Jökull - 01.12.1955, Page 25
1. mynd. Jökulheimar. Úlsýn suðveslur yfir Tungnadrbotna. Rati til vinstri.
Ljósm.: Oskar Sigvaldason.
Vatnajökulsför 1955
Eftir Jón Eyþórsson
Eftir að Skeiðarárhlaupið hófst, í júlímán.
1954, var flogið yfir vestanverðan Vatnajökul
nokkrum sinnum til þess að athuga verksum-
merkin. Ivom þá í ljós, að miklar breytingar
lröfðu orðið á Grímsvötnum. Jökulfillan í kvos-
inni hafði brotnað frá löndum og lækkað til
muna, og stórar sigdældir og niðurföll mynd-
azt hér og þar.
Ekki varð því við komið að gera ferð til
Grímsvatna á annan hátt að svo stöddu, en
stjórn Jöklarannsóknafélagsins ákvað að undir-
búa rannsóknaför þangað sumarið 1955. Var
leitað eftir samvinnu við franska vísindastofnun,
Expeditions Polaires Francaises, um þykktar-
mælingar á jöklinum í Grímsvötnum og um-
hverfi þeirra. Varð það úr, að Frakkar hétu að
lána tæki og sérfræðing okkur að kostnaðar-
lausu, ef við greiddum ferðakostnað og dvalar-
kostnað hans hér á landi. — Þá kom og upp sú
hugmynd að reisa skála í Tungnaárbotnum, og
voru þeir Guðmundur Jónasson og Árni Kjart-
ansson aðalhvatamenn þess.
Eftir miklar bollaleggingar og undirbúnings-
vinnu var ákveðið, að leiðangurinn skyldi leggja
upp á laugardag fyrir hvítasunnu, sem bar upp
á 28. maí, og skyldu verkefni hans vera þessi:
1. Að reisa skála í Tungnaárbotnum og fá
sjálfboðaliða til verksins undir forustu Árna
Ivjartanssonar.
2. Mæla jökulþykkt og ákomu (snjósöfnun) á
Grímsvatnasvæðinu og víðar á Vatnajökli, eftir
því sem tími entist. Tókst Sigurður Þórarins-
son á hendur stjórn þeirra rannsókna og ritar
sérstaklega um þær hér á eftir.
3. Jafnhliða skyldi efnt til skemmtiferðar í
snjóbíl og á skíðum um Vatnajökul undir farar-
stjórn Guðmundar Jónassonar. Var ráðgert að
sjálfboðaliðar við skálabyggingu tækju þátt í för-
inni og nokkrir fleiri, ef óskað yrði.
Alldjarflegar voru þessar ráðagerðir miðað við
fjárhag félagsins, en fyrir góðvild og örlæti
margra fyrirtækja og einstaklinga, sem leitað
var til, tókst að framkvæma fyrirhuguð verk að
flestu eða öllu leyti. Þykir hlýða, að Jökull
geymi stuttorða frásögn af leiðangrinum.
FERÐ í TUNGNAÁRBOTNA.
Lagt var upp frá Reykjavík laugardaginn fyrir
livítasunnu, 28. maí, um miðaftansbil. Sex bíl-
ar voru í förinni, hlaðnir timbri, ferðabúnaði
snjóbílum og benzíni. Var ekið sem leið liggur
inn að Elófsvaði á Tungnaá og komið þangað
kl. fjögur um nóttina. Veður hafði verið þurrt
og gott á leiðinni, en er nálgaðist Tungnaá,
skall á A-hvassviðri og rigning. Var áin í vexti
og hvítaroki enda lítt fýsileg yfirferðar. Bjugg-
ust leiðangursmenn því fyrir í tjöldum og bílum
og biðu átekta.
23