Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Side 14
Sjávarháski
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.7. 2015
Þ
að er fallegt sumarkvöld við
Hamraborgina í Kópavogi þegar
Hákon Jónas vísar blaðamanni til
sætis við stofuborðið. Hann er að
flytja og er búslóðin komin í
kassa. Ekki í fyrsta sinn sem hann stendur á
tímamótum.
Samtalið hefst með því að ræða um harm-
leikinn á Vestfjörðum síðastliðinn þriðjudag
þegar þrír komust lífs af og einn drukknaði er
bát hvolfdi úti af Aðalvík. Líkt og Hákon Jón-
as upplifði löngu áður kom björgunarbátur
ekki sjálfkrafa upp.
Hákoni Jónasi er svo sýnd forsíða Morg-
unblaðsins frá 10. mars 1956 þar sem burð-
arfréttin er um hörmulegt slys austur við Sel-
vog, þegar báturinn Vörður frá Reykjavík
sökk og með honum áhöfnin öll, alls fimm sjó-
menn. „Slys þetta varð með þeim hætti að
bátinn bar inn í brimgarð og þar hvolfdi hon-
um á svipstundu. Fjórir mannanna voru fjöl-
skyldumenn er láta eftir sig konur og ung
börn. Þetta hörmulega slys er hið mesta, sem
orðið hefur á þessum vetri,“ sagði í inngangi
fréttarinnar.
Síðan eru mennirnir taldir upp og er Hákon
J. Hákonarson þriðji í röðinni, hann var þá 24
ára. „Hann lætur eftir sig konu og þrjú börn,
hið elzta 4 ára,“ sagði í blaðinu.
Var Vörður á leið frá Þorlákshöfn til
Reykjavíkur og þungur sjór.
Byrjaði sem hálfdrættingur
Þótt sjómennskan hafi þannig höggvið stórt
skarð í fjölskyldu Hákonar Jónasar kom aldr-
ei annað til greina en að fara á sjóinn.
„Ég fór á sjó 14 ára, þá sem hálfdrættingur
á hálfum launum hjá Tryggva Ófeigssyni á
síðutogaranum Mars. Það stóð aldrei annað til
en að fara á sjóinn. Annað var aldrei val-
kostur,“ segir Hákon Jónas.
Hvernig tókst fjölskylda þín á við sorgina?
„Ég upplifði aldrei dauða pabba míns. Hann
var aldrei hluti af neinu nema að ég var al-
nafni hans. Sex árum síðar giftist móðir mín,
Guðlaug Ólafsdóttir, aftur frábærum manni,
Sigurþóri Þorgrímssyni. Hann tók okkur
systkinin eins og við værum börnin hans.
Móðir mín eignaðist með honum þrjú börn í
viðbót,“ segir Hákon Jónas.
Guðlaug er enn á lífi en Sigurþór andaðist
fyrir sex árum.
„Þannig að móðir mín er búin að missa tvo
menn frá sér,“ segir Hákon Jónas. Svo kemur
stutt þögn. „En hún er sterk kona.“
Boðið að vera skipstjóri
Mörgum árum eftir að Hákon Jónas hóf sjó-
mannsferilinn, árið 1969, kaupir hann sinn
eigin bát árið 1985, trillubátinn Stakknes. „Ég
átti síðan nokkra báta en hætti svo með báta.
Mér var boðið að vera skipstjóri og stýrimað-
ur á bát sem hét Vöggur GK 204. Ég var ráð-
inn þangað af því að ég var harður nagli, gríð-
arlega duglegur sjómaður í Reykjavík.
Vöggur sökk rétt vestan við Þjórsárósa, aust-
an við Stokkseyri, í haustbyrjun 1990. Það var
ekki nema 60-70 mílur frá þeim stað þar sem
pabbi minn drukknaði,“ segir Hákon Jónas
um þau ótrúlegu örlög að bátur með svipuðu
nafni og Vörður skyldi 34 árum síðar fara í
sjóinn á svipuðum slóðum og að skipstjórinn
var sonur eins þeirra sem fórst forðum.
„Þegar báturinn var að fara á hliðina sagði
hásetinn mér að hann væri ósyndur. Ég þurfti
því að binda hann við bakið á mér.“
Þarf að segja söguna alla
Þetta hefur væntanlega gerst hratt. Hvernig
fórstu að því að binda hásetann við þig?
„Það er ekki hægt að útskýra það nema að
segja söguna frá byrjun. Það var síðla kvölds
þegar við vorum að ferja bátinn frá Garðinum
og komum við í Grindavík vegna þess að sjálf-
stýringin var biluð. Við fengum gert við hana
og svo höldum við austurmeð og erum á leið-
inni til Breiðdalsvíkur. Veðurspáin var þannig
að við ætluðum að stoppa í Vestmannaeyjum.
Við Selvogsvita, á sama stað og pabbi minn
drukknaði, set ég stefnuna á Þrídranga og fer
svo að sofa. Hásetinn vekur mig tveimur til
þremur tímum seinna og segir mér að það sé
farið að grynnka. Ég stekk upp í brú og um
leið og ég kem upp í brú lendir báturinn á
skeri – og þeysist greinilega yfir skerið – og
um leið kastast ég á brúargluggann. Þá
brotnuðu tennur og ég fékk sár á síðuna og
fleiri áverka. Ég næ að senda neyðarkall og
sól [neyðarblys]. Fimm mínútum síðar fer
báturinn að hallast, það braut svo yfir brúna.
Þetta var frambyggður bátur sem þýðir að
brúin er fremst. Björgunarbátarnir voru uppi
á brúnni og til þess að komast að þeim hefði
ég þurft að komast upp á brúna. Öldurnar
skullu á bátnum á skerinu. Ég hefði því þeyst
út af. Það braut sjór yfir brúna. Sjálfvirkur
sleppibúnaður á björgunarbátum fer ekki í
gang fyrr en bátur sekkur. Hann kom ekki
upp, ekki frekar en í slysinu á Vestfjörðum
fyrir nokkrum dögum. Nema að ég sé að það
er sker rétt hjá. Svo fer báturinn að hallast
og þá segir hásetinn að hann sé ósyndur, sex-
tugur maðurinn. Einar Matthíasson hét hann.
Þá var ekkert annað að gera en að taka
spotta og binda hann við bakið á mér. Svo
hallaðist báturinn og fór á hliðina. Ég syndi
með hann frá bátnum og í þann mund sé ég
stefnið fyrir ofan mig og báturinn sekkur nið-
ur að aftan. Svo syndi ég með manninn að
skerinu. Við komumst sem sagt upp á það.“
Byrjaði að flæða að skerinu
Hvað voruð þið lengi á skerinu þar til björgun
barst?
„Við fréttum það síðar að ljóskastarinn á
björgunarþyrlunni var bilaður. Það tók tíma
að gera við hann. Við vorum þarna rúman
klukkutíma á skerinu. Það flæðir yfir þetta
sker á flóði. Það voru björgunarsveitarmenn í
landi. Við sáum ljós í fjarska. Þessi sker eru
um 2-300 metra frá landi. Nema að þeir héldu
að við værum í sjónum, var mér sagt síðar.
Maður sá ekki fjöruna. Sandurinn í fjörunni
hverfur inn í myrkrið. Mig grunaði hins vegar
að við værum nálægt landi. En ég hugsa að
ég hefði aldrei haft Einar með mér þessa 2-
300 metra. Þegar þyrlan kom bjó ég að því að
kunna að taka á móti þyrlu. Það þurfti að for-
gangsraða. Einar var náttúrlega númer eitt.
Ég þurfti að smeygja ól utan um hann. Það
seig maður niður og síðan var náð í mig. Það
er ótrúlegt hvað þetta hafði lítil áhrif á Ein-
ar.“
„Hefðu ekki átt að sleppa“
Hákon Jónas dregur svo fram gamla úrklippu
úr Morgunblaðinu. Þar eru þessi orð höfð eft-
ir honum á baksíðu blaðsins: „Ég held að við
hefðum ekki átt að sleppa. Þegar bátur skell-
ur til og frá eina fjóra fimm metra og hendist
á klettinn þá eiga menn ekki að sleppa.“ Síðar
í sömu grein var rætt við félaga hans, Einar,
sem lýsti stundinni þegar björgunarmennirnir
komu: „Við hrópuðum eins og við höfðum
kraft til og einnig flautaði skipstjórinn allt
hvað hann gat í flautu sem var í mínu vesti.
Loksins kom þyrlan og ég ætla ekki að lýsa
þeim fögnuði sem við fundum í brjósti þegar
við sáum hana. Við hefðum örugglega króknað
ef við hefðum verið þarna mikið lengur.“
Martraðir í aldarfjórðung
Hákon Jónas segir þessa reynslu hafa skilið
eftir sig ör á sálinni.
„Síðustu 25 ár hef ég haft martraðir. Það
var ekki um neina áfallahjálp að ræða. Hún
var bara ekki til. Manni var sagt að bíta á
jaxlinn. Þannig var þetta gert. Í litlu sam-
félagi eins og Breiðdalsvík stendur fólkið með
einstaklingnum, það hjúpar hann. Hann
stendur aldrei einn, þótt hann sé einn. Ég
varð að fara á sjóinn aftur eða flytja. Það var
ekkert um neitt annað að ræða. Þannig að ég
fór á sjóinn og síðan keypti ég mér bát. Eftir
slysið hef ég þjáðst af myrkfælni.“
Gafst upp á sjómennskunni
Segðu mér frá því?
„Slysið varð um hánótt. Ég er siglingafræð-
ingur – að vísu bara með pungaprófið – en ég
átti mjög erfitt með að treysta siglingatækj-
um eftir slysið. Eftir slysið varð ég hreinlega
lélegur sjómaður. Ég fór helst ekki í vondum
veðrum og helst fór ég þegar farið var að
birta. Þannig að árið 1997 gafst ég upp, hætti
á sjó. Að auki flutti ég frá Breiðdalsvík til
Reykjavíkur. Ef ég hefði sleppt því að fara
aftur á sjóinn hefði ég sparað mér mörg gríð-
arlega slæm ár. Ég skemmdist á þessu, reykti
mikið og varð skapillur. Þegar ég hætti á sjó
lagaðist ég til muna. Við keyptum verslun í
Reykjavík, Álfheimabúðina. Svo seldum við
hana og ég fór að keyra flutningabíla, stofnaði
fyrirtækið Alhliða flutningaþjónustan. Sá
rekstur fór illa í hruninu. Ég missti hins veg-
ar aldrei vinnuna, ók á bílum hjá Eimskip, en
fyrirtækið fór og með því allur sjóðurinn frá
útgerðarárunum. Nú er ég bílstjóri hjá
Strætó í hlutastarfi. Það er bara fínt,“ segir
Hákon Jónas og fer aftur að tala um daginn
örlagaríka, 25. ágúst 1990.
Vissu ekki hvað gerðist
„Það versta við þetta er skömmin. Það veit
enginn hvað gerðist. Það veit enginn hvort ég
hafi stillt sjálfstýringuna vitlaust eða hvort
hún hafi hreinlega slegið út. Þannig að maður
lifir með þessu líka. Þarna er ég með bát sem
væri væntanlega metinn á 100 milljónir í dag.
Það birtist frétt í vikunni um að bátur hafi
sokkið og þrír menn komist á kjölinn. Það veit
hins vegar enginn hvað gerðist. Þetta er það
versta. Ég veit 25 árum eftir að Vöggur sökk
ekkert hvað gerðist. Hásetinn sagði alltaf við
mig að hann vissi ekki hvað hefði gerst. Hann
var vakandi í brúnni. Svo var haldinn sjóréttur
og þeir vildu kanna hvort ég kynni sigl-
ingafræði, hvort ég kynni að taka út með korti
og allt það. Mér fannst þeir ganga hrikalega
hart fram. En þeir gerðu í raun aðeins skyldu
sína og reyndu að ná fram þeim sannleika sem
var í málinu. Það er ótrúlegt en satt en sá sem
var formaður sjóréttarins drukknaði mánuði
seinna, í október 1991. Hann var á skólabát
sem hét Mímir RE 3, sem sökk í ósunum í
Hornafirði. Hann var að sigla út ósinn og
sneri svo við í ósnum. Sem hann hefði ekki átt
að gera en gerði það samt. Hann drukknaði
maðurinn.
Tíu árum eftir að Vöggur sökk dó Einar
eðlilegum dauðdaga. Þá hringdi systir hans í
mig og sagði að þau systkinin væru sannfærð
um að ég hefði lengt ævi Einars um tíu ár.
„Við viljum að þú komir austur og verðir lík-
maður númer eitt,“ sagði hún. Það fannst mér
mikill heiður.“
Finnst hann vera að drukkna
Hvernig martraðir færðu?
„Ég fæ köfnunartilfinningu. Þegar ég sef
finnst mér ég vera að drukkna. Ég hef ekki
losnað við þetta. Þetta verður samt fjarrænna.
Þetta smám saman dofnar. Ég lifi mjög eðli-
legu lífi, hjóla helst 30 kílómetra fimm sinnum
í viku. Ég hef hjólað yfir Sprengisand og yfir
Kjöl. Við Bergþóra Reynisdóttir kona mín ger-
um þetta allt saman. Hún er geðhjúkr-
unarfræðingur.“
Getur hún sem geðhjúkrunarfræðingur
hjálpað þér?
„Já, hún hefur hjálpað mér mikið. Svo eig-
Strandið skildi eftir
ör á sálinni
HÁKON JÓNAS HÁKONARSON VAR NÍU MÁNAÐA ÞEGAR HANN MISSTI FÖÐUR SINN Í SJÓSLYSI.
UM 35 ÁRUM SÍÐAR BJARGAÐI HÁKON JÓNAS MANNSLÍFI ÞEGAR BÁTUR SEM HANN VAR
SKIPSTJÓRI Á SÖKK SKAMMT FRÁ ÞAR SEM FAÐIR HANS DRUKKNAÐI. SJÁVARHÁSKINN SETTI MARK SITT
Á LÍF HÁKONAR JÓNASAR OG VAR HANN LENGI AÐ VINNA SIG ÚR ÁFALLINU. HANN SAGÐI
MORGUNBLAÐINU FRÁ MARTRÖÐUM OG HVERNIG HANN GLATAÐI UM HRÍÐ HLUTA AF
SJÁLFUM SÉR VEGNA RANGRA VIÐBRAGÐA VIÐ MEIRIHÁTTAR ÁFALLI Á SJÓ.
Baldur Arnarson baldura@mbl.is
Hákon Jónas Hákonarson
lenti í erfiðri lífsreynslu.