Vestfirska fréttablaðið - 14.12.1981, Side 25
vestfirska
rRETTABlADIfl
að ræða það sjálf hvað við
erum að meðtaka og hvert
stefnir.
Skipulagið á deildinni var
frekar óljóst í fyrstu. Fólk
vildi fá að vita með hvaða
hraða það gæti tekið þetta
nám, en við því fengust eng-
in skýr svör. Hitt er ljóst, að
þetta er allt á frumstigi og
við erum þarna nokkurskon-
ar tilraunadýr, eins og eðli-
legt er þegar nýr skóli tekur
til starfa.
Ég vinn lítið með þessu
námi — ég er aðallega hús-
móðir og læt hverjum degi
nægja sína þjáningu. Eigin-
maðurinn hefur verið mjög
jákvæður gagnvart setu
minni í Öldungadeildinni
og stutt mig með ráðum og
dáð, annars væri þetta auð-
vitað ekki hægt. Börnunum
finnst líka dálítið spennandi
að hafa mömmu í skóla. En
vinir mínir og kunningjar
spyrja bara hvernig ég
nenni þessu.
Heimavinnan er
talsvert mikil og kúnstin er
sú að kunna að skipuleggja
tíma sinn. Þegar maður fer í
svona nám á „gamalsaldri“,
er maður kröfuharðari við
sjálfan sig. Það nægir ekki
bara að vinna heimaverk-
efnin og gleyma svo að skól-
inn sé til. Hvað við tekur
þesar þessu er öllu lokið veit
ég ekki — ég hugsa ekki svo
langt fram í tímann.
Ég vil gjarnan geta þess,
að mér finnst það litið rétt-
læti, að við hér á ísafirði
skulum ekki sitja við sama
borð og öldungadeildarnem-
endur annars staðar á land-
inu. Við borgum hæstu
námsgjöld sem þekkjast í
öldungadeildum á fslandi
og við vonum það og treyst-
um því að bæjarfélagið komi
til skjalanna og styðji mynd-
arlega við þessa nýjung í
menntunarmálum í bænum,
svo deildin þurfi ekki að
leggja upp laupana vegna
peningaleysis.
Jón Ellert Jónsson er vél-
smiður að atvinnu og starf-
ar hjá Vélsmiðju Sigurleifs
Jóhannssonar á ísafirði.
Hann er gagnfræðingur og
stundaði síðast nám í tækni-
teiknun við Iðnskólann á
Isafirði. Jón Ellert er bú-
settur í Hnífsdal. Við spurð-
um hann fyrst hvernig hon-
um hefði þótt að setjast aft-
ur á skólabekk.
—Það voru að sjálfsögðu
mjög mikil viðbrigði að
byrja aftur í skóla. Venju-
lega hef ég unnið til kl. 7
alla virka daga og iðulega
laugardaga líka, en námið
er stíft og kröfurnar miklar
þannig að það veitir ekkert
af því að nota alla helgina
til námsins. Núna vinn ég
bara til kl. 5 á daginn og
nota það sem eftir er dagsins
til að læra, þangað til skól-
inn byrjar. Mér hefur líkað
þetta nám mjög vel, andinn
í deildinni er ágætur —
menn eru þarna til að læra
og það hefur sitt að segja.
Viðvíkjandi náminu eru þar
ekki á ferðinni nein sérstök
vandamál hvað sjálfan mig
varðar, nema hvað bók-
menntagreiningin hefur vaf-
ist dálítið fyrir mér.
—Mig hefur lengi langað
til að takast á við þetta nám
og ég stefni auðvitað að stú-
dentsprófi, en það er ekkert
ákveðið með framhaldsnám
ennþá. Hugsanlega held ég
áfram í einhverju tækni-
námi. Val á framhaldsbraut
fer allt eftir því hvernig ég
kem út úr stærðfræðinni i
vor.
—Heimavinnan er mikil
og tekur frá manni nánast
allan frítíma manns og það
mæðir óneitanlega mjög á
konunni, en hún hefur stutt
mig vel og dyggilega. Fyrst í
stað virkaði þessi Öldunga-
deild á mig eins og hús-
mæðraskóli — þarna voru
konur í miklum meirihluta
— en maður hefur vanist
því núna að vera í minni-
hluta. Ég held, að skipulagið
á deildinni geti varla verið
öðruvísi en það er miðað við
allar aðstæður. Ég er ekki
hlynntur því að bæta miklu
við þetta nám eftir áramót-
in, en ég er alveg sáttur við
að byrja á efnafræði, eins og
mér hefur skilist að standi
til. Sennilega fer þá meiri
tími í hana.
Hvað námskostnaðinn
varðar, þá finnst mér óneit-
anlega eðlilegt að ríki og
bær hlaupi að einhverju
leyti undir bagga, eins og
gert er annars staðar, því
hagnaðurinn er þeirra líka,
þegar fram í sækir, sagði Jón
Ellert að lokum.
Hildigunnur Högnadóttir
á 3 börn á aldrinum 5-11
ára, en auk þess sem hún er
húsmóðir í fullu starfi vinn-
ur hún úti hálfan daginn í
verzlun. Hún segir okkur,
að hún hafi ekki minnkað
við sig vinnuna þrátt fyrir
skólagönguna. Ég tók lands-
próf frá Núpi 1967 segir
Hildigunnur en þá var eng-
inn menntaskóli á Isafirði
og ég hafði engan áhuga á
að fara suður. Ég sótti tvis-
var um inngöngu í Sam-
vinnuskólann án árangurs
Svava Oddný
Ásgeirsdóttir
og þá sneri ég mér bara að
öðru.
Maður verður auðvitað
að byrja á því að læra að
læra og skipuleggja tíma
sinn eftir svona langt hlé, en
námið hefur í sjálfu sér ekki
valdið mér neinum sérstök-
um erfiðleikum. Þetta geng-
ur ósköp svipað og hér áður
fyrr, nema hvað ég hef náð
meira valdi á tungumálun-
um. Þar bý ég að hag-
kvæmu heimanámi: lestri
danska og enskra bóka.
Stærðfræðin hefur hinsvegar
alltaf verið mín veika hlið.
Mér finnst gott að vera í
Öldungadeildinni. Þarna er
skemmtilegt fólk, sem er að
glíma við það sama og mað-
ur sjálfur. Flest eru þetta
húsmæður með börn eins og
ég. En það er alveg ljóst, að
ég hefði aldrei getað þetta,
hefði ég ekki haft stuðning
mannsins míns, sem hvatti
mig reyndar í byrjun til að
fara út í þetta. Börnin eru
afskaplega ánægð með þetta
líka og keppast við að lána
mér strokleður og blýanta.
Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á tungumálum og
gæti vel hugsað mér að fara
út í framhaldsnám í þeim,
sérstaklega íslensku og
ensku. En ég fór ekki út í
þetta nám með eitthvert
einkunnakapphlaup í huga,
heldur til að auðga sjálfa
mig. Maður verður kannske
megnugri að hjálpa sínum
eigin börnum, þegar þau
stækka.
Væntanlega fáum við
Öldungardeildarnemendur
Jón Ellert
Jónsson
á ísafirði sömu fyrirgreiðslu
og stuðning frá hinu opin-
bera og aðrar slíkar deildir á
landinu. Okkur er sagt að
það eigi allir jafnan rétt til
náms. Ég trúi ekki öðru en
það verði komið á móts við
deildina í þessum efnum.
25
Hildigunnur Lóa
Högnadóttir
Hvað skipulagið á deild-
inni varðar þá tel ég að það
sé nokkuð gott og ég vona
að það verði grundvöllur til
að reka hana áfram og hún
eigi langa lífdaga fyrir
höndum.
Bolungarvíkur-
kaupstaður
sendir bestu óskir um gleðilega
jóla- og nýárshátíð og þakkar
árið, sem er að líða.
Bæjarstjórinn í Bolungarvík.
IÐNSKÓLI
ISAFJARÐAR
INNRITUN
Innritun í 2. áfanga Iðnskóla stend-
ur yfir. Innritun fer fram í sskólanum
til 18. þ.m. og í símum 4215/3815
milli kl. 9-12 og 14-16.
SKÓLASTJÓRI
r Oskum 1
viðskiptavimm okkar^ oglandsmönnum m í
öllum ™ gleðilegmr hátíðar W
VELTIR HF