Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Síða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Síða 13
12.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 bátnum. Ég geri mér ekki grein fyrir hvað það leið langur tími þar til okkur var bjarg- að. Allt gekk þetta fljótt fyrir sig. Skipstjór- inn var í talstöðinni að tilkynna sig í land þegar Von strandaði. Vélstjórinn sagði það hafa verið erfitt að halda sér upp úr sjónum fyrir útsoginu. Hann synti með taug í land og dró svo menn- ina í land. Þannig bjargaði hann lífi þeirra. Vélstjórinn hefði svo sannarlega verðskuldað viðurkenningu fyrir afrek sitt. Það var hins vegar aldrei minnst á þetta, eftir því sem ég best veit. Skipið brotnaði með tímanum í spón. Það var farið með þá sem syntu í land út í Reykjanesvita. Við hinir vorum fluttir til Keflavíkur. Allir úr áhöfninni björguðust.“ Hefði betur öskrað Þú lentir í sjávarháska en fórst alltaf aftur á sjóinn. Þú hefur ekkert orðið smeykur og íhugað að hætta sjómennsku? „Nei, en ég fékk einhver helvítis einkenni og fór til læknis. Hann sagði að þetta væri ótti sem ég hefði byrgt innra með mér og nú tekið á sig þessa mynd. Hann sagði að ég hefði farið betur út úr þessu hefði ég æpt og skrækt þegar slysin urðu. Varðandi eftirköst man ég eftir einum háseta sem átti erfitt með svefn eftir slysið á Fylki. Hann var með mér á togaranum Agli Skallagrímssyni. Við fylgdum flestir Auðuni Auðunssyni skipstjóra frá Fylki yfir á Egil Skallagrímsson,“ segir Magnús og rifjar upp aðra sögu. „Svo heyrði ég af því, eftir að ég var hættur á Agli Skallagrímssyni, að þeir voru eitt sinn nokkr- ir að sækja kaupið sitt á skrifstofuna. Þar var lyfta sem bilaði og varð þeim víst and- skoti órótt í lyftunni, félögunum,“ segir Magnús um fyrrverandi félaga sína á Fylki. Börnin þekktu hann varla Magnús eignaðist þrjú börn með konu sinni, Sigríði Óskarsdóttur heitinni. Friðrik er elst- ur, fæddur 1950, svo kemur Hrefna, sem er fædd 1955, og loks Jón, sem er fæddur 1963. Friðrik er pípulagningameistari en Hrefna sinnir þrifum hjá öldruðum og Jón er húsa- smiður. Börnin eru öll á lífi. Magnús segir fjölskylduaðstæður hafa átt þátt í að hann hætti á sjónum. Börnin hafi varla þekkt hann þegar hann kom í land. „Þetta var helvítis útilega,“ segir hann. Hann segir sjómenn bindast nánum bönd- um á hafinu. „Yfirleitt var ég með góðu fólki til sjós. Það verður að vera samstaða um borð. Ef það komu leiðindapúkar voru þeir flæmdir í burtu. Þeir voru kallaðir lúnn- ingaberar sem kjöftuðu um það sem átti ekki að fara út fyrir skipið. Menn vilja ekki láta allt fréttast,“ segir Magnús og rifjar upp skemmtilega sögu. Henti besta hluta humarsins Eitt skiptið var hann sjókokkur. Kom þá til hans skipverji og bað hann um að elda fyrir sig humar. Hafði sá heyrt að humar þætti mikið lostæti erlendis. Magnús hlýddi mann- inum og eldaði humarinn. Vildi maðurinn þá aðeins éta úr klónum en henti stærsta hlut- anum af humrinum. „Nú vill fólkið einmitt helst það sem mað- urinn henti,“ segir Magnús og hlær. Hann segir aðbúnað sjómanna hafa tekið stakkaskiptum. „Ég man eitt dæmi frá því ég var á síldar- bátnum Bjarnarey frá Hafnarfirði. Þar urðu menn að klæða segldúk yfir kojurnar. Dall- urinn lak svo mikið þegar það var ágjöf og vesen. Þetta var eldgamalt fley. Þú sérð það á togurunum núna að þeir þurfa ekki að beygja sig eftir einum einasta fiski. Áður þurfti að beygja sig eftir þessu öllu saman. Það var misjafnt hversu lengi menn héldu út,“ segir Magnús Jónsson. Hann segist nú þurfa að kíkja út í hesthús. Kveður svo með þéttu handtaki. Magnús Jónsson byrjaði snemma á sjónum. Hann kynntist hættum hafsins betur en flestir. Hann byrjaði á sjó skömmu eftir að síðari heimsstyrjöldinni lauk. Morgunblaðið/Kristinn Fimmtudaginn 15. nóvember 1956 var það aðalfrétt á baksíðu blaðsins að togarinn Fylkir hefði fengið á sig tundurdufl og sokkið. Haft var eftir Auð- uni Auðunssyni skipstjóra að togarinn hefði þá verið í 8 daga veiðiför. Að- eins þessa stundina hefði veður verið nógu gott til að setja út björgunarbát. Fimmtudaginn 20. mars 1958 birtist baksíðugrein í Morgunblaðinu um strand Vonar frá Grenivík í Sandvík á Reykjanesi. Fjallað var um mann- björg er maður synti til lands og dró svo þrjá aðra í land. Maðurinn er hins vegar ekki nafngreindur. Magnús segir þann mann hafa verið hetju.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.