Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 14.12.1981, Blaðsíða 23

Vestfirska fréttablaðið - 14.12.1981, Blaðsíða 23
vestlirska FRETTABLAÐID 23 Eðvarð T. Jónsson: Tveir heilir árgangar fullorðinna V estfirðinga skólabekk sagt sínar skýringar, en til fróðleiks og samanburðar má nefna, að af rösklega 80 nemendum í Kvöldskólan- um í vetur voru innan við tíu karlmenn. Varla þýðir þetta að karlmennirnir séu áhugalausari um nám en konurnar. Hér á ísafirði er almennt unninn langur Korona gæðin standa alltaf uppúr, enda efni, snið og litir í takt við tímann. E/lviah. Quðjjinnssún /t.|. ^ími 'JT.GQ - Sci uncja’ioík Vestfirðingar eru námfúst fólk og hefur það sennilega komið betur fram á þessu ári en flest önnur. í haust hafa milli 120-130 manns frá ísafirði, Bolungarvík og Súðavík stundað nám af einhverju tagi hér á ísafirði. Glöggum mönnum telst til að tveir heilir aldursárgangar fullorðinna Isfirðinga hafi setið á skólabekk í haust. Flestir hafa sótt námskeið Kvöldskólans, eða hátt í 90 manns nú á haust- önninni, en í öldungadeild þeirri, sem stofnuð var við Menntaskólann á ísafirði í haust, hafa gengið 26 nemend- ur á ýmsum aldri. öldungadeildinni var hleypt af stokkun- um upp á von og óvon, ef svo mætti að orði komast. Menn voru á báðum áttum um hvort þessi tilraun myndi heppnast og hvernig best mætti skipuleggja áframhaldið, en reynslan hefur sýnt svo ekki verður um villst, að stofnun öldungadeildar á ísafirði átti fullan rétt á sér og var orðin tímabær. Segja má á þessu stigi málsins, að hér er á vissan hátt um einkaframtak nem- endanna sjálfra að ræða, því í haust hafa þeir sjálfir stað- ið undir öllum kostnaði við rekstur deildarinnar, en rík- ið hefur lagt til kennsluhús- næði í húsakynnum M.í. Námsgjöld í Öldungadeild- inni á ísafirði eru sennilega hin hæstu sem þekkjast á landinu — voru kr. 800 nú í haustbyrjun. Miklar vonir eru við það bundnar af hálfu nemenda, kennara og forsvarsmanna deildarinnar, að ísafjarðarbær muni hlaupa undir bagga á kom- andi ári og hjálpa til við áframhaldandi rekstur deildarinnar, sem verið hef- ur mikill menningarauki fyrir bæjarfélagið. Þess má geta, að í deildinni eru þrír nemendur frá Bolungarvík, sem ekki hafa sett fyrir sig illa færð og stórviðri í um- hleypingunum í vetur til að komast í skólann. Þær greinar, sem kenndar hafa verið í haust, eru enska, danska, stærðfræði, íslenska og vélritun, en í byrjun næsta árs mun vélrit- unin falla niður og byrjað verður á nýrri námsgrein, væntanlega efnafræði. Þegar þetta er ritað standa yfir haustannapróf í Öldunga- deildinni, sem og í Mennta- skólanum sjálfum, og bendir allt til þess að heildarútkom- an úr deildinni verði góð. Það vekur athygli í sam- bandi við öldungadeildina, að yflrgnæfandi fjöldi nem- enda eru konur, en karl- menn í miklum minnihluta, þrír talsins. Þetta á sér sjálf- Nemendurnfr þrír úr Bolungarvík, þær Sigríður Símonardóttir, Guðlaug Elíasdóttir og Kristín Gunnarsdóttir. vinnudagur og menn eru yf- irleitt ekki til stórræðanna að honum loknum, en þó ber þess að geta, að í Kvöld- skólanum hafa setið konur, sem unnið hafa fulla vinnu í frystihúsum eða á skrifstof- um. Það er sennilega með námið eins og maðurinn sagði um pólitíkina: Vilji er allt sem þarf. f tilefni þess að fyrsta önn Öldungadeildarinnar á ísa- firði er senn á enda, höfðum við á Vestfirska tal af nokkr- um nemendum í deildinni og báðum þá að segja les- endum blaðsins í stuttu máli frá reynslu sinni af skóla- við erum bara ánægðar með þetta og finnst gaman í skól- anum. Þetta er eins og að upplifa æskuna upp á nýtt. Heimanámið er ansi mikið og helgarnar fara í þetta eins og þær leggja sig, en við erum svo heppnar, að eigin- menn okkar hafa góðan skilning á þessu og fólk al- mennt. Vinum og kunningj- um finnst þetta sniðugt. Það fylgjast allir vel með okkur og spyrja heilmikið. Það er áberandi hvað allir eru já- kvæðir gagnvart þessu. Við stefnum náttúulega allar að stúdentsprófi, hvað annað? En hvað síðan tekur Frá Haustannaprófum í öldungadeildinni. náminu í vetur. Viðtölin fara hér á eftir. Bolvíkingar í Öldunga- deildinni eru þær Sigríður Símonardóttir Guðlaug Elí- asdóttir og Kristín Gunn- arsdóttir. Þær voru ný- komnar úr stærðfræðiprófi, þegar tíðindamaður Vest- firska náði tali af þeim. Þær stöllur eru allar heimavinn- andi húsmæður um þessar mundir. Sigríður á þrjú börn á aldrinum 11-16 ára Kristín tvö, 8 og 4 ára, en Guðlaug hefur óumdeilan- lega vinningin. Hún á fjög- ur börn á aldrinum 1 -9 ára. -Það eru geysileg við- brigði að setjast svona í skóla eftir 10-20 ára hlé, segja þær stöllur okkur. En við - það má hamingjan vita. Við hugsum bara þessi fjögur ár fram í tímann. Það hefur gengið all- þokkalega að komast á milli ísafjarðar og Bolungarvíkur í haust þrátt fyrir slæma færð oft á tíðum. Við höfum bara tvisvar sinnum orðið veðurtepptar í Bolungarvík. Við skiptumst á að keyra, þannig að hver okkar tekur eina viku í senn. Það er auðveldara þannig og mað- ur finnur ekki svo mjög fyrir því. Við erum búnar að sækja um dreifbýlisstykrinn svonefnda til að hafa eitt- hvað upp í bensínkostnað- inn. Umsóknarfrestur rann út 15.nóv. en við höfum ekk- ert svar fengið ennþá. Við vonum bara það besta. Okk- ur finnst sjálfsagt, að ríki og bæjarfélögin styðji þetta eft- ir föngum. Það er augljóst mál, að þetta er framtíðin. Svava Oddný Ásgeirs- dóttir er heimavinnandi húsmóðir, tækniteiknari að mennt og hefur í haust kennt tækniteiknun við Iðn- skólann á ísafirði. Hún er tveggja barna móðir. Við spurðum hana hvað hefði valdið því að hún fór í Öld- ungadeildarnám. —Mér fannst þetta alltaf áfangi, sem ég ætti eftir að taka, segir Svava. Stúdents- próf er í sjálfu sér ekkert keppikefli, en það er ljóst, að það er lykillinn að öllu framhaldsnámi nú á dögum. —Mér finnst skólinn vera skemmtilegur og andinn góður, heldur Svava áfram. Kennararnir eru góðir nema hvað það er misjafnt hvað þeir átta sig á því að það er fullorðið fólk, sem þeir eru að kenna, en ekki börn. Við erum kröfuhörð og viljum fá Framhald á hls. 25

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.