Jökull - 01.12.1999, Page 112
6. Könnun á skjálftavirkni á gosstöðvum og Loka-
hrygg
Færanlegum skjálftamælum var komið fyrir á svæð-
inu milli gosstöðvanna og Hamarsins og skráðu þeir
allmarga jarðskjálfta á meðan ferðin stóð yfir. Með
úrvinnslu mælingunum ætti að fást betri mynd af dýpi
og staðsetningu skjálfta sem verið hafa á svæðinu eftir
gosið.
7. Könnun á útbreiðslu gjósku úr gosinu í október
í fyrsta sinn gafst nú tækifæri til að kanna útbreiðslu
og þykkt nýfallinnar gjósku á hájökli. I því augnamiði
voru boraðar allmargar holur á norðvestanverðum
jöklinum með kjarnabor og sýni tekin af gjóskunni og
þykkt hennar mæld.
8. Þyngdarmœlingar á norðvestanverðum Vatnajökli
Til að kanna byggingu jarðskorpunnar á svæðinu
var bætt við allmörgum þyngdarmælingapunktum
á svæðinu kringum Skaftárkatla og gosstöðvarnar.
Gögnin nýtast til að skoða gerð eldstöðvanna Bárð-
arbungu, Grímsvatna og Lokahryggs.
9. Afkomumælingar
Vetrarafkoma í Grímsvötnum var mæld 9. júní og
reyndist hún 445 cm, og með vatnsgildi 2670 mm.
Vetrarafkoma var einnig mæld á Bárðarbungu 12. júní
og á Háubungu 10. júní. A Bárðarbungu var vetrar-
ákoman 405 cm með vatnsgildi 2040 mm. A Háu-
bungu var vetrarákoman 340 cm, vatnsgildið 1680
mm. Þessar tölur eru nærri meðallagi.
10. Mœling á vatnshœð Grímsvatna
Vatnshæð Grímsvatna var mæld með GPS tækjum
nokkrum sinnum í ferðinni. Var hún um 1369 m y.s.
og virtist hækka um nokkra sentímetra á dag. Flest
bendir til að leki úr Grímsvötnum hafi verið viðvar-
andi allt frá hlauplokum í nóvember 1996. Lægst fór
vatnsborðið í byrjun maí, eða í 1362 m y.s. Þann 19.
júní hafði það því risið um 7 m á 7 vikum. Enn vantaði
þó 21 m uppá að að vatnsborðið næði sömu hæð og
það var í 20. desember, sex vikum eftir stóra hlaupið.
11. Veðurstöðvar á Vatnajökli
Vitjað var um veðurstöðvar á jöklinum en þær tilheyra
samstarfsverkefni Raunvísindastofnunar og Lands-
virkjunar um tengsl veðurþátta og leysingar.
Heitavatnsborun í Grímsvötnum.
12. Rekstur mœlistöðvar á Grímsfjalli
Unnið var að viðhaldi og endurbótum á mælitækjum
vegna veðurathugana og skjálftamælinga en á Gríms-
fjalli eru nú tveir jarðskjálftamælar. Annars vegar
mælir Raunvísindastofnunar og og hins vegar mælir
Veðurstofunnar.
LOKAORÐ
Þau umbrot sem urðu haustið 1996 eru líklega þau
mestu sem orðið hafa í Vatnajökli á öldinni. Gosið nú
var meira en gosið 1938 og hlaupið sneggra. Við mat
á aðstæðum komu að ómetanlegu gagni öll þau gögn
sem safnað hefur verið í vorferðum síðastliðin 44 ár.
I vetur varð ljóst að mikið átak þyrfti að gera í rann-
sóknum til að hægt yrði að meta allar aðstæður upp
á nýtt. I samvinnu við Raunvísindastofnun Háskólans
tókst Jöklarannsóknafélaginu að skila miklu verki sem
ekki hefði verið kleift án atbeina hina mörgu sjálf-
boðaliða félagsins. Þeir lögðu sig alla fram eins og
berlega sést á afrakstri ferðarinnar. Landsvirkjun lagði
til snjóbíl og mann allan tímann og gegndi bfllinn lyk-
ilhlutverki í að flytja tæki og eldsneyti. Vegagerðin
styrkti leiðangurinn með framlagi til eldsneytiskaupa.
Flest verkefni sem unnið var að eru kostuð af sérstakri
fjárveitingu frá Alþingi til Raunvísindastofnunar.
110 JÖKULL, No. 47