Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Blaðsíða 27
Vikublað 14.–16. október 2014 Lífsstíll 27
S
íðasta föstudag hófst for
ritunarvika, samstarfsverk
efni milli Evrópustofu og
Skema til þess að auka áhuga
fólks á tölvuforritun. Í ár er
lögð sérstök áhersla á forritunar
þekkingu kvenna. Konur hafa átt á
brattann að sækja síðustu ár í tölvu
geiranum en hafa samt sem áður ver
ið að sækja í sig veðrið. DV hitti tvær
ungar forritunarkonur sem þó eru
hvor á sínum staðnum í lífinu. Ingi
björg Ósk Jónsdóttir er formaður /
sys/tra félags kvenna í tölvunarfræði
við Háskólann í Reykjavík. Berglind
Ósk Bergsdóttir er í dag Androidfor
ritari hjá Plain Vanilla og lærði hún
tölvunarfræði í Háskóla Íslands.
Fóru í forritun fyrir tilviljun
Ingibjörg Ósk er að læra hugbúnaðar
verkfræði í HR eftir að hafa byrjað í
heilbrigðisverkfræði. „Ég þurfti að
taka áfanga í forritun í því námi. Til
hugsunin um að þurfa að taka þann
áfanga var hræðileg því ég ímynd
aði mér að það yrði alveg svakalega
leiðinlegt. En svo kom í ljós að þetta
var langskemmtilegasti áfanginn,“
segir Ingibjörg og skellihlær. „Ég
hafði aldrei forritað áður en þegar ég
lærði forritun þá skipti ég yfir í hug
búnaðarverkfræði.“ Berglind Ósk
hins vegar byrjaði á gagnvirknis
línu í sálfræði í Háskóla Íslands, þar
sem sálfræði og tölvunarfræði voru
tengdar saman. „Ég hafði ekki kjark
í að henda mér beint út í tölvunar
fræðina og fór þessa leið. Hins vegar
eftir fyrstu önnina fannst mér svo
gaman að ég færði mig alfarið yfir í
tölvunarfræði. Ég tók aldrei neina
áfanga í sálfræði.“
Vantar fleiri stelpur
Þegar Ingibjörg var nýnemi voru
stelpur rétt tæplega 20% tölvunar
fræðinema en í ár voru 25% þeirra
sem hófu nám stelpur. „Þetta er fjölg
un en við viljum samt sjá fleiri stelp
ur. Ég held að stór ástæða fyrir því
af hverju svo fáar stelpur fara í tölv
unarfræði sé að þær vita ekki hvað
þetta er, í bland við staðalímyndir. Ég
til dæmis hélt að það væru bara stór
ir strákar sem kunnu að forrita áður
en þeir komu í skólann sem væru
í náminu. En auðvitað er það ekk
ert þannig. Það er ekki ætlast til að
maður kunni forritun áður en mað
ur byrjar ekki frekar en að maður eigi
að vera reiprennandi í kínversku ef
maður fer í kínverskunám.“ En stelp
ur eru feimnar við að fara í tölv
unarfræði og var það ein af ástæð
um þess að Ingibjörg og vinkonur
hennar stofnuðu /sys/tur. „Okkur
fannst vanta fleiri stelpur í forritun
arkeppnir. Það er fjöldi stúlkna sem
forritar, en þær voru einhverra hluta
vegna ekki að sýna sig. En með því að
mynda tengslanet þá getum við hvatt
þær áfram til að taka þátt. Við viljum
samt ekki vera lið á móti strákunum,
við höfum ekkert á móti þeim. Stund
um viljum við bara fá að vera stelpur
og gera eitthvað nördalegt saman.
Við verðum einmitt með opið kvöld
í HR á fimmtudaginn milli 18 og 22,
þar sem við bjóðum framhaldsskóla
stelpur sérstaklega velkomnar. Þetta
er gert í tengslum við forritunarvik
una og við munum fara yfir grunn
hugtök í Javaforritun.“
Fáir sýnilegir kvenforritarar
Berglind er eini kvenforritarinn í
fullu starfi hjá Plain Vanilla og hún
segist sakna þess stundum að hafa
kynsystur sínar með. „Konur eru
sennilega um 40% starfsmanna fyr
irtækisins. En af rúmlega 20 for
riturum er ég eina konan. Það eru
tvær konur í gagnavísindadeildinni
en þær forrita lítið. Ég held að að
alástæðan fyrir fáum kvenforritur
um sé hvað það eru fáar fyrirmynd
ir.“ Ingibjörg tekur í sama streng.
„Þegar ég byrjaði í náminu vissi ég
ekki um neina stelpu sem var tölv
unarfræðingur eða hafði farið í tölv
unarfræði. Við viljum þess vegna
vera sýnilegri í samfélaginu svo fólk
átti sig á því að það er allt í lagi að
vera forritari,“ segir Ingibjörg. „Ég
tel bestu leiðina til þess að fá fleiri
stelpur í þennan geira vera að kenna
krökkum forritun á grunnskólastigi,“
bætir Berglind við. „Ég veit að Skema
er í samstarfi við nokkra skóla um
að setja upp tölvunarfræðinámskeið
hjá þeim, en best væri auðvitað að
hún færi bara inn í aðalnámskrána.“
TIl að auka ásókn kvenna í tölvunar
fræði hefur Háskólinn í Reykjavík
ákveðið að breyta markaðsstefnu
sinni í auglýsingum á deildinni.
„Núna er kona framan á bæklingn
um og fleiri konur inni í honum,“
segir Ingibjörg. „Í kynningarmynd
bandi fyrir deildina eru reyndar enn
bara strákar en það er verið að vinna
í því.“
Strákar vilja fleiri stelpur
Aðspurð hvort karlkyns nemend
ur í tölvunarfræði séu fúlir yfir
því að það sé sérstelpufélag, seg
ir Ingibjörg aðeins hafa borið á því.
„Strákar eru samt velkomnir á flest
kvöldin okkar. Þetta er alls ekki póli
tískt félag. En svo hefur það komið á
daginn að þegar maður býður þeim
á fyrirlestra þá mæta þeir ekki,“ seg
ir Ingibjörg kímin á svip. „Ætli þeir
þori nokkuð?“ Berglind segir stráka
samt yfirleitt bara ánægða að fá
fleiri stelpur í hópinn. „Þeim finnst
örugglega alveg jafnleiðinlegt að
vera bara innan um stráka eins og
stelpum finnst leiðinlegt að vera ein
ar eða ein af fáum í hópnum. Yfirleitt
taka þeir okkur opnum örmum, en
ég hef samt einstaka sinnum fundið
fyrir fordómum, en ekkert á við hitt.“
Tengslanet mikilvægt
Fyrir stuttu stóð Plain Vanilla fyrir
kvennahittingi þar sem fjallað var
um störf innan fyrirtækisins. „ Öllum
var velkomið að koma en þetta sner
ist aðallega um að segja frá því hvað
konur væru að gera hjá fyriræk
inu og virkja tengslanet kvenna. Að
sóknin var gífurleg,“ segir Berglind.
„Við ætluðum að hafa það í matsal
Plain Vanilla en á endanum þurftum
við að færa okkur um set og fengum
stóra salinn í Bíó Paradís, sem troð
fylltist. Það sýnir bara að áhuginn
hefur aukist mikið.“ Ingibjörg segir
tengslanetið einmitt eitt það mikil
vægasta sem þurfi að virkja hér á
landi. „Tengslanetið er mjög mikil
vægt og nafnið /sys/tur er vísun í
póstlistafélag sem Anita Borg stofn
aði og heitir Systers. Það var stofnað
sem tengslanet fyrir konur í tækni
geiranum og byrjaði með tólf konum.
Í dag er það orðið eitt stærsta póst
listasamfélag í geiranum í dag. Við
hjá /sys/trum reynum að vera eins
sýnilegar og við getum, bæði til þess
að fá fleiri stelpur í námið og líka til
þess að virkja tengslanetið betur og
ég held að okkur muni takast það,“
segir Ingibjörg glöð að lokum. n
Vantar fleiri kvenforritara
n Forritunarvika Skema og Evrópustofu í hámarki n Þarf að eyða staðalímyndum
Helga Dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is
Ingibjörg Ósk Jónsdóttir Formaður /sys/tra, félags kvenna innan tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík. Félagið heldur fyrirlestra
og vinnustofur. Yfirleitt eru strákar meira en velkomnir en stundum vilja þær fá að nördast í friði, þar sem stelpur eiga það til að verða
feimnar innan um strákana. MynD SIgTryggur ArI
Berglind Ósk Bergsdóttir Berglind hefur unnið hjá Plain Vanilla síðustu tvö árin en þess
utan vann hún fyrir Gogoyoko og gerði Android-smáforrit fyrir Smáralind. Um tíma virtist
hún vera aðal-Android-forritari landsins en hún var í fyrsta árgangi tölvunarfræðideildar HÍ
sem lærði Android-forritun. MynD SIgTryggur ArI
Gæði fara aldrei úr tísku