Jökull - 01.12.1988, Blaðsíða 94
ATHUGASEMDIR OG VIÐAUKAR
SNÆFELLSJÖKULL
í bréfi 2. október 1987 frá Hallsteini Haraldssyni
kemur fram að nú eins og um nokkurt skeið varð
ekki komist að jökulísnum á Jökulhálsi til að mæla
og aðeins slegið á jaðar fannar við jökulsporðinn en
þessi fönn hefur rýmað undanfarin ár.
Hyrningsjökull skríður enn fram og hefur þó skriðið
mun meira til hliðanna að því er Hallsteini virðist.
DRANGAJÖKULL
Kaldalónsjökull — Athugasemd Indriða Aðalsteins-
sonar hljóðar svo: "Þó jökullinn hafi ekki hopað í
mælingalínu er þess að geta að í fyrra var mælt í
veggbrattan jökulkjamma, sem mjög hefur þynnst og
lækkað eins og raunar öll jökultungan neðan við Úf-
inn. Jökullinn að sjá úr Kaldalóni er allur svartur
orðinn og snjór síðasta vetrar alveg horfinn." Kafli
úr meðfylgjandi bréfi Indriða hljóðar svo: "...vetur-
inn enda góður, snjóléttur og samfelldar hlákur frá
áramótum til viku af mars. Þá gerði kuldakast, en
síðan voraði vel og um miðjan maí gerði hlýindatíð
sem um hásumar væri. Maí og júní voru of þurrir
fyrir grassprettu, þá viknaði varla í rót svo tún þurrk-
brunnu víða, en í júlíbyrjun rigndi vel með áfram-
haldandi hlýindum og veðurblíðu sem ekkert lát var
á til ágústloka. Hey því víðast mikil og góð.
Berjaspretta með fádæmum, mest bláber og aðal-
bláber, en krækiber oft viðlíka og héldust óskemmd
af frostum til 23. september. Berjafengur því mikill
og gerði það að gamni mínu að fylla pottinn af aðal-
bláberjum á um það bil einni mínútu.
Skjaldfönn fer ekki alveg nema haustið verði gott.
Þetta sumar fær hin bestu eftirmæli og gamlir menn
jafna því við sumarið 1939."
I bréfi 7. október getur Indriði þess að Skjaldfönn
hafi haldið velli, um eins metra þykkur skafl eftir
hulinn nýsnævi.
Reykjafjarðarjökull — Guðfinnur Jakobsson getur í
bréfi sínu um merkisatburð í sögu Homstranda. A
hvítasunnudag 1987 kom bíll í fyrsta sinn heim í
hlað á Reykjafirði og þá frekar tveir en einn og
höfðu þeir komið yfir Drangajökul. Árið áður hafði
fólk farið yfir jökulinn á snjóbíl og vélsleðum upp
frá Bæjum á Snæfjallaströnd norður yfir jökulinn í
Reykjafjörð. Þessum farartækjum var þó ekki fært
niður hlíðamar og gekk því fólkið síðasta spölinn.
Enn segir Guðfinnur frá bátsferð þeirra Indriða
Aðalsteinssonar frá Skjaldfönn o. fl. frá Reykjafirði
inn í Furufjörð þann 13. ágúst 1987. Þar veittu þeir
því athygli á miðjum firði að sjórinn var eins og
moldarflag á lit og það af þörungagróðri en ekki
jökulgormi. Hafði hvorugur þeirra séð nokkuð því
líkt áður. Datt þeim í hug að æðarungadauði, sem
þeir fréttu af hjá Kristni bónda Jónssyni á Dröngum,
gæti verið þessu að kenna.
Leirufjarðarjökull — I bréfi dags. 21. október 1987
með mælingaskýrslu segir Sólberg Jónsson: "Á mæl-
ingardag var smá snjóföl yfir jökul, en ég tel að hann
hafi verið orðinn auður u.þ.b. 40-50%, en fannir efst
t fjöllum voru aðeins minni en árið áður. Veturinn
var sérstaklega mildur og snjóléttur svo snjór var
með allra minnsta móti þegar ég kom í Leirufjörð í
maíbyrjun.
Vor og sumar var sérstaklega gott, samfelldar
stillur og stöðugt sólfar. Hret komu ekki, en rigning
og suðlægar áttir vom ekki svo jökulvatn varð ekki
mikið í sumar.
Tiðarfar í september og það sem af er október
hefur verið mjög stirt.
Nú eru liðin 100 ár síðan Þorvaldur Thoroddsen
mældi Drangajökul í Leimfirði og hefur jökullinn
hopað um 2314 metra á þessu tímabili." (Sjá
meðfylgjandi mynd.)
NORÐ URLANDSJÖKLAR
Hálsjökull — I athugasemd Þóris Haraldssonar kem-
ur fram að fyrir norðan hafi verið leiðinleg haust-
veður og snjór í fjöllum allan septembermánuð. Við
mælingu 3. október 1987 var 30 cm snjólag við jök-
ul. Jökulsporðurinn er orðinn talsvert skörðóttari en
verið hefur.
HOFSJÖKULL
Nauthagajökull — Jökullinn mjög blakkur af áfoki.
Múlajökull — Athugasemd Leifs Jónssonar um
Múlajökul V hljóðar svo: "Ámi Kristinsson gekk á
Hjartarfell 27. september 1986. Hann kvað hafa
92 JÖKULL, No. 38, 1988