Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Blaðsíða 39
endanna við að setja á svið. Það sé jú beggja hagur. Kannanir benda enn til að þessi ráðagerð hans muni heppnast. Ýmsir þeirra sem vel þekkja til telja ekki útilokað að þegar nær dregur kjördegi í þjóð- aratkvæði kunni bilið á milli fylkinga að minnka. Því sé óvarlegt að fullyrða neitt um úrslit nú, hvað sem vísbendingum kannana líður. Þeir sömu benda eink- um á þrennt: Ólguna sem ríkt hefur vegna Grikk- lands (og fleiri evruríkja). Vaxandi stuðning við það í röðum eigenda breskra fyrirtækja, einkum með- alstórra og minni, að standa utan við ESB. Og í þriðja lagi séu andstæðingar ESB ákveðnari kjósendur en hinir, þótt mun fjáðari séu. Varla þarf að taka fram að fáir breskir stjórnmálamenn orða það að réttast væri að Bretar köstuðu pundinu og tækju upp evru. Frjálslyndi flokkurinn einn hafði slíkt í stefnuyfirlýs- ingum sínum, en flokkurinn hrundi til grunna í síð- ustu kosningum. Sigmundur í Brussel Forsætisráðherra Íslands sótti þá Brussel-menn heim í vikunni, þegar vel stóð á fyrir þeim. Topparnir þar sögðu honum að þeir virtu ákvarðanir Íslands um að falla frá aðildarviðræðum við ESB. Það er gott og blessað. En vandamálið er það, að forystumenn Evr- ópusambandsins taka það ekki endilega mjög alvar- lega sem þeir sjálfir segja. Það er raunar mesta furða hvað aðdáendur þeirra eru blindir í þeim efnum. Vart er nokkur búinn að gleyma því, að hver einasti leiðtogi evruríkis sagði í byrjun síðustu viku, eftir að hafa fyrst fordæmt tiltæki Grikkja um þjóðarat- kvæði, að kosningin snerist alls ekki um það efni sem tilgreint væri á kjörseðlinum. Einungis væri verið að kjósa um það, hvort Grikkir yrðu áfram í mynt- samstarfinu eða færu. Yrði niðurstaða þjóðarat- kvæðis Já yrðu Grikkir kyrrir. Yrði niðurstaðan Nei færu þeir og þá yrði alls óvíst hvort bankar í Grikk- landi yrðu nokkru sinni opnaðir á ný. Það kunna blað Financial Times sagði í leiðara sínum sl. mánudag: „Það væri mjög ráðlegt fyrir grísku þjóðina að hlusta vel á orð Merkel (kanslara). Þjóðaratkvæðið er kosn- ing um evruna eða drökmuna, hvorki meira né minna.“ Niðurstaðan varð að 62% Grikkja sögðu nei, en að- eins 38% já. Þar með eru Grikkir farnir úr evrunni. Eða hvað? Lesendur F.T. vita að það blað, með öllum sínum kostum, er hallt undir „evrópuhugsjónina“. Kannski tók blaðið þess vegna fullmikið mark á orðum helstu leiðtoga ESB með kanslara Þýskalands í broddi fylk- ingar. Og blaðið var fjarri því að vera eitt um það. Morgunblaðið spáði því hins vegar í sínum rit- stjórnargreinum að Evrópusambandið myndi aldrei þora að leyfa Grikkjum að bjarga sér með flótta, þrátt fyrir þessar stórkarlalegu yfirlýsingar. Þær voru tilraun til að hafa áhrif á atkvæðagreiðslu í einu ríki sambandsins. Á það hefur verið bent að fullyrð- ingar leiðtoganna um að Grikkir segðu sig undan evr- unni með því að segja nei í þjóðaratkvæði stæðust ekki lög og sáttmála sambandsins. Grikkir hafi sam- kvæmt þeim sama rétt til að segja sig undan evrunni og Borgarnes undan íslensku krónunni. Forsætisráðherra Íslands veit betur en margir aðr- ir að fyrrnefnt tal um að virða afstöðu Íslands er kurteisishjal sem hefur aðeins gildi á meðan ekki reynir á það. Ef á það myndi einhvern tíma reyna er líkegt að forystumennirnir á þeim bæ svöruðu aðspurðir um fyrri fullyrðingar með áþekkum hætti og einn ágætur formaður Framsóknarflokksins: „Ég meinti það þeg- ar ég sagði það.“ Ekki myndin öll Þegar þetta er skrifað birtist mönnum sú mynd að Tsipras, forsætisráðherra Grikkja, hafi lagt fram til- boð til „evrópskra kröfuhafa“ sem sé að efni til mun lakara en gríska þjóðin felldi með afgerandi hætti sl. sunnudag, að áskorun hans sjálfs. Sé sú raunin, ætti að vera óhætt að fullyrða að forsætisráðherrann sé ekki í neinum sjálfsmorðshugleiðingum, heldur telji hann sig hafa uppi í erminni loforð um það að í út- færslu þessa tilboðs muni Grikkjum verða boðin veruleg niðurfelling skulda. Þrýstingur Bandaríkjanna gengur í þá átt og hefur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn þegar svignað undan þeim þrýstingi. Sama má lesa út úr orðum Hollande, forseta Frakklands, og ekki ósennilegt að hann hafi fengið leynilegt vink frá Berlín. Merkel kanslari þarf að geta vitnað til þessa alls þegar hún hugsandi og treg leggur til við þingið í Berlín að fallist verði á slíka niðurstöðu, hvað sem fyrri yfirlýsingum líði. Þýskaland gegni þýðingar- mestu hlutverki við að tryggja samheldni álfunnar. Fari þetta svona verða litlu evruríkin – „sem hafa gríðarleg áhrif við borðið“ – að kyngja niðurstöðunni þegjandi, enda hafa þau ekki annað hlutverk. Leiðtogar þeirra eru kumpánlega kallaðir „jakka- fötin við hringborðið“. Þetta vita allir nema íslenskir „evrópufræðingar“. Og það er best að þeir fái aldrei að vita það. Morgunblaðið/Árni Sæberg * Forsætisráðherra Íslands sóttiþá Brussel-menn heim í vik-unni, þegar vel stóð á fyrir þeim. Topparnir þar sögðu honum að þeir virtu ákvarðanir Íslands um að falla frá aðildarviðræðum við ESB. Það er gott og blessað. En vandamálið er það, að forystumenn Evrópusam- bandsins taka það ekki endilega mjög alvarlega sem þeir sjálfir segja. 12.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.