Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Síða 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.7. 2015 Á stæðulaust er að efast um að vand- aðar skoðanakannanir gefi sæmi- lega mynd af stjórnmálalegu við- horfi fólks á miðju kjörtímabili. En þær segja þó minnst til um það, hvað muni koma upp úr kjör- kössum tveimur árum síðar. Minni en Alþýðuflokkurinn Það vekur hvað mesta athygli við nýbirtar kannanir hversu veik staða Samfylkingarinnar er orðin. Sá flokkur er í stjórnarandstöðu við ríkisstjórn sem sjálf fer ekki með himinskautum í könnunum. Það er nokkurt afrek, við þær aðstæður, að falla í minnsta fylgi sem flokkurinn hefur notið frá stofnun hans. Kvennalisti, Þjóðvaki (þrír þingmenn hans höfðu þegar gengið í Alþýðuflokkinn og var Jóhanna ein eftir) og drýgstur hluti Alþýðubandalags bættist við Alþýðuflokkinn á sínum tíma. Óflokksbundnir eða flakkandi vinstrimenn sem lengi höfðu kvartað undan klofningi á þeim væng höfðu góð orð uppi um að styðja sameiningaraflið kæmi það til. En nú mælist Samfylkingin eins og Alþýðuflokk- urinn mældist einatt einn, þegar fremur illa gekk hjá honum. Hvað veldur slíku hruni? Forysta Samfylk- ingarinnar fer undan í flæmingi þegar spurt er. Þegar loksins næst í skottið á varaformanninum, Katrínu Júlíusdóttur, verður óþægilega fátt um svör. Hún tekur þó fram að flokksforystan og stefnan séu ekki hluti af skýringunni! Þegar þetta tvennt kemur ekki til álita verður vöruúrvalið í hillunni ekki beysið. Að auki kemur í ljós að viðhengið, botnlanginn og ein- eggja tvíburi Samfylkingarinnar, Björt framtíð, hangir einnig á fylgislegri horrim. Guðmundur Steingrímsson gaf færi á sér í viðtöl og hann taldi flokkinn sinn „eiga meira inni“. Það kom ekki fram hvort þessi meinta innstæða væri hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna eða annars staðar. En þetta sameiginlega skipbrot, svo súrt sem það er, getur hins vegar auðveldað leitina að skýringu. Þessir tveir samofnu flokkar eru ESB-flokkarnir á Íslandi (og er þá ekki verið að reyna að gera lítið úr sögulegum svikum VG). Þegar froðan af venjubundnum frösum þeirra sam- fylkingarmanna fýkur af í gjólunni þá kemur jafnan í ljós að allt hjalið umhverfist í einni algildri stefnu. Aðild að ESB er allra meina bót í augum þeirra. Þegar menn hafa höndlað trú á annan eins lífselexír eru önnur stefnuatriði óþörf, nema sem umbúðir og skraut. Evran hræðir Úrtölur um getu Íslands sem fullvalda ríkis voru hluti af þessari trúarlegu tilveru. Barnalegar árásir á myntina voru það líka. Raunar var evran lengi vel það eina sem dró hikandi menn hér á landi að þessari stefnu og í augum ólíklegustu manna dugði hún stundum til að yfirskyggja gallana sem þeir viður- kenndu að væri á aðild að öðru leyti. Nú dylst engum lengur hversu miklir annmarkar fylgja því fyrir þjóðir að lúta mynt sem þróast eftir öðrum efnahagslögmálum en þeim sem eiga rót í þjóðarbúskapnum sjálfum. Auðvitað geta komið skeið þar sem slík samfylgd gæti gengið hnökralaust og jafnvel gagnast um hríð. En binding inn í þann ramma, af þeim sökum, er óhæf vegna margvíslegra frávika sem verða á öðrum tímum, en þó ekki síst vegna þess óöryggis sem fylgir við fyrirséðar og ófyr- irséðar aðstæður. Bankaáfallið sem skók veröldina, og Ísland þar með og sérstaklega, haustið 2008 var sláandi dæmi þessa. En það var fyrrverandi stjórnarflokkum tilefni til að ana í aðildarumsókn. Samfylkingin vildi nýta hið ein- stæða tækifæri á meðan þjóðin væri í losti eftir áfall- ið. Engu skipti þótt evrulönd eins og Írland, Spánn, Grikkland og Portúgal riðuðu til falls og ættu enga leið út úr vandanum vegna bindingar í sameiginlegri mynt. Sú mynd varð sífellt augljósari og óumdeildari. Dæmin annars staðar Hin gagnrýnislausa og blinda ESB-stefna Samfylk- ingarinnar setur hana í stórfurðulegt ljós við þær að- stæður sem nú eru uppi í þessum heimshluta. Danski Hægriflokkurinn gekk þess háttar stefnu á hönd og gufaði sá gamalgróni flokkur hreinlega upp. Venstre í Danmörku (sem er hægra megin við miðju) fór raun- ar einnig í sama far. Nú er sá flokkur fallinn niður í þriðja sæti í flokkastærð og galt afhroð í seinustu kosningum. Þjóðarflokkurinn (sem óhlutdrægir fjölmiðlamenn kalla „hægri öfgaflokk“) er orðinn næststærsti flokkur Danmerkur. Kratarnir rétt mörðu að vera stærri. Þjóðarflokkurinn reynir að yfirbjóða kratana í sumum þáttum velferðarkerfisins, sem er sér- kennilegt fyrir „hægri öfgaflokk“. En flokkurinn heldur samt þeim stimpli hjá hlutlægum fjölmiðla- mönnum vegna efasemda sinna um Evrópusam- bandið og þar sem hann vill fara gætilegar en aðrir danskir flokkar í innflytjendamálum. Einhver hefði haldið að þetta tvennt hefði lítið með skilgreiningu á hægri og vinstri að gera. Áherslur í velferðarmálum kynnu hins vegar að gera það. Vandræðagangur hins „hefðbundna“ flokkakerfis í umgengni sinni við flokka eins og Þjóðarflokkinn veldur því að nú fer fylgislítill Venstre-flokkur einn með ríkisstjórnarvald í Danmörku og í Svíþjóð gerir krataflokkur, sem aldrei hefur staðið verr í fylgi, með sambærilegt vald. Breski Íhaldsflokkurinn hraktist út í það að lofa þjóðaratkvæði um veru landsins í ESB. Cameron forsætisráðherra segist munu berjast fyrir áframhaldandi aðild, eftir að hann hafi snúið heim eftir stórsigra í viðræðum við ESB um end- urheimt á fullveldi. Forsætisráðherrann veit eins og aðrir að ekkert slíkt fæst, en treystir á hjálp viðsemj- Annar eins maður og Kormákur kómissar fer ekki með neitt fleipur Reykjavíkurbréf 10.07.15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.