Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Page 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Page 40
Viðtal 40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.7. 2015 M agnea Arnardóttir og Þórhildur Magn- úsdóttir hafa tileinkað sér mínimalískan lífsstíl í þeim tilgangi að einfalda líf sitt. Það er óhætt að fullyrða að þær gera hluti sem aðrir bara hugsa um að gera eins og að fækka fötum í fataskápnum og reyndar minnka dót í öllum öðrum skápum. Efri skáparnir hjá Magneu standa nánast tómir og hún var einn og hálfan tíma að gera jólahreingerninguna í um 100 fermetra íbúð. Geri aðrir bet- ur. Þannig er meiri tími til að njóta þegar skylduverkunum fækkar eða þau eru einfölduð. Þessi mínimalíski lífsstíll nýt- ur aukinna vinsælda um allan heim og hafa sumir gengið svo langt að segja skilið við flestallar jarðneskar eigur sínar og búa í hjólhýsi í bandarískum skógi. Þetta er hinsvegar lífsstíll sem venjulegt fólk getur til- einkað sér eins og þær sýna fram á. Magnea er þroskaþjálfi og vinnur á leikskólanum Sólborg og á tvö börn, Hrefnu og Kára, sem eru fædd 2011 og 2012 með eiginmanni sínum Arnari Frey Björnssyni. Þórhildur, sem er nýkomin með BS í hugbúnaðarverkfræði og vinnur sem forritari hjá LS Retail, á soninn Esjar Kára, sem fæddur er árið 2012 með eiginmanni sínum Kjartani Loga Ágústssyni. Þær kynntust í fæðingarorlofi enda munar aðeins sex mánuðum á sonum þeirra. Það var á fundi stuðningskvenna við brjóstagjöf en Magnea hefur verið talsmaður þessa hóps. Þær fóru að tala saman og eftir að hafa eytt mörgum kvöldum í að spjalla á Facebook yfir brjóstagjöfinni á kvöldin um hvað það væri mikið af óþarfa hlutum í lífi þeirra sem tækju svo mikinn tíma og orku, ákváðu þær að stofna lokaða Facebook- hópinn „Áhugafólk um mínimalískan lífsstíl“ fyrir um tveim- ur árum en núna eru tæplega 450 meðlimir í hópnum. Hóp- urinn hefur gagnast þeim vel og þar hafa skapast lifandi umræður um hvernig sé best að fækka „draslinu“ í lífi mann og meðlimir skiptast á góðum ráðum og hvetja hver annan áfram. Allir áhugasamir eru velkomnir í hópinn. Sunnudagar til Sorpuferða „Einu sinni vorum við með „Sunnudaga til Sorpuferða“. Þá tókum við myndir af skottinu á bílunum okkar, líka sem hvatning til allra hinna,“ segir Magnea, sem hefur sann- arlega markvisst fækkað hlutunum í sínu lífi. Þetta byrjar með sakleysislegri tiltekt. „Af hverju er ég alltaf að færa þessa styttu fram og til baka til að geta þrif- ið, hún er ekki að gefa mér neitt þessi stytta. Núna ætla ég bara að gefa hana í Góða hirðinn,“ tekur Magnea sem dæmi en allt sem þær losa sig við er yfirleitt gefið í Rauða krossinn, Góða hirðinn eða sambærilega staði þó að stöku hlutir rati í endursölu. „Endurvinnsla er hluti af þessu. Við förum aldrei með þetta beint út í tunnu,“ segir Þórhildur. Báðar eru þær með kassa heima hjá sér fyrir hluti sem þær þarfnast ekki lengur. Og þegar kassinn er orðinn fullur er farið í Sorpu. Þær eru líka með Rauða kross-poka inni í þvottahúsi sem þær bæta ofan í smám saman. „Aðalatriðið er að þú ert að vinna í því að einfalda líf þitt,“ segir Magnea. Formúlan er nokkurn veginn svona; minna drasl, minni vinna, minni útgjöld verða að meiri peningum, meiri tíma og meiri gleði. „Þú losar þig við hluti sem þú hefur ekki gaman af leng- ur,“ segir Þórhildur. Hlutir taka pláss og stela orku „Mjög oft eru þetta gjafir. Ég þarf til dæmis ekki að eiga tvær pönnur og gaf þá aðra,“ segir Magnea. „Ég á átta matardiska. Það er alveg nóg. Ef það koma fleiri í mat þá á ég kökudiska. Það deyr enginn af því að borða mat af kökudiski. Ef ég er með veislu þá hóa ég í Þórhildi og bið hana að grípa með sér kökugaffla. Ég þarf ekki að eiga 30 gaffla,“ segir hún og má þannig segja að hugsunin á bak við deilihagkerfið komi hér inn í líka. „Hlutir í lífi þínu taka pláss og stela frá þér orku. Ég var með bókahillu sem var aldrei snert. Það eina sem ég gerði var að þurrka rykið af hillunni.“ Svar Magneu var að gefa bækurnar og selja bókahilluna. Í leit að einfaldara lífi

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.