Iðjuþjálfinn - 01.11.1994, Síða 11
9
vistmanna á Reykjalundi sem eiga við
geðræn vandamál að stríða. Bæði er
það að hópurinn hefur breyst og að
iðjuþjálfarnir hafa leitað á ný mið í
hugmyndafræði til að stýra iðjuþjálfa-
meðferð.
Færri vistmenn í langtíma
endurhæfingu:
Sá hópur sem þarf á langtíma endur-
hæfingu að halda er nú orðinn til þess
að gera fámennur, e.t.v. vegna þess að
nú eru til fjölbreyttari endurhæfingar-
tilboð víða um land. Þá er einnig
orðið minna um eldra fólk með geð-
ræn vandamál á Reykjalundi. Fækkun
vistmanna í langtíma endurhæfingu
hefur í för með sér að minna er um
þjálfun í heimilisstörfum og minna um
starfshæfnimat og -þjálfun. Iðjuþjálfar
undirbúa að sjálfsögðu þá vistmenn
sem valdir eru til dvalar á áfangastað
Reykjalundar. Aðstoð og leiðbeiningar
á áfangastaðnum er í höndum starfs-
manns frá iðjuþjálfun undir hand-
leiðslu iðjuþjálfa. Enginn vistmaður
byrjar heldur í vinnuþjálfun á iðnaðar-
deildum Reykjalundar né annars
staðar á stofnuninni án undangengins
mats í iðjuþjálfun. Vinnuþjálfun á
iðnaðardeildum er í höndum verk-
stjóra þar, en í mjög góðri samvinnu
við iðjuþjálfa.
Nyr hópur sem afleiðing af brevttu
samfélagi:
Stærsti hópurinn með geðræn vanda-
mál á Reykjalundi í dag er fólk á
miðjum aldri sem ýmissa hluta vegna
hefur misst tökin á tilverunni. Það er
ekki á allra færi að halda í við hrað-
ann í samfélaginu og standast allar
þær kröfur sem gerðar eru til okkar í
þeim fjölmörgu hlutverkum sem við
gegnum. Þessir einstaklingar hafa
oftar en ekki verið í mikilli vinnu allt
fram til þessa auk þess að bera mikla
ábyrgð innan fjölskyldunnar. Oft er
upplausn í heimilislífinu og í forsög-
unni má stundum finna misnotkun af
einhverju tagi. Einn góðan veðurdag,
kannski í kjölfar einhvers smávægilegs
áfalls, kiknar viðkomandi undan álag-
inu, yfirkominn af streitu og kvíða.
Þessi hópur vistmanna er hvorki í þörf
fyrir búsetuþjálfun né starfshæfnimat.
Þessir einstaklingar hafa fyrst og
fremst þörf fyrir að skoða sinn lífsstíl
og hvernig þeir nýta tíma sinn. Þeir
þurfa að finna leið til að koma á
jafnvægi milli vinnu, tómstunda og
hvíldar og læra að ráða við streitu og
kvíða. Fyrir marga hafa skyldustörfin
verið svo stór hluti af lífinu að ekki
hefur verið pláss fyrir neitt annað.
Vistmenn þurfa oft aðstoð við að átta
sig á hvernig best sé að skipuleggja
daglegt líf þannig að þeir njóti örugg-
lega einhvers hluta af því. Gleðigjafar
og andleg næring er öllum nauðsynleg
eigi þeir að geta staðið undir allri
þeirri ábyrgð sem á herðum þeirra
hvílir.
Breytt hugmvndafræði og meðferð:
Önnur ástæða fyrir breyttri áherslu í
meðferð iðjuþjálfa eru áhrif frá
MOHO eftir námskeið Kielhofners í