Jökull


Jökull - 01.12.1977, Page 107

Jökull - 01.12.1977, Page 107
þóttust sjá vel yfir. Sáu þeir nú enn greinilegar fell tvö, sem þeir höfðu áður réttilega nefnt Sellandafjall og Bláfell. Norður af þeim sá til Mývatns, en vestur af þeim Svartárvatn. Kl. hálftíu voru þeir komnir niður úr Dyngjufjöll- um. Þá seig á þá þreyta og svefnkennd öryggis- ms, og þeir fengu sér klukkutíma ltlund við lítið stöðuvatn. Síðan tóku þeir sér smáhvíldir, því að þeim sótti lúi, og einu sinni ráku þeir tungur sínar að stúti vasapelans. A háum og löngum sandmel vestan Dyngjufjalla sáu þeir í fjarska sauðkindur, og í sömu svipan rákust þeir á örendan haftirðil. Nú gengu jteir lengi um vatnslaust land. Kl. 4 sáu þeir loks vatns- poll í hraunhellu, og var hann þurrausinn, er þeir höfðu náð sér í kaffiketilinn. Þar fór síð- asta kaffibrauðið og sykrið. Kl. 6 komu þeir að upptökum Suðurár, fóru ekki þegar fyrir öll upptök hennar, og kostaði það hálfrar stundar töf, að þeir urðu að ganga til baka. Þegar þeir voru vissir um að hafa komist fyrir öll upptök, settust þeir niður og létu í sig síðasta nestis- bitann, svo að ekkert var eftir annað en kaffi og hafragrjón. Að svo búnu lögðu þeir upp í síðasta áfangann til byggða, og var klukkan þá hálfátta. Ekki höfðu þeir lengi gengið niður með ánni, er þeir sáu skammt frá götunni þrjá hesta í hafti, og þótti þeim ráð að láta ekki svo gott tækifæri sér úr greipum ganga. Gengu þeir til hestanna yfir fjalldrapa og víði vaxna heiði. Hestarnir nutu í makindum beitar á einum tjarnarbakka, en urðu allfelmtraðir, er að bar þessa útilegumenn. Hóst nú nokkur eltingar- leikur, sem lauk á þann veg, að tvífætlingar báru hærri hlut og settust á bak. Reiddi einn tjaldið, annar fatapokann og stangirnar, sem jjeir liöfðu með sem tjaldsúlur, en sá þriðji reiddi olíubrúsann og pottinn, og í hann höfðu þeir látið könnur og skeiðar. Ferðalöngum var mjög í mun að komast sem fyrst til bæjar og börðu ákaft fótastokkinn. En um leið og hest- arnir voru farnir að brokka, gerðist allur fóta- sláttur óþarfur, því að þá tók að hringla í könn- um og skeiðum í pottinum, og hestarnir þutu af stað og létu ekki staðar numið, fyrr en gadda- vírsgirðing ein sagði hingað og ekki lengra. Þá var skammt til bæjar að Svartárkoti, heftu ridd- arar reiðskjóta sína við girðinguna og gengu heim. Kl. var 10, en fólk gengið til náði í bæn- um, enda var húsfreyja ein heima með börnum þeirra hjóna, en Snæbjörn bóndi og vinnumað- ur hans lágu við í tjaldi inni í heiði við liey- skap. Vöktu þeir félagar upp á bænum, og veitti húsfreyja þeim skjótan og góðan beina, er hún hafði fréttir af ferðum þeirra, og tók vægt á því tiltæki, er þeir stálu hestum bónda. Miðvikudaginn 21. júlí voru þeir félagar vakt- ir kl. 8 með góðu kaffi, og þá hafði húsfreyja sent eftir bónda sínum. Það gekk á með smá- skúrum, en af og til sá til sólar. Bóndi var hinn alúðlegasti, þegar hann kom á vettvang, og bauð ferðamönnum til reiðu livað eina, er þeir töldu sig þarfnast. Mest lá þeim á hjarta að fá lánaða hesta til að komast sem fyrst á símstöð, svo að þeir gætu sent skeyti heim, en næsta símstöð var að Ljósavatni, en þangað var 6 tíma reið. Var það að ráði, að þeir fengu þrjá liesta lán- aða til þriggja daga, og kostaði hesturinn 5 kr. á dag. Voru hestar nú sóttir og járnaðir. Einn þeirra félaga hjálpaði til við járninguna, en hinir tveir sátu inni við sauma, annar staglaði í skó, en hinn rimpaði saman fatarifníur. Um leið og stigið var á bak, tilkynnti bóndi þeim, að hestum þessum mættu þeir ríða eins hart og þeir kæmust hvíldarlaust nótt með degi og sá væri siður þar í Bárðardalnum að slá í aftur- partinn, ef framparturinn vildi ekki áfram. Kl. hálfeitt lögðu þeir af stað frá Svartárkoti með þrjá hesta, tvo hnakka og eitt beisli. Hnakk og beisli fengu þeir að Víðikeri og þriðja beisl- ið að Bjarnastöðum. Riðu þeir nú allt hvað af tók út Bárðardalinn, komu að Hrappsstöðum og spurðu þar til vegar yfir Skjálfandafljót, að Ljósavatni kl. 6, sendu hraðskeyti heim, livíldu til kl. hálfátta og komu að Varðgjá kl. 12 á mið- nætti. Ekki varð þeim að ósk sinni að njóta útsýnis yfir Eyjafjörð af Vaðlaheiðarbrún, því að þoka lá yfir firðinum og láglendi. A Varðgjá varð Helgi eftir, og næsta dag fór hann út að Skipalóni til að hitta skólabróður sinn. En Unn- ar og Sigurbergur héldu áfram að Saurbæ í Eyjafirði, en þar var þá prestur Gunnar bróðir Unnars. Ráðgerðu þeir félagar að hittast næsta dag kl. 3—4 að Karólínu Rest á Akureyri. Kl. hálffjögur komu þeir Unnar og Sigurbergur að Saurbæ og höfðu þá farið einhesta 123 km á 15 klukkustundum. í Saurbæ var þá staddur dr. Heinrich Erkes, háskólabókavörður í Köln. Átta surnur liafði hann áður ferðast um hér á landi og hafði nú JÖKULL 27. ÁR 105
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.