Iðjuþjálfinn - 01.11.1994, Page 13
11
um hvern og einn. í áfangaskýrslu er
greint frá mati og meðferðaráætlun
og í lokaskýrslu þeirri meðferð sem
var veitt og hvaða árangur náðist.
Umfangsmikið svið:
Iðjuþjálfar á Reykjalundi hafa til
nokkurra ára skipt skjólstæðingum
sínum upp í hópa eftir sjúkdómsgrein-
ingu. Sú sjúkdómsgreining sem er
aðalástæðan fyrir tilvísun í iðjuþjálfun
hefur verið látin ráða ferðinni. Á
árinu 1993 útskrifuðust úr iðjuþjálfun
á Reykjalundi 69 vistmenn með geð-
ræna erfiðleika sem aðalástæðu tilvís-
unar. Af þessum 69 vistmönnum
fengu 61 einstaklingsmeðferð í iðju-
þjálfun, 47 tóku þátt í slökunar-
námskeiði og 19 tóku þátt í bak-
/verkjaskóla. 5 úr þessum hóp dvöld-
ust á áfangastaðnum hluta af dvalar-
tíma sínum og 11 voru í vinnuþjálfun
á iðnaðardeildum eða annars staðar á
stofnuninni. Komur í einstaklinga-
meðferð voru að meðaltali 38 á hvern
vistmann með geðræn vandamál.
Aðeins sá hópur sem skilgreindur er
sem þroskafrávik var með jafnhátt
meðaltal, en meðalkomufjöldi annarra
hópa var í kringum 17. Allar komur
aðrar en í bak-/verkjaskóla og á slök-
unarnámskeið flokkast sem komur í
einstaklingameðferð og af þeim áttu
vistmenn með geðræn vandamál 2338
eða 23% af heildinni. Auk þessa er
töluverður fjöldi vistmanna innan
annarra sjúkdómsgreiningahópa sem
fá meðferð í iðjuþjálfun á sömu nót-
um. Er þar fyrst að telja vistmenn
með langvinn verkjavandamál, en
einnig stundum vistmenn með áunnin
heilaskaða eða þroskafrávik. Af þessu
má sjá hversu umfangsmikið þetta
svið er innan iðjuþjálfunar á Reykja-
lundi.
Lokaorð
Iðjuþjálfun fyrir geðfatlaða á Reykja-
lundi hefur tekið heilmiklum breyting-
um gegnum árin. E.t.v. má segja að
þróunin hafi verið í þá átt að fjarlægj-
ast meir og meir það sem á Norður-
löndum er litið á sem "hefðbundna
geðiðjuþjálfun" innan stofnana. í því
samhengi má ekki gleymast að heild-
arumhverfi geðfatlaðra vistmanna á
Reykjalundi er mjög frábrugðið því
sem gerist á stofnunum sem einungis
eru ætlaðar geðfötluðum. Það er von
höfundar þessarar greinar að hún geti
kveikt einhvern áhuganeista hjá iðju-
þjálfum sem eru að leita nýrra leiða í
starfi og hjá iðjuþjálfanemum sem
hafa áhuga á verknámi á íslenskri
grund. Það er alltaf þörf fyrir nýjar
hugmyndir og ábendingar því þróunin
mun örugglega halda áfram.