Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Qupperneq 46
46 Menning Helgarblað 10.–13. október 2014
Þ
að er kannski óþarfi að kynna
Yoko Ono; hún er gjörninga-
listakona, óhljóðasmiður,
pólitískur aðgerðasinni og
eiginkona Bítils. Frá árinu
2007 hefur hún heimsótt Ísland árlega
til að tendra listaverk sitt, Imagine
Peace Tower. Friðarsúlan í Við-
ey beinir ljósgeisla upp í reykvískan
hausthimininn frá 9. október –
fæðingardegi Johns Lennon – og til 8.
desember – dagsins þegar Mark David
Chapman skaut hann til bana fyrir
utan heimili hjónanna í New York árið
1980. Frá dauða Lennons hefur Ono
verið einn mest áberandi málsvari
friðar og ástar í heiminum, en á sama
tíma hefur hún ítrekað staðið í vegi
fyrir því að Chapman fái reynslulausn
úr fangelsi. Hann situr enn inni tæp-
um 34 árum eftir morðið. Á miðviku-
dag milli klukkan 13.40 og 13.50 á átt-
undu hæði Nordica Hotels fékk ég
– í tilefni að afhendingu Ono-Lennon
friðarverðlaunanna daginn eftir – að
spyrja Yoko Ono um friðarsúluna, ást
og tímann sem það tekur að fyrirgefa
morðingja. Eftirfarandi er íslensk þýð-
ing af orðaskiptum okkar Yoko.
Hæ. Heiður að fá að hitta þig.
Sömuleiðis.
Jæja. Ég vil byrja á því að spyrja, af
hverju fannst þér Ísland hentugur
staður fyrir friðarsúluna?
Þetta er nyrsta landið á
heimskortinu. Norðrið er viska og hér
viljum við skapa visku sem við getum
sent út til heimsins. En hér er ekki
einungis viska, heldur líka orka. Þetta
land býr yfir gríðarlegri orku. Þú hefur
kannski ekki tekið eftir því.
Þannig að það er landafræðileg lega
Íslands, frekar en stjórnmálin … Fólk
víða um heim sér súluna sem tákn um
frið og íslensk stjórnvöld vilja kynna
Ísland sem land friðar og nýta sér
þannig súluna, held ég, til að styrkja þá
ímynd. En fyrr í vikunni tilkynnti ut-
anríkisráðherra að við myndum taka
siðferðislega afstöðu með loftárásum
í Írak og Sýrland og á sama tíma tök-
um við við mjög fáum flóttamönnum
frá Sýrlandi. Finnst þér óþægilegt að …
Nei, nei. Ég skal segja þér hvernig
þetta er. Ég held að við verðum að vera
þolinmóð og leyfa fólki að taka sér
tíma. Tökum dæmi af fimm ára barni
sem getur ekki hlaupið hratt, en þú
segir: „hei, hlauptu nú hraðar.“ Þetta
á maður ekki að gera. Maður gefur sér
tíma og segir barninu að það sé í lagi
að taka sér sinn tima. Þannig er það
með allt. Þetta land er að gera ýmis-
legt fallegt. Í staðinn fyrir að spyrja,
þegar það er að gera svo marga fal-
lega hluti, hvað með þetta og hitt? Það
er ekki sanngjarnt. Við erum öll bara
mannverur.
Ókei. Ég held að þetta tengist annarri
spurnig um eðli friðarins. Mig langar
að spyrja þig um skilgreiningu þína á
friði. Hvort friður sé eitthvað annað en
bara kyrrlátt ástand, en í slíku ástandi
getur kúgun auðvitað átt sér stað. Til
dæmis eigum við Íslendingar hlut að
máli þar sem við framleiðum ál sem
er notað til að búa til vopn sem er
síðan kannski beitt til að halda
fólk niðri einhvers staðar í heim-
inum …
Ég held að það sem við köll-
um frið sé það þegar við meið-
um ekki hvert annað. Núna
erum við að meiða hvert
annað, nánast alltaf vegna
peninga. Það er hræði-
legt að manneskjur
geri það. En þegar við
hugsum um þetta
hugsar hvert okkar:
„þetta kemur aldrei
fyrir mig,“ og svo
höldum við bara áfram
að reyna að eignast pen-
ing. En núna, fyrir tilstilli tölvunnar,
vitum við að þetta getur komið fyr-
ir okkur líka. Við lifum á tölvuöld svo
við getum skilið hvert ann-
að svo fljótt. „Je minn,
þetta gæti komið fyrir
mig!“ Þess vegna er
fólk byrjað að krefj-
ast heimsfriðar, og
mun fá hann!
Ég vona það svo
sannarlega
Ég líka.
Það sem ég er að
reyna að spyrja
er … Það er auð-
velt fyrir okkur
Íslendinga að
vilja frið þegar
við þurfum í raun ekki að deila við
neinn, við erum svo langt í burtu, en
við tökum engu að síður þátt í kerfi
sem …
Æ. Ekki hugsa þannig. Ekki gagn-
rýna það hversu einangrað landið er.
Það er það vissulega, en allt er lán í
óláni. Það felst ákveðið lán í því hversu
einangrað landið er. Fólk er farið að
stunda hugleiðslu og vill virkilega líta
inn á við. En heimurinn býður ekki
upp á það, hann er hávaðasamur
og svo framvegis, en hérna höfum
við stað þar sem fólk getur komið og
íhugað. Fólk getur litið inn á við og
svo farið aftur til síns háværa heima-
lands. En að eiga þetta er mikilvægt,
þetta er í raun það sem þið eruð að
gefa heiminum.
Hvaða áhrif telur þú að listaverk á
borð við friðarsúluna geti haft? Ég
spyr vegna þess að nú hefur farið fram
umræða um það í borgarráði. Svein-
björg Birna Sveinbjörnsdóttir borgar-
fulltrúi spurði hvað súlan kostaði ár-
lega, og gagnrýndi raunar Jón Gnarr
fyrir að taka við verðlaununum vegna
þess að hann hafði verið borgarstjóri.
Hvað myndir þú segja við fólk sem
gagnrýnir kostnað við listaverk á borð
við þetta?
Þessi spurning á við um hvert ein-
asta listaverk, listaverk kosta pening.
En þið eruð ekki að borga mér fyrir
þetta verk, þetta er bara kostnaðurinn
við að halda því gangandi. Þess vegna
er það ekki jafn mikið og ef þið hefð-
uð þurft að borga listamanni háar
fjárhæðir fyrir að búa það til. Þegar
það var gert lagði ég út helming fjár-
hæðarinnar á móti borginni. Mér
fannst það mjög mikilvægt, margir
listamenn þurfa að hafa áhyggj-
ur af fjárhagslegum gróða, en
ég gerði það ekki.
Önnur spurning sem mig
langar að spyrja, nánast
heimspekileg, er um eðli ást-
arinnar. Því það er hlutur sem
þú hefur predikað …
Það er líklega erfiðari spurning,
því hún snýst ekki peninga. Ást er
orka, orkan til að hreyfa hluti, skapa
hluti, uppgötva hluti. Ástin er mjög
mikilvæg. Heimurinn er svo slæmur
að helsta tilfinningin okkar er ekki ást,
heldur ótti, en við verðum að breyta
honum í ást.
En telur þú ekki að ást … Annað mál-
efni sem er í deiglunni hér eru inn-
flytjendamál, útlendingaótti og kyn-
þáttahatur. Stundum velti
ég því fyrir mér hvort
útlendingaóttinn,
það að hræðast
þá sem koma
að utan, sé
ekki afleiðing
af ást, það er
ást sem bein-
ist einungis
að lokuðum
og takmörk-
uðum hópi
fólks.
Sjálfs-
ást!
Já, mögulega …
Fyrst þurfum við að elska okkur
sjálf. Því flest fólk í heiminum er al-
gjörlega gagntekið af sjálfu sér, og það
ert þú líka …
Að sjálfsögðu.
Þú segir: „við erum ekki að gera
hlutina rétt,“ en gefðu þér bara tíma.
All í lagi, hlutirnir taka tíma … Annað
hugtak sem er náttúrlega nátengt þess-
um stóru málum á borð við ást og frið
er fyrirgefningin …
Hvað segir þú?
Fyrirgefningin.
Ó já. Hún er mjög erfið.
Auðvitað, hún er líklega erfiðasta
athöfn ástarinnar, að ég held. En er
friður mögulegur án þess að fólk fyrir-
gefi hvert öðru?
Já, allt í lagi … Áður en við fyrirgef-
um einhverjum verðum við að fyrir-
gefa okkur sjálfum og það er mjög
erfitt. Við erum öll sek, við upplifum
okkur sek. Svo fyrst þarf maður að
segja: mér þykir þetta leitt, fyrirgefðu,
ég elska þig og þakka þér. Öll þessi orð
eru gríðarlega sterk og gríðarlega mik-
ilvæg. Gerðu þetta í eitt ár og sjáðu
hvað gerist.
Aðstoðarmaður Yoko Ono: Það er
bara tími fyrir eina spurningu í við-
bót, er það í lagi? Því það er fullt af …
En það er mjög mikilvægt að þú
spyrjir um fyrirgefninguna. Ef þú ert
að velta fyrir þér af hverju ég fyrirgefi
ekki Chapman … Jæja. Þú verður að
gefa mér tíma.
En munt þú nokkurn tímann geta
fyrir gefið slíkan verknað? Hversu
langur tími er nægur tími?
Varðandi Chapman, held ég að
það sem ég hafi mestar áhyggjar af er
hvort hann muni gera eitthvað svipað
við aðra þegar hann kemur út. En líka
hvort aðrir munu gera eitthvað svip-
að við hann. Því þetta er karma, þú
veist. Þetta er það sem ég hef áhyggjur
af. Ég vil bíða með að kveða upp dóm
um mína fyrirgefningu þar til síðast.
Ekki bara segja: hei, ég get fyrirgefið,
svo við skulum bara … því að í þessu
ákveðna tilviki verð ég að hugsa um
annað fólk líka.
Ókei?
Ókei. n
n Yoko Ono svarar spurningum um Sveinbjörgu, friðarímynd Íslands og Mark Chapman
Ást, friður og tíminn sem það
tekur að fyrirgefa morðingja
Allt tekur tíma Yoko
Ono útskýrir fyrir blaða-
manni að breytingar taki
langan tíma og maður
þurfi að vera þolinmóður
í biðinni eftir betri heimi.
Mynd Sigtryggur Ari
Kristján guðjónsson
kristjan@dv.is
Fyrirgefningin er erfið
Yoko Ono hefur áhyggjur af því
að morðingi Lennons endur-
taki ódæðið eða verði sjálfur
fyrir árás. Mynd Sigtryggur Ari