Jökull

Ataaseq assigiiaat ilaat

Jökull - 01.12.1988, Qupperneq 106

Jökull - 01.12.1988, Qupperneq 106
1982. Gengið var frá Hoffelli inn Hoffellsdal, þaðan yfir Skyndidal, upp Múlaheiði utan í Sauðham- arstindi og niður að Jökulsá við Illakamb. Þaðan var haldið áfram um Kollumúla, Víðidal og yfir í Geit- hellnadal. Síðari hluti fundarins var helgaður nýja skálanum á Grímsfjalli. Jón Isdal sagði frá byggingunni í máli og myndum og flutningi skálans á Grímsfjall í vorferð félagsins. Öll sú ferð gekk með eindæmum vel eins og séð verður á kvikmynd sem hér verður sýnd á fundinum. Arshátíð var að þessu sinni haldin í veitingastaðn- um Norðurljósum 7.11.87. Stjómin leitaði aðstoðar Kvenfélags Grímsvatnahrepps, sem stofnað var við vígslu nýja skálans á Grímsfjalli. Lagði það til tvo í skemmtinefnd á móti öðrum tveimur sem stjómin kvaddi til. Veislustjóri var Bryndís Brandsdóttir og heiðursgcstur Sigurjón Rist. Skemmtunin tókst vel að vanda. VORFERÐIN 1987 (Ritari Margrét ísdal) Vorferð JÖRFI var að þessu sinni farin 17. - 27. júní. Tilgangur ferðarinnar var tvíþættur, að flytja nýjan skála á Grímsfjall og vinna að rannsóknum á Grímsvatnasvæðinu. Þátttakendur á vegum félagsins voru um 60, en leiðangrinum fylgdu margir á eigin vegum. Ferðin gekk í alla staði með eindæmum vel enda veður eins gott og hugsast getur. Farið var í ís- hellana á fyrstu dögum ferðarinnar en þann 26. júní höfðu þeir fallið saman. Lokið var við að ganga frá skálanum á Eystri Svíahnjúk þann 20. júní. Að því búnu var farin skemmtiferð á Öræfajökul og að Þumli í blíðskaparveðri. Einnig var farið í Kverk- fjöll til að kanna skemmdir á gluggum Kverkfjalla- skála, en rúður og hlerar höfðu brotnað, þar sem hugsunarlausir ferðalangar lokuðu ekki nægilega vel á eftir sér. Rannsóknarstörf gengu mjög vel og var eftirfar- andi verkefnum sinnt: 1. Mælt var vatnsborð í borholu á miðri íshellunni og reyndist það vera í 1374,5 m y.s. Pollur við Vatnshamar reyndist vera í 1379 m, og er ekki lengur hægt að treysta á vatnsborðsmælingu þar vegna aukins ísskriðs, sem lokar vökinni. Hæð á íshellunni við borstað var 1401 m y.s. og 1412 m y.s. við topp Naggs. Það gæti því tekið vatnsborð- ið 3 - 4 ár að ná þeirri hæð, sem algengust var þegar hljóp úr Vötnunum á árunum 1954-1982. 2. Vetrarafkoma í Grímsvötnum var mæld. Hún reyndist vera 4,78 m af snjó á miðri íshellunni, 5,17 m austan við Vötnin, en 4,75 og 4,21 m í tveim punktum norðan við þau. 3. Sýni til samsætumælinga voru tekin af snjó á yf- irborði jökulsins á 6 km bili frá Grímsfjalli að Hvannadalshnjúk. Borkjamasýni voru tekin úr tveim holum norðan við Vötnin, einni holu á miðri íshellunni og annarri holu austan við Vötn- in. 4. Sinnt var viðhaldi á rafstöð, mælitækjum og sendibúnaði. Utfellingar reyndust vera inni í kæli- búnaðinum og höfðu stíflað rör þar. Kælivökvinn var tekinn af, hreinsaður og settur á aftur. 5. Jarðskjálftamælir var í gangi á Vestari Svíahnúk 18. - 26. júní. Hann skráði tíðar íshreyfingar í Vötnunum og hlíðum Grímsfjalls ásamt jarðhræringum með lágri sveiflutíðni. Orsakir þeirra eru ekki ljósar, en vonandi verður hægt að staðsetja þær með hjálp mælisins á Eystra Svíahnúk, sem skráður er í Skaftafelli. Mælirinn skráði einnig sprengingar frá leiðangursmönnum við endurkastsmælingar á íshellunni. 6. Isþykkt var mæld með íssjánni í Grímsvötnum, á sjálfri íshellunni og austan við hana. Árangur var mjög góður og náðust mælingar á því svæði sem á vantaði til þess að unnt væri að ganga frá korti af Grímsvötnum, yfirborði jökulsins og ísþykkt. 7. Boruð var 250 m löng hola með bræðslubor á miðri íshellunni. Það nægði þó ekki til að komast í gegnum hana, en talið er að þykkt hellunnar sé nálægt 250 m. 8. Dýpt Vatnanna var mæld með endurkasts- mælingum. Boraðar voru 30 m djúpar holur með bræðslubor og dýnamit sprengt í þeim. Botn Vatnanna virðist vera nærri 1050 m y.s. Einnig var bergið undir Vötnunum kannað með bylgjubrotsmælingum. Loks var hljóðhraði í bergi undir vestanverðum Vatnajökli kannaður með stórum sprengingum. 104 JÖKULL, No. 38, 1988
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.