Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Qupperneq 36
Helgarblað 10.–13. október 201436 Neytendur
O
któber er Meistaramánuð-
ur hjá þúsundum Ís-
lendinga þar sem fólk
skorar sjálft sig á hólm
og setur sér heilsusam-
leg markmið af ýmsum toga. Mjög
margir setja sér það markmið að
vera duglegri í ræktinni, koma sér
í form og stór liður í því er að taka
mataræðið í gegn. Það felur þá í
sér að fólk snýr baki við skyndibit-
anum, gosi og sælgæti í von um að
ná markmiðum sínum. Allar líkur
eru á að þú komist ekki í gegnum
daginn á samfélagsmiðlum án þess
að rekast á hetjusögur einhverra úr
vinahópnum af því hversu dugleg-
ir þeir hafi verið. DV fór á stúfana
og athugaði hvort skyndibitastað-
ir og verslanir sem selja sælgæti og
gos í stórum stíl finni virkilega fyr-
ir höggi sem margur myndi ætla að
fylgdi þessu heilsuæði. Ef marka
má svör forsvarsmanna fyrirtækj-
anna þá virðist sem þeir sigli nokk-
uð lygnan sjó í gegnum Meist-
aramánuð þó einhverjir veiti því
athygli að heilsusamlegri kostir
verði frekar fyrir valinu.
Grænmetisborgarar seljast
grimmt
„Við seljum fleiri grænmetis-
borgara núna en áður, að öðru
leyti er ástandið óbreytt,“ seg-
ir Tómas Andrés Tómasson, eig-
andi Hamborgarabúllu Tómasar,
en hamborgararnir hans Tomma
hafa um árabil notið mikilla vin-
sælda. Tómas hefur áður lýst því
yfir að hann hafi borðað ham-
borgara á dag í tíu ár og lítur ekki
á þennan vinsæla skyndibita sem
meira óhollustufæði en margt ann-
að. Hamborgarar, franskar og gos
sem jafnan er órjúfanlegur hluti af
hamborgaramáltíð er þó nokkuð
sem margir neita sér um þegar þeir
reyna að tálga af sér aukakílóin.
Selja meira en oft áður
Annar vinsæll hamborgarastað-
ur hefur ekki heldur fundið fyr-
ir samdrætti á sölu vegna Meist-
aramánaðar, þvert á móti segir Jón
Garðar Ögmundsson hjá Metro að
fólk sé að kaupa meira ef eitthvað
er. „Hann hefur ekki haft áhrif á
okkur samanborið við árið í fyrra.
Svipaður fjöldi viðskiptavina hefur
heimsótt okkur og kaupir svipað,
eða örlítið meira, en í fyrra.“
Fleiri staðir verða þó varir við
að hollari valkostir á matseðlinum
verði frekar fyrir valinu í október
en ella. Helgi Guðmundsson hjá
Hlölla bátum segir að þar á bæ
finni menn ekki fyrir neinum sam-
drætti. „En sala á hollusturéttum
hefur þó aukist.“
Aukning í lífrænum vörum
En hvað með stóru matvöruversl-
anirnar? Fólk er kannski ekki að
leyfa sér skyndibita á hverjum
degi en eitt er víst að flestir þurfa
að gera sér ferð í matvöruverslun
að minnsta kosti einu sinni í viku.
Gos og sælgæti ratar oft í innkaupa-
kerruna hjá fólki þegar það kaupir
inn fyrir heimilið. DV spurðist fyr-
ir um það hjá Hagkaupum, Bón-
us og Krónunni hvort þar yrði vart
minni sölu á gosi og sælgæti í byrj-
un Meistaramánaðarins mikla.
Guðmundur Marteinsson,
framkvæmdastjóri Bónus, seg-
ir að þar á bæ hafi þau ekki fund-
ið fyrir niðursveiflu í sölu sætinda.
„En sjáum hvað setur þegar líður á
mánuðinn.“ Gunnar Ingi Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Hagkaupa,
segir að það sem mesta athygli hafi
vakið þegar litið var yfir sölu í kjöl-
far fyrirspurnar DV væri aukning í
sölu á lífrænum vörum.
„Það er einhver aukning í holl-
ari vöruflokkum, og sætindin að-
eins til baka en þó ekki mikið. Það
sem vakti athygli okkar er að líf-
rænar vörur hafa tekið töluvert við
sér milli mánaða.“ Hann segir þó að
skýrari mynd muni líklega fást að
október liðnum.
Forsvarsmenn Krónunnar hafa
ekki orðið varir við breytingar í
neyslumynstri viðskiptavina sinna,
í það minnsta eru þær ekki komn-
ar sérstaklega í ljós vegna Meistara-
mánaðar.
Hollustan vinsæl við kassana
Kristinn Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Krónunnar, tekur þó
undir með Gunnari Inga varðandi
aukningu í sölu á lífrænum vörum.
„Við höfum verið að leggja mikla
áherslu á lífrænar vörur og heilsu
allt árið í kring, höfum séð góð-
an árangur í þeim vöruflokkum.
Sala á ávöxtum og grænmeti hef-
ur verið að aukast hjá okkur líka
allt árið.“ Þá bendir hann á að til-
raunir hafi verið gerðar með rekka
við afgreiðslukassana í verslun-
um Krónunnar á Granda og Bílds-
höfða, þar sem til skiptis er sæl-
gæti og heimilisvörur við einn
kassa og svo heilsa og hollusta á
hinum. „Þetta er að reynast okkur
afar vel, heilsan og hollustan er að
koma sterk inn hjá okkur.“ n
Heilsuæðið bítur
ekki á skyndibitann
n Meistaramánuður bitnar ekki á skyndibitastöðum n Sælgæti og gos heldur velli
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Sér ekki högg á vatni Þó að svo geti virst að allir nema þú séu að taka líf sitt í gegn í tilefni Meistaramánaðar, af samfélagsmiðlum að
dæma, þá segja forsvarsmenn skyndibitastaða og verslana að ekki gæti samdráttar í sölu.
Anna eftirspurn en skortir pláss í verslunum
Mikil söluaukning hjá Örnu nú þegar neytendur sniðganga MS í auknum mæli
V
ið erum auðvitað ekki með
mikið pláss í hillunum og það
klárast fljótt úr þeim og þá er
bara vöntun. Það er vanda-
málið sem við erum að glíma við núna
að við erum ekki með nóg pláss í hill-
um verslananna,“ segir Hálfdán Ósk-
arsson, framkvæmdastjóri og einn
eigenda Örnu í Bolungarvík. Arna
sérhæfir sig í framleiðslu á laktósafrí-
um mjólkurvörum en fyrirtækið hefur
fundið fyrir miklum meðbyr undan-
farna daga þar sem fólk sniðgengur
í auknum mæli vörur Mjólkursam-
sölunnar (MS). Eins og fjallað var ítar-
lega um í þriðjudagsblaði DV þá hef-
ur MS mikla yfirburði hvað hillupláss
í verslunum varðar auk þess sem fyr-
irtækið teiknar upp mjólkurkælana
sjálft með sérstöku forriti.
Hálfdán segir að salan hafi aukist
mikið á skömmum tíma en fyrirtæk-
ið anni eftirspurn ennþá. „Við önnum
þessu en það er mikil vöntun, við gæt-
um selt meira, ég er alveg klár á því.“
Hálfdán segir að þegar salan auk-
ist svona mikið á skömmum tíma þá
taki það auðvitað smá tíma að aðlag-
ast því og komast í rútínu. „En við get-
um framleitt alveg heilmikið af mjólk,
það á ekki að vera neitt vandamál.“
MS er með 95% markaðshlutdeild
á mjólkurvörumarkaði og þessi ein-
okunarstaða endurspeglast vel í því
plássi sem vörur fyrirtækisins taka
í mjólkurkælum verslana. Minni
keppinautar þurfa að berjast fyrir
sínu plássi og sífellt að vera á tánum.
„Það eru eilíf slagsmál í þessum
mjólkurkælum. Við fáum kannski út-
hlutað einhverju smáplássi og svo
koma MS-menn og ýta okkar vöru inn
fyrir og setja sitt fyrir framan. Þeir eru
mjög öflugir í þessum kælum og eru
alltaf á ferðinni, ólíkt okkur, við höf-
um ekki tök á því.“
Hálfdán segir að MS passi sitt
pláss en svo sé fyrirkomulagið þannig
í stórmörkuðum að fyrirtæki þurfi að
sjá um sínar vörur sjálfir í kælunum.
MS er með fjölda starfsmanna í vinnu
við að sjá um kælana en minni fyr-
irtæki hafa ekki bolmagn í slíkt. „Við
getum ekki verið oft á dag í einni búð,“
segir Hálfdán.
Það vakti athygli í úttekt DV í vik-
unni að mjólkin frá Örnu hafði klárast
í verslun Krónunnar á Granda og þess
í stað var kominn vagn með Mysu
frá MS í pláss fyrirtækisins. „Þeir eru
fljótir að fylla á ef það losnar plássið
okkar,“ segir Hálfdán um þetta.
Ólafur Magnússon, eigandi Kú,
gagnrýndi harðlega að MS fengi að
teikna upp kælana með Spaceman-
forritinu sem meðal annars er hugsað
til að hafa áhrif á kauphegðun neyt-
enda. Talaði hann um að það ætti að
banna þetta. Hálfdán segir vissulega
skrýtið að MS sé að stjórna hvaða vör-
ur séu inni í búðunum og hvar þær
eru. „Þeir teikna væntanlega upp fyrir
sínar vörur. Þeir eru ekkert að hugsa
um okkur. Svo er það undir verslun-
armönnum komið hvort þeir sam-
þykki þetta svona, myndi ég halda.
MS gengur eins langt og þeir kom-
ast auðvitað. Ef þeir fá að teikna upp
kælana í búðinni þá gera þeir það. Við
þurfum að berjast fyrir okkar því þeir
eru djöfull frekir að ýta okkur til hlið-
ar og þá er það undir verslunarmönn-
um komið hvort þeir passi upp á okk-
ur og ég veit að þessa dagana eru þeir
að því. Þeir hafa verið okkur hliðholl-
ir í búðunum og eru það enn frekar
þessa dagana.“ n
mikael@dv.is
Eilíf barátta í mjólkurkælunum
Hálfdán Óskarsson, einn eigenda Örnu í
Bolungarvík, segir að fyrirtækið geti framleitt
heilmikið af mjólk. Vandamálið sé bara að þeir
fá ekki nóg pláss í kælum sem MS teiknar upp.
„Svipaður fjöldi
viðskiptavina
hefur heimsótt okkur og
kaupir svipað, eða örlítið
meira, en í fyrra.
Sælgætið siglir lygnan sjó Það er
nauðsynlegt að fólk neiti sér um sælgæti og
gos þegar kemur að því að taka mataræðið
í gegn og tálga af sér aukakílóin. Kaupmenn
finna þó ekki fyrir því að sala hafi minnkað.
Hollari valkostir seljast betur Tómas
á Búllunni segir að ástandið þar sé óbreytt
þrátt fyrir Meistaramánuð þótt grænmetis-
borgarar seljist nú betur en áður.