Vestfirska fréttablaðið - 14.12.1981, Blaðsíða 43
vestfirska
[
1
rRETIABLADID
43
Eins og undanfarin ár er hér ætlunin að gera stutta grein fyrir
íþróttaviðburðum og íþróttastarfsemi á því ári sem er að líða. Til
upprifjunar er rétt að nefna að á ísafirði og i Bolungarvík eru
starfandi níu íþróttafélög innan íþróttabandalags ísfirðinga
(Í.B.Í.), en tvö sérráð hafa verið stofnuð um tvær stærstu
íþróttagreinarnar, knattspyrnu og skíðaiðkun. íþróttabandalag
ísfirðinga fer með sameiginleg mál íþróttafélaganna, en íþrótta-
nefnd ísafjarðarkaupstaðar fer með þau íþróttamál sem að
bæjarstjórn ísafjarðar snúa og er einskonar tengiliður bæjar-
stjórnar og íþróttahreyfingarinnar.
Frá hinni svokölluðu láglendisgöngu s.l. vetur. Hin gífurlega þátttaka sýndi að skíðaíþróttin er
óumdeilanlega almenningsíþrótt nr. eitt á ísafirði.
SKÍÐAÍÞRÓTT
Hér verður gerð nokkur grein
fyrir starfsemi Skíðaráðs Isafjarð-
ar s.l. vetur. Ráðið sá að mestu
um að reisa markhús, ásamt
nokkrum hjálpfúsum mönnum,
en það hús stórbætti aðstöðu
starfsmanna við mótahald í alpar
greinum. Þá skipulagði S.R.Í. æf-
ingaferð fyrir unglinga til Geilo í
Noregi, fararstjóri var Valur
Jónatansson og með honum fóru
20 unglingar. f Geilo var hópur-
inn í æfingabúðum og var þjálf-
aður undir leiðsögn norsks skíða-
þjálfara.
Fjáröflun var mikið starf, enda
jókst gjaldaliður um 150% á milli
ára, farnar voru nýjar og hefð-
bundnar leiðir í þeim efnum, þar
má nefna að seld voru auglýs-
ingaspjöld á lyftustaura, haldin
firmakeppni að venju og efnt var
til fyrirtækjaboðgöngu.
S.R.Í. stóð fyrir þremur nýjung-
um í mótahaldi, sem allar gáfust
mjög vel. Miðvikudagskvöldið 19.
mars var trimmganga frá Hnífs-
dal til ísafjarðar, veður var mjög
gott og þátttakan með afbrigðum
góð, því tæplega 80 manns gengu
þarna um kvöldið. Haldin var
tveggjabrautakeppni fyrir 13 ára
og eldri. Keppnin var útsláttar-
keppni og var skemmtileg og
spennandi. Þá var haldin fyrir-
tækjaboðganga sem áður segir og
tóku 18 3ja manna sveitir þátt í
henni. S.R.Í. hélt Bikarmót S.K.f.
í febrúar, en það mót er ávallt
nefnt Þorramót. Bikarmót ung-
linga í mars sem var mjög fjöl-
mennt, og í maí s.l. vor var haldið
hér annað Bikarmót fullorðinna í
alpagreinum, en mót þetta átti
upphaflega að vera á Húsavík um
miðjan vetur, en var frestað vegna
snjóleysis. fþróttafélögin í bænum
og fleiri sáu svo um framkvæmd
flestra héraðsmóta, sem voru 15
talsins.
ísfirðingar kepptu á 8 bikar-
mótum utan héraðs, þá áttum við
keppendur á Unglingameistara-
móti fslands í Reykjavík, Skíða-
móti íslands á Siglufirði og á
Andrésar-Andarleikunum á Ak-
ureyri en það mót er fyrir 7-12 ára
og er keppt í öllum greinum,
svigi, göngu, og stökki. Fyrir utan
æfingaferðina til Geilo dvöldust 2
fsfirðingar við æfingar og keppnir
í Noregi og Svíþjóð, Einar Ólafs-
son og Guðmundur Jóhannsson.
Hjá S.R.f. störfuðu þrír þjálfarar
s.l. vetur, Valur Jónatansson og
Sigrún Grímsdóttir í alpagreinum
og Þröstur Jóhannesson í göngu.
Mikil áhersla hefur verið lögð á
þjálfun og kennslu barna og ung-
linga undanfarin ár og er árang-
urinn að byrja að skila sér af því
starfi.
f heild má segja að árangur
hafi verið góður, í bikarmótum
S.K.Í. unnu fsfirðingar 16 sigra.
þar af varð Einar Ólafsson tvö-
faldur fslandsmeistari í göngu 17-
19 ára. Bikarmeistarar í alpa-
greinum í flokki 13-14 ára var
Atli Einarsson og Friðgeir Halld-
órsson í flokki 15-16 ára, en Bik-
armeistari er sá sem hefur saman-
lagðan besta árangur úr öllum
Bikarmótum S.R.f. hvers vetrar.
Þá var mjög athyglisverður árang-
ur margra ísfirðinga á Andrésar-
Andarleikunum.
í unglingastarfinu var hafin ný
leið, með stofnun foreldraráðs
S.R.Í., ráðið starfaði mikið og
stóð fyrir nokkrum tímatökum og
mótum fyrir börn, þá sáu foreldr-
ar um undirbúning og fararstjórn
á Andrésar-Andarleikana á Akur-
eyri. Foreldraráðið var skipað
ungu og dugmiklu fólki sem skil-
aði góðri vinnu og á starfsemin
vafalaust eftir að eflast með
reynslu þessa fólks af skíðamál-
um.
S.R.f. eignaðist video upptöku-
og sýningatæki sem kom s.l. vor
og var það reynt í síðustu mótum
og eru bundnar miklar vonir við
það, en tækið verður notað við
þjálfun skíðamanna.
Að loknum öllum mótum var
svo efnt til kaffiboðs sem skíðafé-
lagið sá um, í Sjálfstæðishúsinu,
þar sem verðlaun fyrir unnin af-
rek í mótum vetrarins voru veitt.
f S.R.Í. fyrir veturinn 1981-
1982 eru sömu menn og s.l. vetur,
en þeir eru: Hafsteinn Sigurðs-
son, Þröstur Jóhannesson, Jónas
Gunnlaugsson, Valur Jónatans-
son, Geir Sigurðsson, Óskar
Kárason og Einar Valur Kristj-
ánsson.
KNATTSPYRNA
Á þessu ári náðu ísfirskir knatt-
spyrnumenn þeim frábæra ár-
angri að vinna sér rétt til að leika
í 1. deild í knattspyrnu á næsta
ári, 1982. Það er vissulega góður
árangur, að við fsfirðingar skul-
um eiga eitt af 10 bestu knatt-
spyrnuliðum landsins.
Knattspyrnuráð ísafjarðar fer
með öll málefni og stjórnun er
lýtur að knattspyrnu hér á fsa-
firði. Það er því mikið atriði að
þar sé samstilltur og vinnusamur
hópur, og er það mál manna að
vel hafi til tekist að skipa samstillt
knattspyrnuráð, sem á þessu ári
hefur skilað frábæru starfi.
Knattspyrnuráð * fsafjarðar
skipa þessir 1981: Formaður Jón
Axel Steindórsson, gjaldkeri Pét-
ur Geir Helgason, ritari Ólafur
Helgi Ólafsson, varagjaldk. Guð-
björn Ingason, vararitari Þor-
steinn Geirsson, varaform. Hall-
dór Jónsson.
Unglingaráð: Formaður Guð-
mundur Níelsson, Stefán Högna-
son.
Snemma á þessu ári var ráðinn
þjálfari fyrir meistaraflokk okkar
(II deild). Að þessu sinni réðst
hingað til starfa Magnús Jóna-
tansson íþróttakennari og þjálfari
frá Reykjavík, Magnús hafði get-
ið sér gott orð sem þjálfari undan-
farin ár og náð mjög góðum ár-
angri með I. og II. deildar lið, það
var því almenn ánægja hér á
Ljósm. Hrafn Snorrason.
ísafirði með þessa ráðningu hjá
Knattspyrnuráði ísafjarðar.
Það kom fljótlega í ljós að
Magnús var mjög virtur og vin-
sæll þjálfari hér í bæ bæði hjá
leikmönnum og áhorfendum, og
menn þjöppuðust meir saman en
áður um að gera þann draum að
veruleika að spila í I. deild. Að
baki þeim árangri sem náðist í
sumar að komast í I. deild liggur
mikið starf margra manna sem
ber vissulega að þakka, þar ber að
nefna leikmenn og þjálfara er
lögðu mikið á sig, konur leik-
manna, knattspyrnuráð og fjöld-
an allan af áhugasömum bæjar-
búum. Það er óneitanlega hvatn-
ing fyrir okkar yngri knattspyrnu-
menn þegar svona vel gengur hjá
þeim eldri til að leggja sig fram
við æfingar og leiki, einnig er það
vissulega mikil auglýsing fyrir
ísafjörð að eiga I. deildar lið.
Það er því örugglega ósk allra
bæjarbúa, að vel gangi á næsta
ári, þó að við þurfum að eiga við
flest af bestu knattspyrnuliðum
landsins. Ákveðið er og gengið frá
ráðningu Magnúsar Jónatansson-
ar hingað næsta ár og er vonandi
að fsfirðingar standi einhuga að
baki Magnúsi og hans leikmönn-
um í baráttunni um áframhald-
andi tilveru í I. deild.
Unglingaráð sá um yngri flokk-
ana, gekk þeim nokkuð sæmilega
og þar má sjá marga mjög efni-
lega drengi, sem með góðri á-
stundun og samviskusemi við æf-
ingar verða góðir arftakar þeirra
er nú leika í I. deild.
Sú nýbreytni var tekin upp hjá
KRÍ á þessu ári að koma upp
Björn Helgason, Tryggvi Guðmundsson og Þröstur Jóhannesson tóku saman.