Iðjuþjálfinn - 01.11.1993, Side 25

Iðjuþjálfinn - 01.11.1993, Side 25
23 þér í heimilisbragnum og þú skynjar stöðu hans í fjölskyldunni. Að fá þessar upplýsingar á heimavelli, í því umhverfi sem einstaklingurinn ætlar sér að dvelja, er ómetanlegt við gerð meðferðaráætlunar. Ekkert er algott og óneitanlega varð ég líka vör við þær neikvæðu hliðar sem fylgja því að vinna í heimahúsi. Ég nefni hér nokkrar. Að þjálfa fólk í heimahúsi reyndist mér erfitt. Ástundun var slök og margt sem truflaði (sími, börn, kötturinn, pott- arnir). Það er ótrúlega mikið sem tapast þegar þessi örugga umgjörð "deildin okkar" eða stofnunin er ekki til staðar. Ekki aðeins er skortur á meðferðartækjum heldur þessu þjálf- unarhvetjandi umhverfi sem skjólstæð- ingurinn skilur sem slíkt. Það er líka mjög þreytandi til lengdar að vinna svona mikið ein, hafa ekki stuðning "kollega" og fá aldrei svörun á unnin störf og hugmyndir. Þú færð nóg af kaffi og (oftast) góðar kökur á þessum vettvangi. Jákvætt □ Neikvætt □ Lokaorð Samstarfsfólk mitt á Akureyri stóð oft í mun erfiðari málum en ég hafði gert mér grein fyrir. Kröfurnar aukast frá öllum hliðum. Skjólstæðingarnir eru eldri og veikari heima en þó sjálfstæð- ari, fjölskyldur þeirra ákveðnari, og yfirvöld krefjast hagkvæmni ef ekki sparnaðar. Það er hvetjandi að vita til þess að eftir að ég hætti störfum var áhugi á að fastráða iðjuþjálfa hjá heimaþjón- ustunni á Akureyri. Það er hins vegar ekki einfalt mál. Hver á að borga, ríki eða bær? Þessir tveir aðilar sem sam- an veita heimaþjónustu eru fjárhags- lega aðgreindir. Sú staðreynd veikir samstarf þeirra og gerir ráðningu iðjuþjálfa enn flóknari. Vonandi get- um við iðjuþjálfar á Islandi haslað okkur völl innan heimaþjónustunnar. Þessi reynsla á Akureyri hefur styrkt þá sannfæringu mína að iðjuþjálfun sé fag sem tvímælalaust getur lagt sitt að mörkum til að gera heimaþjónustu markvissari og hagkvæmari. Krossið þar sem við á.

x

Iðjuþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.