Jökull - 01.12.1977, Page 114
urra annarra félagsmanna: Stefáns Bjarnasonar,
Magnúsar Hallgrímssonar, Guðmundar Sig-
valdasonar og Halldórs Ólafssonar, þvert yfir
landið nokkru fyrir páska í fyrra. Á haustfund-
inum 21. október fjölluðu Sigurjón Rist, Sig-
urður Þórarinsson, Helgi Björnsson og Magnús
Hallgrímsson um nýafstaðið Skeiðarárhlaup og
breytingar á Grímsvötnum samfara því. E. t. v.
er réttlætanlegt að tíunda eintiig með starfsemi
félagsins á þessu ári samsetningu þeirrar kvik-
myndar um rannsóknir á Vatnajökli, sem sýnd
var í sjónvarpinu 20. febrúar.
Ú tgdfustarfsemi
25. árgangur Jökuls er nú loks kominn út.
Er i þessu hefti mun rneira af íslensku efni en
í næstu árgöngum á undan. Næsti árgangur
Jökuls er langt til fullbúinn til prentunar. Með
jteim árgangi mun Sveinbjörn Björnsson láta
af ritstjórnarstörfum og þakka ég honum gott
starf um rnargra ára skeið. Bróðir hans, Helgi,
mun korna í ltans stað. Allar líkur eru svo á,
að samvinna verði bráðlega um útgáfu og efnis-
söfnun í Jökul við Jarðfræðafélagið, svo sem
fjallað var um á aðalfundi síðast, en ekki er þó
enn fyllilega gengið frá þessum málum. En vænt-
anlega verður breytingin m. a. til þess, að meira
verður en áður um efni í Jökli, sem læsilegt er
öllum Jtorra félagsmanna.
Fjárskortur er sem fyrr hjá félaginu og háir
ekki síst útgáfustarfseminni. Þess er að geta með
þökk, að fjárveiting hins opinbera var í ár 200
þúsund krónur.
Þess er að lokum að geta, sem gleðilegt er, að
félagatalan hefur nú komist yfir 500, mun vera
um 515.
Sparnaður er upphaf auðs - ASIS
Ávaxtið fé yðar i Laugavegi 13. - Sími 17707.
Búnaðarbanka fslands
1 1 2 JÖKULL 27. ÁR