Vestfirska fréttablaðið - 14.12.1981, Blaðsíða 16
16
vestfirska
rHETTAELADID
Finnbogi Hermannsson tekur Einar Steindórsson tali í tilefni af
40 ára afmæli Hraðfrysti-
hússins hf. í Hnífsdal
Á þessu ári eru fjörutíu
ár síðan ákveðið var að
reisa hraðfrystihús í Hnífs-
dal. Það voru útgerðarmenn
í Hnífsdal sem beittu sér
fyrir þessu framtaki, en þeir
voru Páll Pálsson í Heima-
bæ, Hjörtur Guðmundsson,
Ingimar Finnbjörnsson og
Jóakim Pálsson. Þeim til að-
stoðar var Elías Ingimars-
son, en hann varð fyrsti
framkvæmdastjóri Hrað-
frystihússins h.f.. Sá sem
lengst hefur verið fram-
kvæmdastjóri í Hraðfrysti-
húsinu er hins vegar Einar
Steindórsson, alls í um það
bil 30 ár, og er því gagn-
kunnugur uppbyggingu
þess og allri sögu. í tilefni
þessara tímamóta er um-
fjöllun um fyrirtækið og
sögu þess í blaðinu, og
heimilda leitað til núlifandi
manna, og sem gerst geta
sagt söguna.
Það var þrútið loft og
þungur sjór, daginn sem
undirritaður heimsótti Ein-
ar Steindórsson upp á
Engjaveg og hríðarmugga
þegar leið á daginn. Við
byrjum á því að gefa Einari
orðið:
„Hraðfrystihúsið h.f. var
stofnað 19. janúar 1941 og
var stofnað af útgerðar-
mönnum. Eg hygg að
kveikjan að þessari nauðsyn-
legu framkvæmd hafi verið
sú, að veturinn 1940 ákváðu
tveir útgerðarmenn og mót-
orbátaformenn í Hnífsdal,
þeir Ingimar Finnbjörnsson
og Jóakim Pálsson, að gera
út báta sína frá Þingeyri við
Dýrafjörð. Bátar þessir voru
mótorbáturinn Mímir, sem
Ingimar átti, og Páll Páls-
son, sem Jóakim Pálsson
gerði út og var formaður á.
Um þessar mundir hafði
verið byggt hraðfrystihús á
Þingeyri að tilhlutan þeirra
að stofna hlutafélag til þess
að reka og byggja hraðfrysti-
hús í Hnífsdal. Á þessum
fundi var gengið frá stofn-
samningi þar sem meðal
annars væntanlegu fyrirtæki
Hraðfrystihúsið í Hnífsdal
Óskum viðskiptavinum
vorum gleðilegra jóla
og farsældar á kom-
andi ári.
Þökkum viðskiptin á
árinu, sem er að líða.
OfVSGSMNKJ ÍSyiMÐS
tirifasáatD á áaaifaataa
Proppébræðra, Antons og
Ólafs. Anton var fram-
kvæmdastjóri þessa nýja
hraðfrystihúss, en hjá hon-
um fengu þeir Jóakim og
Ingimar alla fyrirgreiðslu til
útgerðarinnar. Þessi nýmæli
og dugnaður fyrrgreindra
var gefið nafn og látið heita
Hraðfrystihúsið h.f.. Á fund
þennan hafði nokkuð mörg-
um aðilum verið boðið í
þeim tilgangi að þeir gerð-
ust hluthafar. Var ákveðið
að hlutafé skyldi vera 45
þúsund og gerðust allir
Páll Pálsson
útgerðarmanna reyndist af-
drifaríkur fyrir heimabyggð
þeirra þegar farið var að
undirbúa byggingu og rekst-
ur hraðfrystihússins í Hnífs-
dal. Hafa þeir efalaust, Ingi-
mar og Jóakim, búið yfir
ýmsu því er að þessum
framkvæmdum laut, þegar
til alvarlegra framkvæmda
kom með byggingu hússins.
Undirbúning að byggingu
hússins er að finna í fundar-
gerð dagsettri 3. janúar 1941
og fundarefni talið vera það
Hjörtur Guðmundsson
fundarmenn hluthafar. Þá
var á þessum sama fundi
heimilað að auka hlutaféð í
kr. 60 þúsund. Þá var einnig
ákveðið að bjóða öllum út-
gerðarmönnum í Hnífsdal
að leggja fram hlutafé, ekki
minna en kr. 3 þúsund. Þá
var og á þessum fyrsta fundi
kosin nefnd manna til að
gera uppkast að lögum fyrir
Hraðfrystihúsið h.f. og voru
til þess kosnir þeir Páll Páls-
son, Elías Ingimarsson og
Hjörtur Guðmundsson.