finnurðu andardrátt þinn og hjarta þitt slá finnurðu sorg þína og gleði. Aðeins þá geturðu fundið fyrir ást þinni fundið að þú lifir og bærist í hringiðunni. í kyrrðinni getur þú fundið fyrir feimnislegum strokum mjúkra handa þinna leika hlýlega um líkama þinn. Aðeins þá geturðu fundið þreytuna synda eftir æðunum og hvernig hvíldin vefur þig örmum drauma. í kyrrðinni heyrirðu öll þau agnarsmáu hljóð sem annars tifa hlédræg í hornum og skotum þú finnur lífið bærast og þú skynjar að þú ert hluti af þessu öllu. Heimir Már: Þó svo himnar gráti Þó svo himnar gráti og ekki liðin mannsæfi frá tilraununum á Nagasaki og Hirosima og ennþá séu börn steikt á teinum ennþá uppi ráðabrugg um frekari tortímingu þá er alltaf von von sem okkur ber skylda til að rækta með okkur svo einn góðan veðurdag megi friður blómstra um víða veröld. Heimir Már Pétursson er ungur Isfirðingur, sem hefur varið nokkru af tíma sínum til Ijóða- og smásagnagerðar. Heimir, sem er aðeins 19 ára gamall, hefur þegar sent frá sér tvær Ijóðabækur, „Sólin sest og sól- in kemur upp“ og „Dropi í hafið". Heimir Már: Þetta var einn af y v þessum dögum Þetta var einn af þessum dögum, þegar sálin var lítil og vanmáttartilfinningin náði völdum á honum. Hann sat í herberginu sínu, með ljúfa músik á fóninum, með kertaljós og reyndi að komast að niðurstöðu, reyndi að finna sér einhvern punkt í tilverunni. Hann langaði ekki til að gráta. Nei, kannski frekar til að öskra, þó ekki. Hann langaði til að hjúfra sig upp að einhverjum, fella nokkur tár, og heyra einhvern segja sér að lífið væri gott. Það rifjaðist upp fyrir honum, að þegar hann var yngri, þá gekk hann oft upp í hlíðina fyrir ofan bæinn, þegar svona lá á honum. Hann mundi eftir því, að hann hafði eitt sinn fundið dauðan fugl í fjallinu. Tekið hann og grafið á bak við stein. Hann gekk út úr herberginu, fór fram og klæddi sig í úlpuna. Þegar hann ætlaði að fara að ganga út, tók hann eftir litlum vendi af páskaliljum i vasa á stofuborðinu. Hann tók tvær liljur, eina rauða og eina gula. Svo gekk hann út. Veröldin var á sínum stað, það lá alltaf eins á henni. Hann gekk upp í hlíðina. Hvar var hann þessi steinn? Eftir að hafa ráfað um hlíðina í einhvern tíma, kom hann auga á lítinn strák. Varla meira en svona sjö-átta ára. Hann horfði á þennan strák, sem sat í grasinu, svipur hans lýsti sorg. Ljósa hárið hans bærðist eins og bifukolla í golunni, hann var gamaldags klæddur, hann hafði aldrei áður séð þennan litla strák. Gekk að honum og sagði: „Má ég setjast hjá þér?“ Strákurinn leit upp, brosti, augu hans sögðu já. Þeir sátu svo þarna báðir í grasinu, horfðu út í loftið, báðir ósköp litlir. „Hvað ætlar þú að gera við þessar liljur?“ spurði strákurinn. „Það var svo sem ekkert,“ sagði hann, „tók þær bara með, þeim leiddist svo heima, í stofunni.“ Strákurinn kinkaði kolli. „Hvað ert þú að gera hér?“ spurði hann strákinn. Strákurinn þagði. Hann sá að hendur stráksins voru moldugar, og það blæddi undan nöglunum. Við hlið hans var lítil moldarhrúga, lítil gröf. Strákurinn tók eftir því, að hann horfði á hrúguna. „Hann var svo lítill, hann hlýtur að hafa villst,“ sagði strákurinn og brosti. Hann stóð upp. Horfði á strákinn, hann var líka lítill, hafði hann villst? Hann lagði liljurnar, eina rauða og aðra gula, ofan á moldarhrúguna. „Þú spurðir hvað ég væri að gera hér,“ sagði strákurinn, „ég var að bíða eftir þér.“ Svo breyttist hann í lítinn fugl, sem flaug syngjandi í burtu. Samlagaðist hópi af fleiri fuglum, sem flugu í átt til sólar. Hann horfði á eftir þeim, þar til þeir hurfu. Hann gekk brosandi niður hlíðina. Fuglasöngurinn ómaði í eyrum hans, sagði honum að lífið væri gott.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.