Iðjuþjálfinn - 01.11.1994, Blaðsíða 30
Ingibjörg Pétursdóttir, iðjuþjálfi
28
"HJÁLPIÐ OKKUR NÚ"
Fyrirlestur og umQöIlun um nýútkomna bók
eftir Inger Mosbæk Greve iðjuþjálfa í Danmörku
Þann 16. ágúst sl. var haldinn fræðslu-
fundur á vegum Iðjuþjálfafélags Is-
lands. Gestir fundarins voru Inger
Mosbæk Greve iðjuþjálfi frá Dan-
mörku og landi hennar Torben
Dorph-Petersen. Inger er þekkt í
heimalandi sínu fyrir störf sín sem
geðiðjuþjálfi en þar hefur hún barist
mjög fyrir velferð og réttindum geð-
sjúkra. Inger hefur starfað á geðsviði
síðan hún útskrifaðist frá Iðjuþjálfa-
skólanum í Árósum fyrir 18 árum.
Hún hefur komið víða við, byrjaði að
vinna á stóru hefðbundnu geðsjúkra-
húsi en hefur síðan unnið á minni
stöðum "úti á meðal fólksins", nú
síðast á vernduðum vinnustað í Skan-
derborg á Jótlandi.
Inger hefur verið mjög virk og unnið
að hagsmunum geðsjúkra á ýmsan
hátt, m.a. var hún einn af frumkvöðl-
um að stofnun "Galebevægelsen" sem
eru hagsmunasamtök geðfatlaðra og
margir hafa heyrt um. Innan Gale-
bevægelsen fór fram mikil kynning á
geðsjúkdómum og þeim aðstæðum
sem geðsjúklingar búa við. Hópur
innan hreyfingarinnar ferðaðist vítt og
breitt um Danmörku með kynningar-
efni í máli og myndum. Tilgangurinn
var að minnka þá fordóma sem geð-
sjúkir þurfa að þola frá meðborgurum
sínum. Enn berjast Inger og félagar
gegn fordómum og vanþekkingu, því
á verndaða vinnustaðnum þar sem
hún starfar nú er hópur sem ferðast
um landið í þeim tilgangi.
Undanfarin 5 ár hefur Inger verið
"fósturmóðir" Dorphs sem var með
henni á fræðslufundinum.
Hann býr hjá henni í "fjölskyldu-fóstri-
/stuðningi", "Familiepleje" eins og sagt
er á dönsku, en auðvitað höfum við
ekki gott orð yfir þetta meðferðar-
úrræði þar sem það þekkist ekki hér
á landi.
Dorph er ungur maður sem hefur átt
við geðræn vandamál að stríða síðan
hann var barn. Þegar hann komst á
unglingsár fékk hann sjúkdómsgrein-
inguna geðklofi. Hann hefur ótal
sinnum verið innlagður á geðdeildir
víðs vegar um Danmörku.
Inger og Dorph eru bæði litríkar
persónur sem kunna frá mörgu að
segja. A fræðslufundinum sagði Inger