Vestfirska fréttablaðið - 14.12.1981, Síða 39
vestfirska
1
FRETTABLADIS
39
söngvarans í Brekkukots-
annál?“
„Það getur ekki verið, því að
ég var alltaf að syngja fyrir
Reykvíkinga, en svo vitlaus
var Garðar Hólm aldrei.“
Og svo sagði hann einnig:
„Veistu það, það var mitt
stóra ólán að lenda til
Kaupmannahafnar að læra
söng, ég náði mér aldrei eftir
það.“ „Hann sagði að þeir
hefðu farið með röddina í
sér og þeim suður í löndum
hefði aldrei tekist að laga
það. Þá var hann orðinn
það gamall og hættur að
syngja, að hann gat sagt
þetta, og það var nokkrum
mánuðum áður en hann dó,
hann dó um veturinn. Hann
er ógleymanlegur og ein
bóka hans, Lífið og ég, er
ein skemmtilegasta lýsing á
Reykjavík um aldamótin
sem ég hef lesið. En það er
erfitt fyrir listamenn að
komast áfram á þeim tímum
sem Eggert og fleiri menn
voru að berjast til mennta í
list sinni. Stefán íslandi
komst það sem hann komst
meðal annars af því að á-
byrgir menn kostuðu hann
til mennta og hann segir frá
því. Thórsararnir tóku hann
að sér og hann fékk regluleg-
ar greiðslur út og þurfti
aldrei að hafa af því áhyggj-
ur, meðan hann var að læra.
Slíkt bjuggu hvorki Skag-
field eða Eggert við á sínum
námsárum. Við skulum líka
hugsa okkur hve íslensku
málararnir áttu erfitt upp-
dráttar, Kjarval, Ásgrímur
og Jón Stefánsson svo ein-
hverjir séu nefndir, þeir
voru ekki metnir fyrr en þeir
voru komnir á miðjan aldur
og áttu í ákaflega miklu
basli að komast áfram.“
Tíðkaðist það, að íslenskir
tónlistarmenn hefðu kon-
serta fyrir vestan?
„Margir söngvarar komu,
en þeir voru ekki allir góðir,
en ég vil minnast á Maríu
Markan, hún gerði storm-
andi lukku, enda stórkostleg
söngkona. Arthur Benjamin,
eitt þekktasta tónskáld
Breta á sinni tíð, var undir-
leikari hjá Maríu Markan í
Vancouver, en ég hitti hann
í Winnipeg og hann sagði
þetta við mig um Maríu
Markan: „María Markan er
einhver besta söngkona ver-
aldarinnar, aðeins sambæri-
leg við Kirsten Flagstad.“
„Þetta er maður, sem var
heimsþekktur, enda var
María góð. Svo fór hún til
New-York, hún kom fram í
Figaro á Metropolitan, þeir
höfðu svo mikið álit á henni
þar og fengu Sir Thomas
Beecham að stjórna Figaro.
En hún var ekki bara góð
söngkona hún María Mark-
an, hún var elskuleg mann-
eskja.
NAUMURNAR NOT-
AÐR UTAN UM
Samtímamenn og sam-
ferðamenn Ragnars H.
Ragnar eru orðnir margir
um dagana, enda er hann
kominn á átttugasta og
fjórða ár, og það verður ekki
slegist í för með öllu fleirum
í þessu lesi, talið berst að
íslenskri tónlist og íslenskri
tónhefð og naumur komnar
til umræðu.
Ekki dónaleg þrenning þetta; Jónas Jónsson frá Hriflu, Ragnar H. Ragnar og Jón Á. Jóhannsson.
„Naumurnar voru notað-
ar um alla Evrópu á undan
nútímanótnaskrift, en eins
og Laxness segir í ræðu sinni
um Snorra Sturluson, þá
tóku lútherskir valdamenn
íslands og aðrir, bækurnar,
bútuðu þær sundur og not-
uðu utan um aðrar bækur.
Áður höfðu þeir hafnað
hinni einu, sönnu og sálu-
hjálplegu trú hinnar kaþ-
ólsku kirkju. En Arngrímur
lærði, sem skrifaði mjög gott
rit, Crimogæa á latínu, sem
ég ekki skil, en þetta er
varnarrit fyrir fslendinga,
segir, að útlendingar ættu
að vita það, að hér væru og
hefðu verið músikantar sem
réðu við lög í sex röddum.
Og í Biskupasögum segir frá
því, að Jón Ögmundsson
fékk hingað þekktan mann
Ragnar og Slgrfður hafa markað eftirminnileg spor f menningarlff ísafjarðarkaupstaðar, og gæfa
okkar var mikil, að þau skyldu setjast hér niður.
Óskum Vestfiröingum og
landsmönnum öllum gleöilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Kassagerð Reykjavíkur hf.
til þess að kenna söng við
skóla sinn. íslendingar stóðu
áreiðanlega í sönglist og tón-
listarfræðum, alveg að lok-
um kaþólskunnar, jafnfætis
öðrum þjóðum álfunnar.
Einn af þeim mönnum sem
lagt hefur stund á að lesa
þessa nótnaskrift er Hall-
grímur Helgason, einnig
séra Kolbeinn Þorleifsson.
Erlendis hafa þessar bækur
geymst, en furðulítið hefur
geymst af íslenskum bókum
með naumum fyrir tákn.
Þorlákstíðir eru á safni í
Kaupmannahöfn, og um
það skrifaði séra Bjarni Þor-
steinsson og reyndar fleiri.“
Að framan er minnst á
hefðina og hvernig eitt skáld
rís upp úr hópi hundruða
hagyrðinga, stórbrotið verk
sem einnig byggir á hefðinni
verður væntanlega flutt á
tónlistarhátíð í Reýkjavík að
vori og Ragnari H. hefur
verið boðið að koma suður
og vera við þennan atburð,
þegar Edda verður frum-
flutt ásamt fleiri verkum.
„Ég fer að minnsta kosti
til að hlusta á Jón Leifs
hvernig sem hann lætur í
eyrum.“
Ragnar hefur síðasta orð-
ið og fer vel á, að viðtalið
rísi í Eddu sinfóníunni sem
útheimtir hundrað manna
hljómsveit og tvöhundruð
manna kór.
f.
GJAFAVÖRUR
í ÚRVALI
Fyrir dömur: Fyrir herra:
ANAIS ANAIS
CINNABAR
VU
ESTEÉ
CLINIQUE
ROMANTIC
CALECHE
AMAZON
CHLOE
PRIVAT COLLECTION
CHARLIE
JONTUE
FIDJI
NINA RICCI
DIOR
TABAC
TIMBERLINE
MUSK
ARAMIS
DERRIC
CARVEN
BALAFE
AZZARO
PIERRE ROBERT
ROGER GALLERT
RACQUE CLUB
OLD SPICE
BRUT
ADMIRAL
Ilmvötn, body lotion, freyðiböð,
baðsölt, baðolíur, baðsápur, rakspírit-
us og cologne.
ísafjarðar
BREYTTUR OPNUNARTÍMI:
Laugardaginn 19. opið 11-12 og 14-22
Þorláksmessu opið til kl. 23
HRAFNKELL STEFÁNSSON
SÍMI 3009 • PÓSTHÓLF 14 ■ ÍSAFIRÐI