Jökull - 01.12.1955, Qupperneq 39
1. mynd.
Séð norður yfir Skaftár-
hlaup austan Fögrufjalla.
View towards N over the
jökulhlaup in Skaftá E of
Fögrufjöll .
Ljósm.: P. Hannesson
7. sept. 1955.
SIGURÐUR ÞORARINSSON OG SIGURJÓN RIST:
Skaftárhlaup í september 1955
Sunnudaginn 4. september 1955 barst frétta-
stofu Ríkisútvarpsins skeyti frá Húsavík þess
efnis, að þar hefði orðið vart brennisteinsfýlu
um morguninn. Var hún það megn, að Húsvík-
tngar tiildu, að hún myndi að líkindum stafa af
eldsumbrotum inni á hálendinu, en sunnanátt
var þennan dag, svo sem verið hafði löngum um
sumarið.
Við nánari eftirgrennslun kom í ljós, að
nokkurs brennisteinsþefs hafði orðið vart í
Eyjafirði Jíegar á laugardaginn hinn 3. sept.
og jafnvel eitthvað á föstudag 2. sept. Fyrri
hluta sunnudags 4. sept. var hún hvað megn-
ust á Akureyri og kom Jrá eins og í bylgjum
tneð SSA-átt. í Bárðardal var allmikil fýla á
laugardag, einkum suður í Svartárkoti, og upp-
lýsti Hörður Tryggvason, bóndi, að Jrar hefði
orðið vart fýlu af og til áður um sumarið.
Brennisteinsfýlu gætti einnig í Mývatnssveit
þessa sömu helgi.
Næstu dagana varð brennisteinsfýlunnar vart
af og til á áðurnefndum stöðum, og hinn 5.
sept. varð hennar einnig vart austur á Héraði.
Voru ýmsar getur um það, hvar upptakanna
væri að leita, og þótti líklegast, að fýlan stafaði
af vatni, er félli undan vestanverðum Vatna-
jökli, en ekki gaf veður til athugana úr lofti
þessa dagana. Áður en til kæmi, að flogið yrði,
barst sú fregn austan úr Skaftárdal, að Skaftá
hefði farið að vaxa laugardaginn 3. sept. og
orðið dökk og korguð og lagt af henni fúlan
fnyk. Þótti Jrá sýnt, að frá Skaftá myndi stafa
fýlan nyrðra.
Um þetta leyti var danskur landmælinga-
maður, P. Rump, staddur á Sveinstindi við
Langasjó, og var með honum E. Stolzenwald á
Hellu. Er þeir komu til byggða, sagði Stolzen-
wakl svo f’rá, að þeir félagar hefðu orðið varir
við fýlu þegar 1. sept., þó mjög lítið, en hún
liefði ágerzt mjög næstu dagana.
Guðmundur Jónasson, bílstjóri, og félagar
hans, sem komu í Tungnaárbotna á leið til
Vatnajökuls 2. sept., fundu þar megna jökla-
fýlu 3. sept. og virtist sem grænleit slikjumóða
væri yfir Tungnaárbotnum. Þeir fundu og f’ýl-
una af og til næstu daga, er þeir voru á Vatna-
jökli vestanverðum. Þess er og að geta, að Jón
Eyjxtrsson, er staddur var í Tungnaárbotnum
14. ágúst í ferð með Guðmundi Jónassyni, hafði
þá orð á því, að hann fyndi jöklafýlu.
Hinn 7. september fóru þeir Pálmi Hannes-
son, rektor, og Sigurður Þórarinsson í könnun-
arflug yfir Vatnajökul með Birni Pálssyni, flug-
manni, í sjúkraflugvcl hans. Var ferðin kostuð
af Rannsóknarráði ríkisins. Var fyrst flogið
austur um Landmannaafrétt og Veiðivatnasvæð-
ið til Sveinstinds við suðurenda Langasjós. Var
skyggni gott Jrar eystra. Þegar kom yfir Skaftá
austur af Sveinstindi tók jöklafýlu að leggja
upp í vélina, og ágerðist hún eftir því, sem
nær dró jöklinum. Áin var alldiikk að sjá og
greinilega korguð. Útfall jökulhlaupsins reynd-
37