Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Síða 4
Vikublað 14.–16. október 20144 Fréttir Árneshreppur á Ströndum auglýsir Rekstraraðili óskast að Kaffi Norðurfirði sumarið 2015. Umsóknir sendist á arneshreppur@simnet.is og nánari upplýsingar fást í síma 451 4001. Leynikjallari Sævars í Leonard U m 193 fermetra vantar inn í fasteignamat á einbýlis­ húsi Sævars Jónssonar, fyrrverandi knattspyrn­ umanns og stofnanda skartgripa­ og úraverslunarinnar Leonard. Samkvæmt gildandi fast­ eignamati er húsið 469,9 fermetr­ ar. Séu hins vegar teikningar af húsi hans skoðaðar kemur í ljós að nær allan tæplega tvö hundruð fermetra kjallari hússins vantar inn í fast­ eignamatið. Talsverðir fjármunir sparast ár hvert við það að hafa kjallarann ekki í fasteignamati en ætla mætti að fasteignagjöld væru ríflega hundrað þúsundum króna hærri á ársgrundvelli ef kjallar­ inn væri tekinn með í reikninginn. Fasteignamat hússins er samkvæmt gildandi skráningu 102 milljónir króna. Kjallarinn óuppfylltur í nýjum teikningum Fyrsta teikning hússins sem lögð var fyrir byggingafulltrúa Garða­ bæjar var samþykkt þann 24. júlí árið 2008. Samkvæmt þeirri teikn­ ingu er birt flatarmál bílakjallara og íbúðar samtals 662,8 fermetrar, þar af er bílakjallarinn 186,9 fermetrar. Þann 8. september sama ár voru hins vegar lagðar fram nýjar teikn­ ingar af húsinu. Í þeim teikningum er búið að grálita nær allan kjall­ arann – fyrir utan tæknirými – og rýmið sagt „óuppfyllt“. Í fullri notkun Samkvæmt fyrstu teikningum af húsinu átti bróðurpartur kjallarans að fara undir bílakjallara, um 125 fermetrar. Auk þessa vantar þó í nú­ verandi og gildandi teikningar vín­ kjallara upp á sjö fermetra, forrými upp á tólf fermetra, fimm fermetra bað og að lokum 28 fermetra óskil­ greint herbergi. Öll þessi rými eru ekki tekin með í fasteignamati á húsinu. Ljóst er að kjallarinn um­ ræddi er í fullri notkun, gluggatjöld eru í óskilgreinda herberginu og bíl­ um ávallt lagt í kjallarann. Ítrekað kennitöluflakk Húsið stendur við Mosprýði 10 í Garðabæ og er það nýbyggt, var reist árið 2011. Húsið er þó ekki skráð á Sævar sjálfan heldur á eigin­ konu hans en Sævar er ekki skráð­ ur til heimilis á Íslandi. Lögheimili hans er í dag í Sviss. Helsta skýringin á þessu er að hann var persónulega úrskurðaður gjaldþrota árið 2009. Í því gjaldþroti missti hann hús fjöl­ skyldunnar við Súlunes 16 á nauð­ ungaruppboði hjá Arion banka. Fyrirtækið sem fjölskyldan byggir bróðurpart auðs síns á, Leonard, skráði Sævar á eiginkonu sína. Frá því að Sævar var úrskurðaður gjald­ þrota hefur tvisvar verið skipt um kennitölu á Leonard. Í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu á sínum tíma kom fram að skuldir Leonard næmu 312 milljónum króna meðan engar eignir voru eftir í félaginu. Vandamálið hjá yfirvöldum Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala, leggur áherslu á í samtali við DV að mikilvægt sé að byggingafulltrúar sveitarfélaga fylgist með því að réttur fjöldi fer­ metra sé gefinn upp. „Auðvitað er ábyrgðin líka hjá byggingaryfirvöld­ um, að þegar hús eru tekin út að þau séu rétt skráð miðað við það rými sem er í notkun,“ segir Ingibjörg. Hún bendir á að íbúðarhúsnæði geti tekið breytingum í tímans rás og því verði byggingafulltrúar að hafa virkt eftirlit. „Að stærstum hluta liggur vandamálið hjá yfirvöldum,“ segir Ingibjörg. Gæti átt sér eðlilegar skýringar Ingibjörg segir að það geti átt sér eðlilegar skýringa að fermetra vanti í fasteignamat. „Já, ef þetta er óupp­ fyllt, þá getur þetta verið hrár kjall­ ari sem er óinnréttaður. Stundum getur það verið þannig, ég veit um dæmi þar sem kjallarar eru al­ veg hráir og óeinangraðir. Það þarf að vita hvernig ástandið er innan­ dyra. Óuppfyllt rými þýðir annað­ hvort að það sé fyllt með jarðefnum eða að það sé bara hrátt og ónotað. En í svona tilvikum þar sem um er að ræða hús sem er svona nýtt þá þurfa yfirvöld að taka húsið út. Þeir hljóta að sjá hvort húsið sé öðruvísi en raunteikningar segja til um,“ seg­ ir Ingibjörg. n Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is n Nærri 200 fermetra vantar í fasteignamat n Vínherbergi og bílakjallari Fimm ár fyrir tilraun til manndráps Daníel Andri Kristjánsson var á mánudagsmorgun dæmdur til 5 ára fangelsisvistar vegna tilraun­ ar til manndráps. Árásin átti sér stað aðfaranótt 5. júlí síðastliðinn á heimili Daníels og þáverandi unnustu hans í Grafarholti. Dan­ íel Andri réðst á unnustu sína, sló hana, hrinti henni og stakk hana með hnífi svo hún hlaut meðal annars stungusár á hnakka og kvið. Gæsluvarðhald sem Daníel Andri sætti dregst frá refsingunni en hann var ekki viðstaddur dómsuppsögu. Í ákæruskjali kom fram að Daníel Andri hafi hrint konunni svo hún féll við, sparkað í andlit hennar meðan hún lá og slegið hana í andlitið. Þá stakk hana hana þremur stungum með hnífi í hnakka, háls og kvið. Í ákærunni kemur fram að konan hafi fengið djúpt sár aftan á hnakka, stungusár á háls og djúpt sár á kvið svo rifa kom á nýra. Þá rifnaði vör hennar í sundur, tönn brotnaði og hún fékk fleiðursár á annað auga. Konan var í tvær vik­ ur á spítala eftir árásina. „Auðvitað er ábyrgðin líka hjá byggingaryfirvöldum, að þegar hús eru tekin út að þau séu rétt skráð mið- að við það rými sem er í notkun. Færir út kvíarnar og ákærður fyrir skilasvik Fyrr á þessu ári var Sævar ákærður fyrir skilasvik af sérstökum saksóknara. Skila- svikin sem Sævar er ákærður fyrir snúast um orlofshús í Flórída í Bandaríkjunum en hann er sakaður um að hafa komið eigninni undan áður en hann varð gjald- þrota. Samkvæmt ákæru afsalaði hann húsinu til svissneska félagsins ii Luxury International AG fyrir alls tíu Bandaríkja- dali, tæplega 1.200 krónur. Er skiptastjóri leitaði skýringa á þessum gjörningi Sæv- ars bar hann fyrir sig þá skýringu að um væri að ræða skuldauppgjör við Indverja að nafni Nand Kumar Kurup. Svo vill til að Kurup er skráður eigandi eignarhalds- félags verslunarinnar Galleria Reykjavík við Laugaveg 77. Framkvæmdastjóri Leonard upplýsti DV fyrr á þessu ári um að búðin væri alfarið á vegum Sævars. Glæsihýsi Glæsilegt útsýni er úr húsinu yfir Garðahraun. Fasteignamat þess er samkvæmt núverandi skráningu rúmlega 100 milljónir króna. Fyrir neðan stofuglugga má sjá glugga óskilgreinda herbergisins. Mynd SiGtryGGur AriAngaði af kannabis Mikil kannabislykt gaus upp þegar ökumaður, sem lögreglumenn á Suðurnesjum höfðu stöðvað um helgina, opnaði bifreið sína. Sjálfur bar ökumaðurinn glögg merki fíkniefnaneyslu og var hann handtekinn og færður á lögreglu­ stöð. Við öryggisleit á honum fundust fíkniefni í buxnavasa hans og sýnatökur staðfestu að hann hefði neytt kannabisefna. Annar ökumaður var einnig handtek­ inn eftir að sýnatökur höfðu leitt í ljós að hann hafði neytt kannabis. Loks voru sex ökumenn kærðir fyrir önnur brot á umferðarlögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.