Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 14.12.1981, Page 47

Vestfirska fréttablaðið - 14.12.1981, Page 47
vestlirska f 1 FEETTABLASID 47 Það var alltaf hörku stemning á sveitaböllunum —Eðvarð T. Jónsson tekur Baldur Geirmundsson í BG-flokknum tali í síðasta jólablaði Vestfirska kynntum við rakarameist- arann, listmálarann og harmoníkusnillinginn Villa Valla, sem haldið hefur uppi djamminu hér á ísafirði og ná- grenni undanfarna þrjá áratugi. En Villi Valli er ekki einn um hituna eða heiðurinn, eins og kunnugt er. Ýmsar aðrar merkar danshljómsveitir hafa hér gert garðinn frægan gegnum tíðina og hin fremsta þeirra er hiklaust hljómsveit Baldurs Geirmundssonar, en hún hefur borið ýmis nöfn á liðnum árum og þó ávallt verið kennd við upphafsmann- inn. BG-kvintettinn og Gunnar Hólm, BG og Árni, BG og Ingibjörg - nöfnin skipta ekki meginmáli; það er músíkin sem blívur og hvað þá hlið málsins snertir hefur BG alltaf staðið fyrir sínu. BYRJAÐI MEÐ HARMONÍKUNA Við leituðum á fund Baldurs Geirmundssonar uppi á Hjallavegi í þæfings- færð um daginn og báðum hann að segja okkur undan og ofan af ferli sínum og hljómsveitarinnar þau tæp- lega 30 ár, sem hann hefur spilað fyrir dansi hér fyrir vestan. Baldur tók því vel, náði í myndaalbúmið og fór síðan að rifja upp gamlar minningar. —Ég byrjaði að spila á sveitaböllum í Hnífsdal og inni í Djúpi rétt eftir ferm- ingu, sagði Baldur. Ég spil- aði á harmoníku og við vor- um yfírleitt tveir, sem skipt- umst á að spila. Inni í Djúpi vorum við alltaf saman, ég og Dóri Víglunds, og spiluð- um til kl. 4-5 á næturna. Það var alltaf hörkustemn- ing á þessum sveitaböllum og ég minnist þess, að Sjó- mannavalsinn, sem Sigurð- ur Ólafsson söng, var lang- vinsælastur á þessum tíma. Þarna var samankomið allt Annáll... því segja að undirbúningur til byggingu nýs íþróttahúss hér á ísafirði, sé aftur kominn á stað, og er vonandi að ekki verði stað- ar numið fyrr en hér er risið glæsilegt íþróttahús sem verður okkar bæ örugglega mikil lyfti- stöng á fleiri sviðum en íþróttaaf- rekum. SUNDHÖLL - ÍÞRÓTTAHÚS Það eru 35 ár síðan byggð var sundhöll hér á ísafirði. Isfirðingar voru því langt á undan flestum öðrum landsmönnum með að fá glæsilega innisundlaug. Á þeim tíma er sundlaugin var byggð voru ekki gerðar þær kröfur til slíks mannvirkis eins og í dag. Því vantar okkur hér ýmislegt til þess að notkun sundhallarinnar verði eins og hún þarf að vera, svo sem heita potta (setlaug), gufubað, sólbaðsskýli, aðstöðu fyrir leik- fimisæfingar sundgesta, ljósa- bekki og lyftingaaðstöðu. Árið 1972 lét þáverandi sund- hallarforstjóri, Gísli Kristjánsson, teikna stækkun við sundhöll og íþróttahús, þar sem hugsað var að koma fyrir því sem talið er upp hér áður, en ekkert hefur skeð í þeim málum. Á síðasta ári var samþykkt af bæjarstjórn að hefja lagfæringar í sundhöll og voru baðklefar alveg endurnýjaðir. Nú á þessu ári, 1981, voru svo baðklefar endur- nýjaðir í íþróttahúsi. Báðar þessar framkvæmdir koma sé vel og voru orðnar nauðsynlegar, en bet- ur má ef duga skal, það þarf því endilega að móta stefnu í þessum uppbyggingarmálum við sund- höllina til þess að hún sem slík nýtist eins og þarf, því sundhöllin getur enn staðið undir þeim kröf- um sem gerðar eru, ef hún fær þá hluti sem þar þurfa að vera í dag. FÉLAGSSTARFSEMI Félagsstarfsemi innan f.B.I. hefur verið í daufara lagi þetta árið svo sem undanfarin ár. Eink- um hafa stærstu félögin á ísafirði starfað lítið, sem hefur leitt af sér tilfærslu starfsins til sérráðanna, knattspyrnuráðs og skíðaráðs, sem hafa á undanförnum árum og ekki síst á þessu ári starfaði mjög vel. Á s.l. vori gekkst Í.B.f. fyrir félagsmálanámskeiði, sem Björn Helgason, íþróttafulltrúi, skipu- lagði. Reynir Karlsson, þáverandi æskulýðsfulltrúi, leiðbeindi þátt- takendum og þótti námskeiðið takast hið besta. Er nú ætlunin að gera slíkt námskeiðahald að föst- um lið á næstu árum. Að lokum er vert að ítreka við alla þá, sem áhuga hafa. á iþrótt- um að ekki er nægilegt að vinna eingöngu að uppbyggingu ytri að- stöðu til íþróttaiðkunar, heldur verður einnig hver og einn ein- staklingur að þroska með sér þann félags- og íþróttaanda, sem öll íþróttastarfsemi stendur og fellur með. Guðmundur Jóhannsson, íþróttamaður ársins á Isafirði. Myndin er tekin við afhendingu heiðursverðlauna og eru foreidrar Guð- mundar með á myndinni. IÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS Guðmundur Jóhannsson, skíðamaður, var kosinn íþróttamaður ársins 1980. Var honum og forystumönnum íþróttamála og öðrum gestum haldið veglegt hóf í Félagsheimilinu í Hnífsdal, af bæjarstjórn ísafjarðar, þar sem Guðmundi var afhentur farandbikar er sæmdar- heitinu fylgir það ár er hann er valinn, einnig sérstakt viðurkenningar- skjal og ákveðin verðlaunaupphæð í peningum. Guðmundur Jóhannsson var einróma kosinn, enda árangur hans á skíðamótum vetrarins 1980 mjög góður, einnig þótti Guðmundur vel að sæmdarheitinu kominn sakir prúðmennsku og góðrar framkomu, bæði í leik og starfi. Þetta var í fyrsta sinni sem íþróttamaður ársins var valinn samkvæmt nýrri reglugerð sem bæjarstjórn Isafjarðar lét semja fyrir sæmdarheitið íþróttamaður ársins fsafirði. Fyrsta hljómsveitin. yngra fólkið í sveitinni. Til þessara dansleikja var þann- ig stofnað, að unga fólkið ákvað með litlum fyrirvara að slá upp balli og fékk einhvern til að spila. Ég hef alltaf haft áhuga á músík, en ég hafði nánast engin kynni af hljóðfærum fyrr en ég var ellefu eða tólf ára gamall. Þá kom ég á gamalt verkstæði í Hnífsdal, skátaheimilið svonefnda. Þar var orgel og ég fór að fikta við það. Síðan keypti eldri bróðir minn, Gunnar, sér harmoníku og ég var alltaf að stelast í hana. Seinna keypti ég mér dansk- an harmoníkuskóla, sem var nokkuð kominn til ára sinna, og þannig lærði ég nóturnar smámsaman. Gömlu dansarnir voru allir á nótum og maður var alltaf að spila þetta. Á þessum árum var Villi Valli með einu hljómsveit- ina á Isafirði ásamt Adda Tryggva. En fyrsta hljóm- sveitin sem ég spilaði í var með Kalla heitnum Tomm og Karli bróður mínum. Við spiluðum gömlu dansana í Gúttó. Hljómsveitin hét BKB, en nafngiftin var þannig til komin, að Bæring bakari Jónsson byrjaði fyrst að spila með okkur en hætti síðan. Gömlu dansarnir voru á tveggja vikna fresti í Gúttó og það var jafnan talsverður viðburður í bæj- arlífinu. Þá var miklu meira um það, að menn komu af dansgólfinu og fengu að „taka í“, eins og það kallað- ist, þ.e. spila með hljóm- sveitinni. Það voru margir liðtækir spilarar, sem spreyttu sig þannig með okkur og þetta mæltist vel fyrir. MINNA DRUKKIÐ I GAMLA DAGA —Það var alltaf eitthvað um slagsmál á böllum í gamla daga, hélt Baldur á- fram. Drykkja var töluverð, en mér finnst hún ekki hafa breyst til batnaðar nema síður sé. I Hnífsdal t.d. var ekki drukkið eins mikið á böllunum - allavega fór það leyndara. En meginmunur- inn var kannske sá, að kven- fólk drakk miklu minna en nú tíðkast. Menn höfðu kannske til siðs að fara út- undir vegg, snafsa sig og koma svo inn aftur. En það þótti skömm að því í Hnífs- dal að vera mikið fullur á balli. Það voru ekki nema örfáir menn sem gátu leyft sé það. I Hnífsdalnum voru það aðallega heimamenn sem komu á böllin. Fólk kom ákaflega lítið héðan frá ísa- firði. Kvenfélög og önnur samtök stóðu fyrir þessum böllum og Hnífsdælingar fjölmenntu og vildu helst ekki fá neina aðra að. Þetta var líka alveg nóg, því húsið var svo lítið. Það var orðið troðfullt, þegar 60-70 manns voru komnir inn. Við spiluð- um náttúrulega þau lög, sem vinsæl voru á þessum tíma. Erla Þorsteinsdóttir, söngkona, var upp á sitt besta um þær mundir og lagið hennar hugljúfa „Draumur fangans“ var í miklu afhaldi hjá fólki. Smekkur manna var kannske rómantískari en nú gerist. Svo voru auðvitað gömlu dansarnir og fólkið fór í marsana af miklum krafti og þessu var öllu stjórnað af röggsemi. Það var dálítið mikið um það í Hnífsdal. GUNNAR HÓLM KEM- UR TIL SKJALANNA —Síðan varð sú breyting á, að Gunnar Hólm, sem núna er með Villa Valla, kom til okkar og fór að syngja með okkur. Við fór- um á þessum tíma í hljóm- leika- og sýningarferð með

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.