Jökull


Jökull - 01.12.1977, Side 105

Jökull - 01.12.1977, Side 105
Mynd 2. Sigurbergur og Arni sonur lians á staðn- um þar sem ferðalangarn- ir lögðu á jökulinn árið 1926. Athyglisvert er, hve jökullinn hefur hörfað. fótum þeirra jökulbrekkan, sundurflakandi af hrikalegum gjám, þá Dyngjufjöll og vestan við hann Kistufell og Trölladyngja, til norðurs og norðausturs Dyngjufjöll, Vaðalda og Jökulsá á Fjöllum, „að ógleymdri hinni tignarlegu Herðu- breið, en í fjarska heiðalönd Norðurlands“. Er þeir höfðu farið 4 km frá tjaldstað, komu þeir að hrauni upp úr jöklinum. Þar lituðust þeir um og hlóðu vörðu á mel einum. Sú varða er sögð ófundin, en Unnar fullyrðir, að hann hafi séð hana úr háloftum, er hann flaug þar yfir 1945. Af melum þessurn hallaði enn niður um þriggja km leið, en þá kom að Dyngjujökli. Hann var sléttur fyrst í stað, og var ætlunin að halda líkri stefnu og áður, en þó norðlægari, og koma þá af Dyngjujökli fyrir vestan allar kvíslar Jökulsárútfallsins. En brátt mættu þeim krapablár og vatnsrennsli, svo að þeir breyttu stefnu til norðausturs, fóru eftir austurbrún Dyngjujökuls og höfðu þá jökulöldur til hægri handar. Handan þeirra alda voru Kverkfjöll, rauk úr hverum þar efra og þó mest úr einum, sem var efst í fjöllunum og virtist í jökli. Eftir 4 km leið með jökulbrúninni þraut jiikulöldurnar. Þá voru þeim orðin óbærileg þyngsli að sleðanum og afréðu að skilja hann eftir. Þar létu þeir einnig eftir hvílupokann, öll skíðin og ýmislegt fleira, sem þeir töldu ekki nauðsyn með að hafa. Tjald, hitunartæki, mat og fatnað tóku þeir í bagga á bak sér og gisk- uðu á, að hver baggi hafi verið um 30 pund að þyngd. Mælihjólið skildu jreir eftir, en þá liafði það mælt 70 km á jökli. Ivlukkan var að verða 4, er þeir lögðu af stað, og stefndu nú yfir Dyngjujökul í norðvestur til að komast fyrir útfall Jökulsár. Jökullinn var greiðfær, þótt lítils háttar kvíslar væru hér og þar, sem auðvelt var að stökkva yfir eða vaða. Af jöklinum sjá þeir, að hægt er að stytta sér leið með því að koma niður fyrir austan vest- ustu kvísl Jökulsárútfallsins og vaða hana, enda reyndist hún lygn og rúmlega í hné. Voru þeir rúma 3 tíma vestur íyrir útfall Jökulsár, frá því þeir skildu sleðann eftir, og komu þar kl. 7. Leiðina yfir Dyngjufjöll áætluðu þeir 12 krn, og hafði öll ferð þeirra á jökli þá verið 82 km. Fengu þeir sér nú vatn úr Jökulsá til kaffi- gerðar og róma mjög, hvílík dásemd það var að leggjast á mjúkan sandinn eftir þriggja daga og tveggja nátta hvílurúm á Vatnajökli. Klukkan 8 lögðu þeir enn af stað og stefndu nú til NNA, gengu yfir lítinn odda Ódáða- hrauns og síðan fínan sand og harðan. Klukkan 10 létu þeir staðar numið og breiddu tjaldið yfir gjótu í Ódáðahrauni. Þeir gátu ekki hitað sér kaffi, því að vatn var þar hvergi nærri. En vel sváfu þeir um nóttina á mjúkum sandi í botni gjótunnar. Þeim sýndist sem hraun þetta myndi mjög nýlega runnið og nefna það sem dæmi um nýleika ]>ess, hve óveðrað það var, svo að sokkar, sem þeir breiddu á það um kvöldið til þerris, voru fastgrónir við það um morguninn. JÖKULL 27. ÁR 103
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.