Jökull


Jökull - 01.12.1977, Síða 80

Jökull - 01.12.1977, Síða 80
ÁGRIP SKAFTÁRHLAUP og orsakir þeirra Helgi Björnsson Raunvisindastofnun Háskólans Þrettán jökulhlaup hafa fallið í Skaftá síðan 1955. Upptök þeirra hafa verið við tvo sigkatla um 10 km norðvestan við Grímsvötn (Myncl 1 og 2). Sigurjón Rist hefur metið rennsli allra jökul- hlaupanna við Skaftárdal (Mynd 3). Rúmmál þeirra hefur verið frá 50 • 10® m3 til 250 • 106 m3. Heildarrúmmál hlaupvatns síðastliðin 22 ár hefur verið um 2.2 km3. Það vatnsmagn er heldur minna en rúmmál einstakra Grímsvatna- lilaupa undanfarna tvo áratugi. Höfundur telur að eldvirkni hafi ekki valdið þeim hlaupum, sem fallið liafa i Skaftá frá 1955. Mælingar á þykkt jökulsins í nágrenni sigkatl- anna benda ekki til þess að eldfjall hafi lilaðist þar upp. Athugun á jarðskjálftum í Vatnajökli benclir heldur ekki til þess að eldgos liafi orðið í Vatnajökli síðan gaus í Grímsvötnum 1934. Hins vegar telur höfundur, að hlaupin í Skaftá komi frá jarðhitasvæði þar sem bræðsluvatn safnast stöðugt í vatnsgeymi. Orsakir og eðli Skaftárhlaupa og Grímsvatnahlaupa eru því talin svipuð. Við eftirgrennslan hefur komið í Ijós, að jökulhlaup voru tíð í Skaftá fyrir 1955. Gisli Sigurðsson, bóndi á Búlandi í Skaftártungu, hefur tjáð höfundi, að jökulhlaup hafi fallið í Skaftá nærri hvert ár svo lengi sem hann man, þ. e. a.s. að minnsta kosti aftur að 1910. Flest jökulhlaupin fram að 1955 voru miklu smærri en hin síðari ár. Oftast voru hlaupin þá svo lítil og snögg, að Skaftá var væð hestunr daginn eftir að hlaup hófst. Hlaupunum fylgdi jökla- fýla. Sigurjón Pálsson, sem bjó á Söndum í Meðallandi, hefur einnig greint höfundi frá því, að á fyrri hluta þessarar aldar hafi jökulhlaup verið tíð í Kúðafljóti. Telur hann að hlaupin hafi komið úr Skaftá, og aldrei hafi liðið meir en þrjú til fjögur ár milli þess að hlaupa hafi orðið vart í Kúðafljóti. Stærsta jökulhlaupið fyrir 1955 kom í byrjun september 1938. Sandar stóðu á eyju í Kúðafljóti, og sótti heimilisfólk drykkjarvatn í Kúðafljót. Vatnið þótti hins veg- ar ódrekkandi meðan hlaup voru í fljótinu. Öll hlaup í Skaftá á þessari öld a. m. k. eru trúlega sama eðlis. Jarðhitasvæðið, sem hlaupin koma frá, er líklega angi úr hinu mikla jarð- hitasvæði Grímsvatna. Astæðan fyrir [iví að hlaupin hafa orðið stærri seinni hluta 20. aldar en fyrr á öldinni er annað hvort sú, að frá- rennsli liefur breyst frá jarðhitasvæði Gríms- vatna, eða að jarðhitavirkni hefur flutst til undir jöklinum. Heildarstyrkur jarðhitasvæðis- ins undir jöklinum virðist ekki hafa aukist. Árið 1783 féllu mörg jökulhlaup í Skaftá. Sigurður Þórarinsson (1974) telur líklegt, að eldvirkni hafi valdið þeim hlaupum, og eld- stöðvarnar hafi verið nærri þeim stað þar sem sigkatlarnir norðvestan við Grímsvötn eru nú. 78 JÖKULL 27. ÁR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.