Vestfirska fréttablaðið - 14.12.1981, Blaðsíða 41
fRETTABLADIS
41
Togaraöldin
Fyrir tæpri öld hófst það
tímabil í slandssögunnar
sem óhætt er að fullyrða að
hafí orðið mesta byltingar-
skeið í atvinnusögu þjóðar-
innar. Þá fór að sjást ný
gerð veiðiskipa við landið -
togararnir og áður en lang-
ur tími leið höfðu þeir að
mestu leyst af hólmi eldri
skipin, skúturnar og þar
með gjörbreyttust aflabrögð
og síðar lífsafkoma þjóðar-
innar. Fyrstu togararnir
sem stunduðu íslandsmið
voru þó ekki íslenskir, held-
ur fyrst og fremst breskir,
þýskir og franskir. Þótti
mörgum íslendingum vá
fyrir dyrum þegar þessi
stóru skip með nýtískuleg
veiðarfæri fóru að sækja á
miðin, og lá raunar við
landauðn sumsstaðar.
Sókn erlendra skipa jókst ár
frá ári og svo mikill var
aflinn að fyrst í stað hirtu
t.d. Bretar aðeins verðmesta
fískinn, flatfiskinn, en köst-
uðu öðrum afla fyrir borð.
Þótti íslendingum vá fyrir
dyrum þegar erlendu stór-
skipin röðuðu sér á fiskimið
þeirra og sýndu yfirgang og
algjört tillitsleysi. Ýmsir
vildu þó að íslendingar fet-
uðu í fótspor þessara er-
lendu manna - togararnir
væri það sem koma skyldi,
og því bæri íslendingum
sem fyrst að eignast slík skip.
f bókinni er sagt rækilega
frá samskiptum íslendinga
við hina erlendu togara-
menn og tröllafiskinum svo-
kallaða og fyrstu tilraunum
íslendinga til togaraútgerð-
ar, sem voru fremur van-
Skór — Tilvalin jólagjöf
Blondo-kuldaskór
Duffys-kuldaskór
Loðfóðraðir Jog-skór
og margt fleira
Hinir margeftirspurðu frönsku kven-
skór eru væntanlegir aftur fyrir jól.
VANDAÐAR VÖRUR
Á HAGSTÆÐU VERÐI
ÍSkovarzlun L«01
**************************************************************
Hafnarstræti 5, ísafirði.
Hinn þjóðkunni rithöf-
undur, Gils Guðmundsson
hefur nú hafið samningu rit-
verks um þetta skeið ís-
lenskrar atvinnusögu, tog-
araöldina, og er 1. bindið
nýlega komið út. Ber það
undirtitilinn Stórveldis-
menn og kotkarlar, og þarf
varla að leiða að því getum
við hverja er átt með þeim
orðum. Gils ritaði á sínum
tíma mikið verk um
SKÚTUÖLDINA, og var
það endurútgefið, aukið og
endurbætt, í fimm bindum
fyrir nokkrum árum.
SÖGULEG UPPHAFSÁR
Upphafsár togveiða við
fsland voru hin sögulegustu
fyrir margra hluta sakir.
máttugar og misheppnuð-
ust. Öllu þessu fylgdu mikl-
ar umræður, bæði manna á
meðal, í blöðum og tímarit-
um og ekki síst á Alþingi,
þar sem menn voru mjög
ósammála og létu gjarnan
allstór orð falla.
OFBELDI OG MANN-
DRÁP
Þá er í bókinni fjallað
ítarlega um landhelgisgæsl-
una við ísland sem var á
þessum árum í höndum
Dana. Þótti mörgum slæ-
lega á málum haldið og þeir
varðskipsmenn sem hingað
voru sendir standa sig mis-
jafnlega, enda var gjarnan
hampað veðurlýsingu sem
einn varðskipsforinginn
skrifaði í dagbók skips síns,
og sagði hann að það væri
„stille í havnen, storm uden-
for.“ (Logn í höfn, en hvasst
útifyrir). Ekki veitti þó af
landhelgisgæslu og eftirliti,
þar sem sumir bresku skip-
stjórarnir sýndu mikinn yfir-
gang í viðskiptum sínum við
íslendinga, og lauk meira að
segja viðureign við einn
þeirra með manndrápum,
sem sagt er frá í bók Gils
Opna úr bókinni.
Guðmundssonar.
SÖGULEGAR MYNDIR
Bókin Togaraöldin er
mjög vel úr garði gerð, öll
litprentuð og í bókinni er
mikill fjöldi mynda, sem
sumar hverjar hafa aldrei
birst áður og hafa því mikið
sögulegt gildi. f bókinni er
t.d. einstæð myndasyrpa af
töku breskra landhelgis-
brjóta fyrir austan land
skömmu eftir aldamót.
Fylgst er með togaratökunni
allt frá því að varðskips-
menn búa sig undir að fara
um borð, uns komið er með
togarana inn til Seyðisfjarð-
ar, þar sem afla þeirra og
veiðarfærum var skipað á
land og gert upptækt. Þá
eru einnig í bókinni margar
myndir sem fengnar eru frá
Bretlandi, og er af þeim
mikill fengur.
Nýkomíð
vöru-
úrval
Vagnhjól, bein og m. snúningi,
3- 5- 6- 7- 8- 10”
Byssur
og
skot
Mikíð
úrval!
Einnig hjólböruhjól m. öxli.
Talíur 1W* tonn kr. 274,00.
Skrúfstykki, 2- 3- 4- 5- 6”,
margar gerðir.
Topplyklasett, 6 gerðir
Stjörnulyklar, 6 - 36 mm.
Facom skrúfujárn.
Vinnufatnaður
Vinnubuxur, margar gerðir,
verð frá kr. 173,00.
Vinnuskyrtur — Peysur
Ullarnærfatnaður og sokkar
Vinnusloppar, verð frá kr. 155,00
Vinnusamfestingar, bómull og nylon,
verð frá kr. 245,00
Kuldaúlpur, verð frá kr. 510,00
BIRKIKROSSVIÐUR, VATNSHELDUR
4- 6- 9- 12mm.
TAKMARKAÐ MA GNAF GLERULL VÆNTANLEGT
UMÁRAMÓT— TÖKUM VIÐ PÖNTUNUM
Opið á laugar-
dögum til jóla!
M. BERNHARDSSON
SKIPASM/DASTÖD HF.
Lager — Sími 3139
Spónaplötur, 12- og 18 mm.
Eigum einnig til plast-
húðaðar plötur til heima-
smíða, stærð 60 X 242 cm.
Þykkt, 15 mm.,
kantlímdar, 3 iitir.