Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 14.12.1981, Blaðsíða 33

Vestfirska fréttablaðið - 14.12.1981, Blaðsíða 33
vestfirska I FRETTABLAEIÐ 33 í helgum ritum stendur einhvers staðar, að vegir drott- ins séu órannsakanlegir og án þess að stilla því upp sem beinlínis hliðstæðu þá virðist nokkuð líkt á komið með lífshlaupi Ragnars H. Ragnar, tónlistarskólastjóra á ísa- firði. Ekki verður betur séð en það sé órannsakanlegt, þegar maður úti á fslandi hringir óforvarandis vestur til Amríku og biður hann að koma norður á Isafjörð að kenna tónmennt. Ragnar H. gleymir að spyrja hvort það sé hljóðfæri, hvað þá heldur hann spyrji um skólahús og segist ætla að drífa sig. Síðan eru rúmlega þrjátíu ár, og síðla kvölds í desember, þegar rokan stendur beint af norðurpólnum situr Ragnar ásamt blaðamanni í borðstofunni hjá sér og Sigga er í kringum þá og kyndir undir frekar en hitt. „Þegar ég er drengur voru nær engir skólar á ís- landi fyrir almenning. Það var farandkennsla í sveitum og með mestum erfiðismun- um, og mér dettur í hug, þegar ég kom hérna 1948, þá gekk ég einmitt niður að höfninni með Ásberg Sig- urðssyni sem var mikill vin- ur minn, og var þá framar- lega í hópi framkvæmda- manna. „Líttu hérna eftir höfninni,“ segir hann, „þessi mannvirki hérna eru miklu meira virði og stórkostlegri en allt sem gert hafði verið með mannshöndinni á ís- landi til 1874, þegar þeir fengu stjórnarskrána. Ekki bara það, við höfum gert þetta sjálfír. Við göngum ekki um vælandi og skæl- andi, biðjandi um ölmusu um allan heim af því að við séum svo fátækir og smáir. Við höfum tekið til höndun- um og við höfum gert þetta allt upp á eigin spýtur. Veg- irnir, brýrnar, skipin, hafn- irnar, skólarnir, íþróttavell- irnir, listasöfnin, leikhúsin, allt þetta höfum við gert sjálfír án þess að þurfa að ganga um betlandi eins og nú gera hinar svokölluðu vanþróuðu þjóðir. Og það er manndómur sem ég vona að íslendingar missi aldrei.“ „En ég verð náttúrulega að segja eins og aðrir og allir sjá, að manni liggur við ör- væntingu núna yfir sund- rungunni í þjóðlífinu. Ég man þá tíð, þegar ekki var nein verkalýðshreyfíng og ég man eftir Jónasi frá Hriflu og ég var áratugavinur Ól- afs Friðrikssonar og margra fleiri svona manna. Og ég man eftir, þegar verið var að stofna verkalýðssamtök og veitti ekki af. Þau voru stofnuð til að bæta efnahag og vellíðan allra sem hlut áttu að máli. Þá datt engum í hug að verkalýðshreyfingin yrði þannig, að verkalýðsfél- ög færu að berjast hvert á móti öðru. Nú er það orðið okkar mesta mein.“ Eins og að framan sést er það þroskaskeið þjóðar sem er uppkveikjan í umræðunni og blaðamanni finnst tími til kominn að skjóta inn spurningu sem margir hafa spurt og Ragnar H. Ragnar er spurður um skýringu á öllum þeim fjölda snillinga sem nú eru að skila sér utan úr heimi og höfðu veganesti frá Tónlistarskóla ísafjarðar. „Ég vissi það áður en ég kom til íslands, að það myndu engir vera jafn mús- íkalskir af þeim þjóðum sem ég þekki og íslendingar.“ Hvernig vissirðu það? „Ég kenndi svo mörgum. Og það voru tvær þjóðir sem báru af bæði hjá mér og mörgum öðrum kennurum til dæmis í Winnipeg, það voru Gyðingar og íslending- ar, bæði í músík og annari menntun yfirleitt. íslendingar eru ekki nema brot af þessari stóru borg, en ég þekkti persónulega nöfn- in á hér um bil fimmtíu tónlistarkennurum, sem voru af íslenskum ættum, það er fágætt alveg. Ég vissi því, að það væri alveg sama hvar ég settist að á íslandi, ég myndi finna músíkalskt fólk. Ég hafði ekki komið nema tvisvar til ísafjarðar, snöggvast þegar ég var að koma úr síld 1920 og í eitt annað skipti. Ég vissi ekkert um bæinn, að kalla, nema af afspurn. Ég var bara sann- færður um það, að ef vilji væri fyrir hendi þá myndi vera hægt að kenna hér mjög vel eins og annars stað- ar á íslandi. En það hefur kannske gengið öllum von- um framar.“ Ragnar H. Ragnar, skólastjóri. landi. Ég kom því líka til leiðar að börn fóru að læra fimm, sex og sjö ára gömul. Og eins og ég sagði áðan þá er hér á ísafirði harðduglegt, og þangað til þau ljúka skól- anum, hér heima hjá mér á hverjum sunnudegi og opin- berlega þrisvar á ári. Þetta er eitt af grundvallaratrið- eru margir einstaklingar sem ég er búinn að kenna, ég er búinn að fá geysilega reynslu. Ég er að miklu leyti sjálfmenntaður bæði í tón- Það er aginn og að tendra þann vilj a og ást á tónlist- inni, sem nauðsynlegt er... Ragnar H. Ragnar, skólastjóri í viðtali við Finnboga Hermannsson ÉG REYNI AÐ GEFA ÞEIM ÖLLUM SAMAN TÆKIFÆRI Þú hefur eiginlega ekki svarað spurningunni ennþá eða gefið fullnægjandi skýr- ingu. „Ég hef að vissu leyti sér- stakar aðferðir við kennsl- una en kannske er það fyrst og fremst það, að mér þykir einlæglega vænt um mína nemendur og ég læt einskis ófreistað til að hjálpa þeim og miðla þeim af kunnáttu minni, auk þess að ég kom með nýjar bækur og aðferðir sem voru lítið þekktar á Is- gáfað og músíkalskt fólk. Og það sem skiptir miklu máli, það er aginn og að tendra þann vilja og ást á tónlist- inni sem er nauðsynleg til að komast áfram í músíkinni og nauðsynleg til að verða snill- ingur. Ég veit, að það verð- ur ekki nema visst brot af nemendum okkar, hér við skólann eða annars staðar, sem tekur tónlist upp sem atvinnu, og sem verður mjög fært, en ég reyni að gefa þeim öllum saman tækifæri. Þar á meðal með því að kenna þeim að leika opinberlega allt frá byrjun unum sem þessi skóli byggist á og ein af ástæðunum fyrir því að hér hefur gengið vel. En það krefst mikillar elju og mikillar sjálfsafneitunar, en kennarar skólans hafa haft yfir þessum eiginleikum að búa.“ „Það lítur kannske út sem sjálshól, en ein af ástæðun- um fyrir því hve vel hefur gengið, er einnig það, að ég var búinn að kenna áratugi á píanó og fást við kórstjórn áður en ég kom til íslands, þetta eru að verða 57 ár síðan ég byrjaði að kenna. Það er langur tími og það list og öðru. Ég hafði kynni af mörgum listamönnum og öðrum andans mönnum í Winnipeg og þau kynni urðu meðal annars til þess að vekja hjá mér þessa fróð- leiksþrá. Og það hefur aldr- ei liðið sá dagur ævi minnar, að ég hafi ekkí reynt að afla mér frekari fróðleiks í tónlist sem öðru.“ Þegar Ragnar H. Ragnar kemur til ísafjarðar 1948 á Tónlistarskólinn í ekkert hús að venda með sína kennslu,. og það er nokkurn veginn séð fyrir að næsta vor eftir

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.