Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Page 22
Helgarblað 10.–13. október 201422 Fréttir Erlent
Kim Jong-un finnur
fyrir „óþægindum“
n Hver er Kim Yo-jong? n Stundaði nám með bróður sínum í Sviss
Segja má að það hafi farið frekar lítið fyrir stjórnvöldum Norður-Kóreu undanfarna daga og vikur. Það þykir hafa dregið úr spennuástandi og
lítið hefur farið fyrir Kim Jong-un sem sagður er veikur og þreyttur, en til hans hefur ekki sést í rúmar fjórar vikur. Þess í stað hefur yngri systir
hans, Kim Yo-jong, tekið að sér embættisverkefni og mun hafa tekið við stjórnartaumum á meðan bróðir hennar er vant við látinn.
Þ
að er ekki margt sem vitað
er um Kim Yo-jong. Hún er
fædd í september 1987 og fór
til náms með bróður sínum
til Sviss árið 1996. Hún stundaði
nám við háskóla í Norður-Kóreu
eftir heimkomuna. Hún er yngst sjö
bræðra og systra, barna Kim Jong-
il, fyrrverandi leiðtoga Norður-
Kóreu. Fyrst birtist mynd af henni
opinberlega árið 2010 og þegar
faðir hennar lést árið 2011. Hún var
þegar byrjuð að starfa fyrir stjórn-
völd þegar faðir hennar var á lífi
og hefur síðan starfað fyrir bróður
sinn og með stjórnvöldum en kem-
ur sjaldan fram opinberlega.
Það var ekki fyrr en árið 2014
sem tilvist hennar var rædd opin-
berlega af stjórnvöldum þar í landi,
en þá fylgdi hún bróður sínum við
opinbera athöfn og tók þátt í kosn-
ingum á norðurkóreska þinginu.
Þótti þátttaka hennar í kosningun-
um gefa til kynna að verið væri að
undirbúa hana fyrir stærra hlut-
verk í stjórnsýslu Norður-Kóreu.
Hún er nú sögð vera háttsett innan
stjórnsýslunnar í Norður-Kóreu, þó
að lítið fari fyrir henni opinberlega.
Í fyrra bárust fréttir af því að
helstu aðstoðarmenn og sam-
starfsmenn Kim Jong-un hefðu
verið teknir af lífi og er talið að það
hafi flýtt fyrir framgangi hennar.
Margir telja að Kim Yo-jong muni
taka yfir hlutverk Kim Kyong-hui,
föðursystur sinnar, en sú síðar-
nefnda var afar náin Kim Jong-
un. Raunar er ekkert vitað um það
hvar Kim Kyong-hui er niðurkom-
in. Venjan er sú að greint er frá því
hvað verður um embættismenn
eins og hana og eiginmann hennar,
og hægri hönd Kim Jong-un, Jang
Sung-taek sem var tekinn af lífi,
öðrum til varnaðar. Það vekur því
athygli hversu lítið hefur verið sagt
um Kim Kyong-hui og afdrif henn-
ar. Hún hefur ekki sést opinberlega
frá því í september 2013. Talið er að
hún hafi annaðhvort látist eða flust
búferlum til Póllands.
Tekur hún við?
Þá eru einhverjir sem telja að Kim
Yo-jong muni jafnvel taka við
stjórnartaumunum af bróður sín-
um. Hún er eini embættismað-
urinn sem hefur fullan aðgang að
Kim Jong-un og getur hitt hann
þegar hún óskar þess. Þegar hún er
ekki beinlínis að leysa hann af þá
tekur hún þátt í öryggisskoðunum
og stefnumótun fyrir hann.
astasigrun@dv.is
Hver er hún?
Kim Yo-jong er yngsta dóttir
Kim Jong-il og fékk að að-
stoða hann meðan hann lifði
Þ
etta er ekki í fyrsta sinn sem
Kim Jong-un hverfur í lengri
eða skemmri tíma. Hann
er slæmur til heilsunnar og
þjáist hann meðal annars af þvag-
sýrugigt og sykursýki auk þess sem
hann hefur afar háan blóðþrýsting.
Hann er sagður vera mikill nautna-
seggur og drekki þar að auki stíft.
Hann hefur verið fyrirferðarmikill
bæði í heimspressunni og í heima-
landi sínu en óútskýrðar fjarvistir
hans vekja iðulega mikla athygli.
Þær þykja sérstaklega tortryggi-
legar nú, svo tortryggilegar raunar
að fjölmiðlar í Norður-Kóreu tóku
það sérstaklega fram á dögunum
að Kim Jong-un hefði sinnt emb-
ættisverkum þrátt fyrir að finna fyrir
„óþægindum.“ Það er afar sjaldgæft
að heilsa leiðtoga Norður-Kóreu sé
rædd opinberlega eða í fjölmiðlum,
hvað þá að látið sé að því liggja að
leiðtoginn sé ekki við fulla heilsu.
Árið 2012 hvarf Kim Jong-un í
tuttugu og fjóra daga og var talinn
af um tíma. Hann hefur að auki
nokkrum sinnum ekki sést opinber-
lega í tvær vikur í senn. Allt er þetta
talið tengjast slæmri heilsu hans. Á
dögunum var sýnd kvikmynd í ríkis-
sjónvarpinu í Norður-Kóreu þar sem
sást að hann átti erfitt með gang. „Þó
að heilsa hans sé kannski ekki upp á
tíu þá rígheldur hann enn í þau völd
sem hann hefur,“ segir Yang Moo-
jin, prófessor við Norður-Kóreu há-
skólann í Seúl í Suður Kóreu.
Hann og fleiri segja að ekki megi
lesa of mikið í fjarveru leiðtogans,
algengt sé að Vestur lönd og Suður-
Kórea gangi út frá því versta þegar
slíkt kemur upp.
astasigrun@dv.is
Hverfur oft
Er veikur og finnur fyrir „óþægindum“
Sigurvegari Kim Jong-un
reyndist vera sigurvegari
leiðtogakosninga í Norður-
Kóreu. Hann var raunar eini
frambjóðandinn en mikið
var gert úr 100 prósenta sigri
hans í fjölmiðlum þar í landi.