Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Page 30
Vikublað 14.–16. október 201430 Sport
Stelpurnar ætla
að verja titilinn
n EM í hópfimleikum hefst á miðvikudag n Afleiddar tekjur um 500 milljónir n Fluttu inn stúku
Þ
etta er krefjandi og það er
mikið að gera, þetta er ótrú-
lega skemmtilegt,“ segir Sól-
veig Jónsdóttir, sviðsstjóri
landsliðsmála hjá Fimleika-
sambandi Íslands.
Nú um helgina fer fram
Evrópumeistaramót í hópfimleikum
og hefur Sólveig ásamt samstarfs-
fólki sínu staðið í ströngu í margar
vikur við undirbúning mótsins. Þetta
er stærsti fimleikaviðburður sem hef-
ur farið fram hér á landi en að auki
eitt stærsta íþróttamót innanhúss
sem Ísland hefur haldið. Fimleika-
sambandið áætlar að afleiddar tekj-
ur af mótinu geti numið allt að fimm
hundruð milljónum.
1.100 sjálfboðaliðar
45 lið frá 14 löndum taka þátt í mótinu
og því að mörgu að huga og hafa um
1.100 sjálfboðaliðar tekið þátt í undir-
búningnum. Undirbúningur við
mótið hefur raunar staðið frá því í
janúar 2013 þegar Fimleikasamband
Evrópu tók tilboði íslenska fimleika-
sambandsins um að halda mótið.
Hópfimleikar (TeamGym) eru ein
af sjö greinum innan Fimleikasam-
bands Evrópu (UEG) og hefur ver-
ið í gríðarlegum vexti innan Evrópu
síðustu árin, en hún er nú stunduð í
langflestum Evrópulöndum.
Miðasala hefur gengið ágætlega
og mjög vel fyrir keppnina á laugar-
dag.
Vilja fleiri karla og eldra fólk
Í hópfimleikum er keppt í kvenna-
og karlaflokki, en einnig er keppt
í blönduðum flokki, það er karl-
ar og konur í sama liðinu. Ís-
lendingar eiga titil að verja frá síð-
ustu tveimur Evrópumeistaramótum
og í ár eru þrjár konur í kvenna-
landsliðinu sem eru að reyna við
Evrópumeistaratitil í þriðja skipti. Á
síðasta Evrópumeistara móti urðu
bæði stúlkna- og kvennalandsliðið
Evrópumeistarar og því til mikils að
vinna hjá okkar fólki.
Íslendingar senda kvennalands-
lið og blandað landslið auk lands-
liðs í pilta- og stúlknaflokki. Ekki er
til mannskapur í karlalandslið en Sól-
veig segir fimleikasambandið vinna
að því að koma á laggirnar karlalands-
liði. „Meðal markmiða sambandsins
er að hækka meðalaldur iðkenda og
fjölga karlmönnum í greininni. Það
gengur ágætlega og meðalaldurinn
er að hækka. Við erum líka að fara úr
kynjahlutföllum þar sem eru 80 pró-
sent konur í 65 prósent konur og 35
prósent karlar. Framtíðin er björt í
þessum málum og við bindum miklar
vonir við að þetta takist,“ segir Sólveig.
Mikill samtakamáttur
Mótið verður haldið í frjálsíþrótta-
höllinni í Laugardal og til þess að taka
á móti öllum þessum fjölda, um 1.500
iðkendum og áhorfendum, hefur fim-
leikasambandið leigt stúku sem not-
uð var á Ólympíuleikunum í London
árið 2012. Sjálfboðaliðarnir unnu að
því hörðum höndum að koma henni
upp og á sunnudagskvöld var hún
tilbúin og uppsett. „Við þurftum að
flytja inn þessa stóru stúku, sem hefur
aldrei verið gert áður innanhúss. Það
hefur ekkert mót hér á landi gert ráð
fyrir svona mörgum áhorfendum,“
segir Sólveig.
„Stúkan kom til landsins á
fimmtudag og við kláruðum þetta á
sunnudagskvöld. Við erum með ell-
efu hundruð sjálfboðaliða. Við höf-
um fundið fyrir svo miklum samtaka-
mætti og hvað það er mikill kraftur í
hreyfingunni. Það hafa allir staðið
saman og hafa unnið þrekvirki,“ segir
Sólveig. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Eiga titil að
verja Kvenna-
landsliðið á
titil að verja á
Evrópumeist-
aramótinu.
Mynd FiMlEika-
SaMband ÍSlandS
Þetta eru liðin okkar á EM 2014
Kvennalandsliðið:
Andrea Sif Pétursdóttir - Stjarnan
Birta Sól Guðbrandsdóttir - Gerpla
Eva Grímsdóttir - Stjarnan
Fríða Rún Einarsdóttir - Gerpla
Glódís Guðgeirsdóttir - Gerpla
Hulda Magnúsdóttir - Stjarnan
Ingunn Jónasdóttir Hlíðberg - Gerpla
Karen Sif Viktorsdóttir - Gerpla
Rakel Nathalie Kristinsdóttir - Gerpla
Sara Margrét Jóhannesdóttir - Stjarnan
Sif Pálsdóttir - Gerpla
Sólveig Bergsdóttir - Gerpla
Valgerður Sigfinnsdóttir - Gerpla
Þórey Ásgeirsdóttir - Stjarnan
Fyrirliði: Sif Pálsdóttir
Þjálfarar: Bjarni Gíslason, Björn Björnsson,
Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir og Ásta
Þyrí Emilsdóttir
Blandað lið:
Arna Sigurðardóttir - Stjarnan
Edda Sigríður Sigfinnsdóttir - Gerpla
Harpa Guðrún Hreinsdóttir - Stjarnan
Hugrún Hlín Gunnarsdóttir - Selfoss
Katrín Pétursdóttir - Gerpla
Valdís Ellen Kristjánsdóttir - Stjarnan
Þórdís Ólafsdóttir - Stjarnan
Aron Bragason - Gerpla
Benedikt Rúnar Valgeirsson - Gerpla
Birkir Sigurjónsson - Ármann
Daði Snær Pálsson - Ármann
Magnús Óli Sigurðarsson - Gerpla
Sindri Steinn Davíðsson Diego - Ármann
Þorgeir Ívarsson - Gerpla
Fyrirliði: Þórdís Ólafsdóttir
Þjálfarar: Alice Flodin, Daniel Bay og
Þórarinn Reynir Valgeirsson
Stúlknalið:
Andrea Rós Jónsdóttir - Stjarnan
Anna Sigrídur Gudmundsdóttir - Stjarnan
Dóróthea Gylfadóttir - Gerpla
Eyrún Inga Sigurðardóttir - Gerpla
Hekla Mist Valgeirsdóttir - Stjarnan
Inga Heiða Pétursdóttir - Gerpla
Íris Arna Tómasdóttir - Stjarnan
Kolbrún Þöll Þorradóttir - Stjarnan
Kristín Amalía Líndal - Gerpla
Lovísa Snorradóttir Sandholt - Gerpla
María Líf Reynisdóttir - Stjarnan
Steinunn Anna Svansdóttir - Stjarnan
Tara Ósk Ólafsdóttir - Stjarnan
Tinna Ólafsdóttir - Stjarnan
Fyrirliði: Kolbrún Þöll Þorradóttir
Þjálfarar: Ásta Þyrí Emilsdóttir, Kenneth
Christiansen og Niclaes Jerkeholt
Blandað lið unglinga:
Ásmundur Óskar Ásmundsson - Gerpla
Einar Karelsson - Gerpla
Eysteinn Máni Oddsson - Selfoss
Hrafn Marcher Helgason - Gerpla
Konráð Oddgeir Jóhannsson - Selfoss
Ríkharð Atli Oddsson - Selfoss
Alma Rún Baldursdóttir - Selfoss
Belinda Sól Ólafsóttir - Stjarnan
Heiða Rut Halldórsdóttir - Ármann
Kara Hlynsdóttir - Stjarnan
Kolbrún Sara Magnúsdóttir - Gerpla
Nadía Björt Hafsteinsdóttir - Gerpla
Tanja Ólafsdóttir - Stjarnan
Fyrirliði: Kolbrún Sara Magnúsdóttir
Þjálfarar: Kristinn Þór Guðlaugsson, Tanja
Birgisdóttir og Tanja Kristín Leifsdóttir
Drengjalið:
Alexander Sigurðsson - Ármann
Arnar Freyr Yngvason - Gerpla
Dagur Þórarinsson - Gerpla
Einar Ingi Eyþórsson - Stjarnan
Halldór Hafliðason - Stjarnan
Helgi Laxdal Aðalgeirsson - Stjarnan
Kolbeinn Þór Kolbeinsson - Gerpla
Kristinn Már Hjaltason - Höttur
Kristófer Lúðvíksson - Stjarnan
Logi Örn Axel Ingvarsson - Stjarnan
Stefán Berg Ragnarsson - Höttur
Stefán Ísak Stefánsson - Stjarnan
Þorbjörn Bragi Jónsson - Stjarnan
Viktor Elí Sturluson - Ármann
Fyrirliði: Alexander Sigurðsson
Þjálfarar: Henrik Pilgaard, Niklas Boris og
Yrsa Ívarsdóttir
Standa í ströngu Arnar Ólafsson er formaður Fimleikasambands Íslands og Sólveig er
sviðsstjóri landsliðsmála. Hún þjálfaði áður landsliðið í hópfimleikum.