Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Blaðsíða 29
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 2009 25
Foreldri sem er ófært vegna sjúkdóms,
afleiðinga slyss eða afplánunar refsivistar
til umönnunar barns síns á fyrstu 18
mánuðum eftir fæðingu er heimilt að
framselja rétt sinn til fæðingarorlofs til
hins foreldrisins að hluta eða öllu leyti,
hið sama gildir um rétt foreldris vegna
barns sem kemur inn á heimili vegna
frumættleiðingar/varanlegs fósturs.
Starfsmaður skal eiga rétt á að taka
fæðingarorlof í einu lagi. Með samkomulagi
við vinnuveitanda er starfsmanni þó
heimilt að haga fæðingarorlofi á þann veg
að það skiptist niður á fleiri tímabil og/
eða það verði tekið samhliða minnkuðu
starfshlutfalli. Það má aldrei taka
fæðingarorlof skemur en 2 vikur í senn.
Vinnuveitandi skal leitast við að koma til
móts við óskir starfsmanns um tilhögun
fæðingarorlofsins.
Foreldrar eiga sameiginlegan rétt á
lengingu fæðingarorlofs um þrjá mánuði
fyrir hvert barn umfram eitt þegar um
fjölburafæðingar er að ræða. Þetta
á einnig við hjá þeim sem eru að
frumættleiða/taka í varanlegt fóstur fleira
en eitt barn á sama tíma.
Mánaðarleg greiðsla til starfsmanns í
fæðingarorlofi skal nema 80% af
meðaltali heildarlauna og skal miða við
12 mánaða samfellt tímabil sem lýkur
sex mánuðum fyrir fæðingardag barns
eða þann dag sem barn kemur inn á
heimili vegna frumættleiðingar/varanlegs
fósturs. Þrátt fyrir þetta skal mánaðarleg
greiðsla Fæðingarorlofssjóðs aldrei
vera hærri en 400.000 kr. Greiðsla í
fæðingarorlofi til foreldris í 25–49% starfi
í hverjum mánuði skal aldrei vera lægri
en sem nemur 65.227 kr. á mánuði og
greiðsla til foreldris í 50–100% starfi í
hverjum mánuði skal aldrei vera lægri
en 91.200 kr. á mánuði. Hámarks- og
lágmarksgreiðslur eru endurskoðaðar við
afgreiðslu fjárlaga ár hvert.
Greiðslur skal inna af hendi eftir á, fyrsta
virkan dag hvers mánaðar.
Fæðingarstyrkur í stað
fæðingarorlofs
Til þess að eiga rétt á fæðingarstyrk í
stað fæðingarorlofs þarf einstaklingur að
hafa verið utan vinnumarkaðar, í minna
starfi en 25% eða í fullu samfelldu námi
verklegu eða bóklegu hjá viðurkenndri
menntastofnun innan hins almenna
menntakerfis á Íslandi. Fullt nám skv.
lögunum er 75–100% nám, einstök
námskeið teljast ekki til náms.
Fæðingarstyrkur er 40.409 kr. á mánuði
til foreldris utan vinnumarkaðar eða í
minna en 25% starfi en 91.200 kr. til
foreldris í fullu námi. Fæðingarstyrkirnir
endurskoðast árlega við afgreiðslu
fjárlaga.
Réttur til fæðingarorlofs vegna
andvana fæðingar og fósturláts
Foreldrar eiga sameiginlegan rétt á
fæðingarorlofi í allt að 3 mánuði ef um er
að ræða andvana fæðingu eftir 22 vikna
meðgöngu. Sé um að ræða fósturlát eftir
18 vikna meðgöngu eiga foreldrar rétt á
fæðingarorlofi í allt að 2 mánuði.
Veikindi barns eða móður
Þurfi barn að vera lengur á sjúkrahúsi
en 7 daga í beinu framhaldi af fæðingu
er heimilt að framlengja sameiginlegan
rétt foreldra til fæðingarorlofs um
þann dagafjölda sem barn dvelst á
sjúkrahúsi fyrir fyrstu heimkomu, um
allt að fjóra mánuði. Einnig er heimilt að
framlengja sameiginlegan rétt foreldra til
fæðingarorlofs í allt að þrjá mánuði ef um
er að ræða alvarlegan sjúkleika barns
sem krefst nánari umönnunar foreldris.
Heimilt er að framlengja fæðingarorlof
móður um allt að 2 mánuði vegna
alvarlegra veikinda hennar í tengslum við
fæðingu.
Uppsöfnun og vernd réttinda
Í fæðingarorlofi greiðir foreldri að lágmarki
4% af fæðingarorlofsgreiðslu í lífeyrissjóð
og Fæðingarorlofssjóður að lágmarki 8%,
foreldri er þar fyrir utan heimilt að greiða
í séreignasjóð.
Fæðingarorlof reiknast til starfstíma við
mat á starfstengdum réttindum svo
sem rétti til orlofstöku, lengingar orlofs,
veikindaréttar, uppsagnarfrests og réttar
til atvinnuleysisbóta.
Starfsmaður nýtur réttinda til greiðslu á
persónu- og orlofsuppbót.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
ráðleggur félagsmönnum sínum að greiða
stéttarfélagsgjöld í fæðingarorlofi til þess
að eiga rétt í fjölskyldu- og styrktarsjóð
BHM.
Tilkynning til vinnuveitanda um
væntanlegt fæðingarorlof
Starfsmaður, sem hyggst nýta sér rétt til
fæðingarorlofs, skal tilkynna það vinnu-
veitanda eins fljótt og kostur er og í
síðasta lagi 8 vikum fyrir fyrirhugaðan
fæðingardag barns. Tilkynningin skal vera
skrifleg og þar skal tilgreina fyrirhugaðan
upphafsdag orlofsins, lengd og tilhögun.
Umsóknin
Foreldri skal sækja um greiðslu í
fæðingarorlofi til Vinnumálastofnunar 6
vikum fyrir áætlaðan fæðingardag barns
en frá 1. janúar 2007 hefur Fæðingar-
orlofssjóður verið í vörslu Vinnu-
málastofnunar. Öll gögn, sem tengjast
umsóknum í fæðingarorlofi, skulu send á
Strandgötu 1, 530 Hvammstanga.
Umsóknin skal vera skrifleg á þar til
gerðu eyðublaði og henni skal fylgja afrit
af tilkynningum um fæðingarorlof sem
samþykktar hafa verið af vinnuveitendum.
Á umsókninni skal koma fram fyrirhugaður
upphafsdagur, lengd og tilhögun
fæðingarorlofs hvors foreldris fyrir sig.
Skattkort skal senda á sama heimilisfang
fyrir 20. hvers mánaðar kjósi foreldri að
nýta sér það hjá fæðingarorlofssjóði.
Fæðingarstyrkur úr styrktarsjóði
BHM
Foreldri í fæðingarorlofi, sem er aðili að
styrktarsjóði BHM, á rétt á fæðingarstyrk
sem nemur 170.000 kr. Styrkurinn
miðast við hvern félagsmann og séu
báðir foreldrar félagsmenn á hvor um sig
sjálfstæðan rétt á styrknum. Skila þarf
inn fæðingarvottorði og afriti af síðasta
launaseðli.