Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Blaðsíða 40
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 200936
Styrkfé úr B-hluta vísindasjóðs FÍH var afhent á alþjóðadegi
hjúkrunarfræðinga 12. maí sl. að loknum aðalfundi Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga. Samtals sóttu 40 aðilar um styrk en 24 umsóknir
voru samþykktar. Hámarksstyrkur var að þessu sinni 460.000 og fengu
13 verkefni þessa upphæð. Úthlutað var 9,5 miljónum sem er svipuð
upphæð og í fyrra.
Gaman er að segja frá því að rannsókn hennar Öldu Ásgeirsdóttur ‘Vinna og vinnuumhverfi sjúkraliða á Landspítala’
hreppti 1. sæti í samkeppni Vinnís, Vinnuvistfræðifélags Íslands, fyrir verkefni sem þykir skara fram úr á sviði
vinnuvistfræðinnar. Samkvæmt áliti dómnefndar er þetta mjög þarft og verðugt rannsóknarefni með viðeigandi
og ígrundaðri rannsóknaraðferð. Markmið og niðurstöður fari vel saman sem og hagnýtt gildi fyrir samfélagið.
Niðurstöðurnar séu settar fram á skipulegan og skiljanlegan hátt og vinnuvistfræðileg gildi höfð að leiðarljósi sem
komi berlega í ljós í ályktun rannsakanda.
Í stjórn vísindasjóðs eru Eygló Ingadóttir, Auðna Ágústsdóttir og Guðbjörg Guðmundsdóttir auk Aðalbjargar
Finnbogadóttur, starfsmanns félagsins.
Úthlutun úr vísindasjóði 2009
Nafn Heiti verkefnis Úthlutað
Alda Ásgeirsdóttir Vinna og vinnuumhverfi sjúkraliða á Landspítala. 300.000
Anna Ólafía Sigurðardóttir Árangur fjölskylduhjúkrunarmeðferðar (meðferðarsamræðna) á Barnaspítala
Hringsins, Landspítala.
300.000
Arna Borg Einarsdóttir Allsgáðir framhaldsskólanemar: Hvaða verndandi þættir eru það sem búa að
baki þeirri ákvörðun framhaldsskólanema að drekka ekki áfengi?
300.000
Auður Ragnarsdóttir Skipta stuttar meðferðarsamræður (15 mínútna viðtalið) hjúkrunarfræðinga
við foreldra langveikra barna/unglinga á dag- og göngudeildum máli?
460.000
Álfhildur Þórðardóttir Heilsutengd lífsgæði kransæðasjúklinga. 460.000
Ásthildur Kristjánsdóttir Öryggi sjúklinga í skurðaðgerð: afstaða lækna og hjúkrunarfræðinga á
skurðstofum LSH til öryggismála.
460.000
Bryndís Gestsdóttir Hjúkrunarþarfir og einkenni sjúklinga í líknarþjónustu á Íslandi –
langtímarannsókn.
460.000
Bryndís S. Halldórsdóttir Fjölskylduhjúkrunarmeðferð – 15 mínútna meðferðarsamtal á lungnadeild. 460.000
Dóróthea Bergs Hefur innleiðing klínískra hjúkrunarleiðbeininga um mat og varnir gegn
næringar- og vökvavandamálum heilablóðfallsjúklinga áhrif á næringarástand,
hreyfigetu, fjölda fylgikvilla og lífsgæði þeirra? Samanburður á hópum fyrir
og eftir innleiðingu.
400.000
Guðbjörg Helga Birgisdóttir
Elín Jónsdóttir
Úttekt og mat á starfsemi Reyksímans. 460.000