Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Blaðsíða 45

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Blaðsíða 45
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 2009 41 Ritrýnd fræðigrein í þeim tilgangi að bæta mannlega þjónustu eins og t.d. heilbrigðisþjónustuna. Vancouver-skólinn byggir á þeim skilningi að sérhver einstaklingur sjái heiminn með sínum augum, að sýn hans mótist af fyrri reynslu og eigin túlkun á reynslunni sem hefur áhrif á hvernig hann upplifir heiminn og lifir sínu lífi (Sigríður Halldórsdóttir, 2003). Í rannsóknarferlinu er farið í gegnum sjö vitræna meginþætti sem eru stöðugt endurteknir í rannsóknarferlinu (sjá mynd 1). Yfirlit yfir 12 þrep rannsóknarferlisins í Vancouver-skólanum ásamt því hvernig þeim var fylgt í rannsókninni eru sett fram í töflu 2. Þátttakendur Sjö konur, sem orðið höfðu fyrir kynferðislegu ofbeldi í bernsku, tóku þátt í rannsókninni. Þær voru valdar með tilgangsúrtaki með aðstoð fagaðila á sviðinu. Þær voru á aldrinum 30–65 ára þegar viðtölin fóru fram. Ofbeldið hófst hjá þeim öllum um 4–5 ára aldur svo þær muni eftir. Þær hafa allar orðið Tafla 2. Rannsóknarferill Vancouver-skólans eins og honum var fylgt í þessari rannsókn. Rannsóknarþáttur Hvað gert var í þessari rannsókn Þrep 1. Að velja samræðufélaga (úrtakið). Valdar voru 7 konur sem höfðu orðið fyrir sálrænu áfalli vegna kynferðislegs ofbeldis í bernsku. Tilgangsúrtak. Þrep 2. Að vera kyrr. Áður en byrjað var á samræðum var staldrað við til að átta sig á fyrirframgerðum hugmyndum um fyrirbærið og reynt að leggja þær til hliðar. Þrep 3. Að taka þátt í samræðum. Gagnasöfnun. Tvö viðtöl við hverja konu, samtals 14 viðtöl. Viðtölin voru í formi samræðna. Þrep 4. Að hefja gagnagreiningu. Skerpt vitund varðandi orð. Unnið var samhliða að gagnasöfnun og gagnagreiningu. Þrep 5. Að hefja greiningu á þemum. Textinn lesinn yfir nokkrum sinnum til að svara spurningunni: Hver er kjarninn í því sem konan er að segja? Þrep 6. Að átta sig á heildarmynd í reynslu hvers einstaklings. Mikilvægustu atriðunum raðað upp í eina heildarmynd og fundinn rauði þráðurinn í frásögn hverrar konu. Þrep 7. Að staðfesta heildarmynd reynslu hvers einstaklings með honum sjálfum. Hvert einstakt hugtakalíkan var kynnt fyrir hverri konu. Þrep 8. Að átta sig á heildarmyndinni – meginniðurstöður. Lokaúrvinnsla krafðist lýsingar og túlkunar rannsakenda og þurfti að vera að öllu leyti byggð á rannsóknargögnunum. Þrep 9. Að bera saman niðurstöðurnar við rannsóknar- gögnin eða rituðu samræðurnar til að sjá hvort þær séu í samræmi. Öll viðtölin voru lesin yfir aftur til að tryggja þetta. Þrep 10. Að velja rannsókninni heiti sem lýsir niðurstöðum hennar. Tíminn læknar ekki öll sár: Langvarandi afleiðingar kynferðislegs ofbeldis í bernsku fyrir heilsufar og líðan íslenskra kvenna. Þrep 11. Að sannreyna niðurstöður með meðrannsakendum. Niðurstöðurnar voru bornar undir nokkrar af konunum. Þrep 12. Að skrifa upp niðurstöður rannsóknarinnar. Það krafðist þess að rödd allra kvennanna fengi að heyrast. Vitnað var í það sem þær sögðu til að segja frá fyrirbærinu eins trúverðuglega og hægt er. Byggt á Sigríður Halldórsdóttir, 2003, bls. 251. Mynd 1. Vitrænt vinnuferli Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. 7. Að sannreyna 1. Að vera kyrr 2. Að ígrunda 3. Að koma auga 4. Að velja5. Að túlka 6. Að raða saman
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.