Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Blaðsíða 12

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Blaðsíða 12
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 20098 og að félagssjóður skili ekki meira en 3% hagnaði af heildariðgjöldum. Stefnt er að endurskoðun á vefsvæði félagsins og að félagsmenn fái eigin síður þar sem þeir geta séð og unnið gagnvirkt með þau gögn sem skráð eru um hann hjá félaginu. Þá er markmiðið að þjónustukannanir sýni að yfir 95% félagsmanna séu ánægðir með þjónustu skrifstofu félagsins. Fundurinn samþykkti tillögu stjórnar félagsins þess efnis að félagsgjöld haldist óbreytt en tillaga til lagabreytinga um að fella niður hámarkstíma, sem sami einstaklingur getur gegnt starfi formanns samfellt og að hann verði kjörinn til þriggja ára í stað tveggja eins og nú er, náði ekki samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða og var því felld þrátt fyrir að meirihluti væri henni fylgjandi. FÍH gengur úr BHM Fyrir aðalfundi FÍH lá eftirfarandi tillaga: „Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga, haldinn þann 12. maí 2009, samþykkir að fela stjórn félagsins að ganga frá úrsögn félagsins úr Bandalagi háskólamanna (BHM). Stjórn skal tilkynna BHM úrsögnina innan tilskilins frests þannig að hún öðlist gildi frá og með áramótum 2009 og 2010. Stjórn skal þegar hefja undirbúning viðbragða við því ástandi sem skapast vegna úrsagnar og núverandi aðildar félagsmanna að sjóðum BHM.“ Tillagan var samþykkt með 53 atkvæðum gegn 2 en 12 sátu hjá. Úrsögn FÍH úr BHM hefur verið til alvarlegrar skoðunar í þrjú ár. Tillaga um úrsögn var rædd ítarlega á fulltrúaþingi félagsins í maí 2007 og síðan á aukafundi í september 2007. Þar var ákveðið að vera áfram í BHM enn um sinn eins og það var orðað þar sem mikil stefnumótunarvinna var í gangi hjá BHM sem fulltrúi FÍH tók fullan þátt í. Stjórn FÍH batt miklar vonir við að sú vinna myndi skila meiri breytingum á skipulagi og störfum BHM og á gjaldalíkani bandalagsins en raun bar vitni. Hjúkrunarfræðingar eru um 26% af heildarfjölda félagsmanna í aðildarfélögum BHM. Þeir greiða árið 2009 um 14 milljónir króna til bandalagsins. Það er mikið fé sem annaðhvort er hægt að nýta til beinnar þjónustu við hjúkrunarfræðinga frá skrifstofu FÍH eða að lækka félagsgjöld til félagsins. Nýkjörin stjórn FÍH mun nú fara í þá vinnu að undirbúa úrsögnina í samræmi við lög BHM. Fréttir af gangi mála munu birtast á vefsvæði félagsins eftir því sem málum vindur fram og síðan fjallað um breytingarnar í Tímariti hjúkrunarfræðinga. Glaðir fundarmenn í kaffihléi. Þeir sem kosnir voru í stjórn auk formanns voru: Frá svæðisdeild Austurlands: Sigurveig Gísladóttir Frá svæðisdeild Norðurlands: Kristín Thorberg Frá svæðisdeild Vestfjarða: Jóhanna Oddsdóttir Frá svæðisdeild Vesturlands: Helga Atladóttir Frá svæðisdeild Suðurlands: Fjóla Ingimundardóttir Frá svæðisdeild höfuðborgarsvæðisins: Aðalheiður D. Matthíasdóttir Frá svæðisdeild Suðurnesja: Íris Dröfn Björnsdóttir Frá fagdeild bráðahjúkrunarfræðinga: Guðbjörg Pálsdóttir Frá fagdeild gjörgæsluhjúkrunarfræðinga: Gunnar Helgason Frá fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga: Stella S. Hrafnkelsdóttir Frá fagdeild skurðstofuhjúkrunarfræðinga: Svanhildur Jónsdóttir Frá fagdeild svæfingahjúkrunarfræðinga: Þórdís Borgþórsdóttir Frá fagdeild taugahjúkrunarfræðinga: Dóróthea Bergs Frá fagdeild öldrunarhjúkrunarfræðinga: Jónbjörg Sigurjónsdóttir Þrír félagsmenn sem ekki eru fulltrúar fag- eða svæðisdeilda: Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, Hildur Einarsdóttir og Ragnheiður Gunnarsdóttir Kosningar Elsa B. Friðfinnsdóttir var sjálfkjörinn formaður félagsins til næstu tveggja ára. Samkvæmt nýju lögunum er stjórn félagsins skipuð 18 félagsmönnum: formanni félagsins, fulltrúum hinna sjö svæðisdeilda, sjö fulltrúum fagdeilda og þremur félagsmönnum öðrum. Fulltrúar fagdeilda skulu kosnir beinni kosningu á aðalfundi svo og þeir þrír félagsmenn sem ekki eru fulltrúar fag- eða svæðisdeilda. Fulltrúar svæðisdeilda eru hins vegar kjörnir á vettvangi svæðisdeilda í aðdraganda aðalfundar og eru sjálfkjörnir í stjórnina. Stjórn orlofssjóðs Birna Jónsdóttir Guðrún Ágústsdóttir K. Hjördís Leósdóttir Ingibjörg Rósa Friðbjörnsdóttir Ólöf Sigurðardóttir Kjörnefnd Guðrún Jónasdóttir Hildur Rakel Jóhannsdóttir Ragna Dóra Rúnarsdóttir Varamaður: Sigríður Lóa Rúnarsdóttir Ritnefnd Auðna Ágústsdóttir til tveggja ára Brynja Ingadóttir til tveggja ára Dóróthea Berg til eins árs Herdís Sveinsdóttir til tveggja ára Hildur Magnúsdóttir til eins árs Ragnheiður Alfreðsdóttir til tveggja ára Sigríður Skúladóttir til eins árs Skoðunarmenn Elín J. Hafsteinsdóttir Herdís Herbertsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.