Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Blaðsíða 47

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Blaðsíða 47
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 2009 43 Ritrýnd fræðigrein andvarann og spurði sig „hvar varstu mamma?““ (klökknar) Allir hafa persónulega línu í kringum sig sem er okkar vörn gegn áreiti og við misnotkun skaðast þessi lína, eins og Jóna segir: „Þegar maður lendir í þessu sem lítið barn þá verður maður svo varnarlaus því það er búið að brjóta þessa persónulegu línu sem maður hafði ... og þá eiga aðilar auðveldara með að misnota sér mann.“ Konurnar töluðu flestar um að mæður þeirra hefðu sjálfar verið fórnarlömb ofbeldis á heimilinu. Í kringum kynferðislega ofbeldið upplifðu allar konurnar leynd, ógnun og niðurlægingu. Fjórum konum var nauðgað seinna og upplifðu þær þá misnotkunina aftur. Ein lýsti því svo: „Þegar ég lá þarna eftir þetta upplifði ég allt aftur sem ég hafði gengið í gegnum og dóu svona allar tilfinningar aftur. Ég var meira í atburðunum þegar ég var lítil heldur en nauðgunina sjálfa, ég upplifði bara allt aftur.“ Fjórar konur tala um það á svipaðan hátt hvernig þær komust í gegnum misnotkunina með því að fara út úr líkamanum. Heiða lýsti því svo: „Ég fór alltaf út úr líkamanum. Ég bara horfði á sjálfa mig utan frá og það var líkaminn sem þjáðist, svo kemur sálin aftur ... Fór út og horfði á líkamann þjást og ég nota stundum þessa aðferð enn þá.“ Slæm líðan sem barn og unglingur Mikil vanlíðan einkenndi líf kvennanna í bernsku og á unglingsárunum, þeim leið illa í skóla, lentu í einelti og voru í stöðugum ótta. Þær tala um að fólk ætti oftast að geta séð á hegðun barna ef eitthvað er óeðlilegt. Allar konurnar nema Tafla 3. Langvarandi afleiðingar kynferðislegs ofbeldis í bernsku fyrir heilsufar og líðan þeirra íslensku kvenna sem tóku þátt í rannsókninni. Upplifun af áfallinu Slæm líðan sem barn og unglingur Líkamleg vandamál á fullorðinsárum Geðræn vandamál á fullorðinsárum Erfiðleikar við tengslamyndun traust og snertingu Staðan í dag og horft til framtíðar Sjálfsásökun Sektarkennd Svefnleysi Andleg vanlíðan Hræðsla Erfiðleikar í skóla Móðurlífsvandamál Þunglyndi og kvíði Fæðingarþunglyndi Erfiðleikar við tengslamyndun við karlmenn Er það sem ég er í dag Sálarþjófnaður, sálardauði Sárs- auki, Örvænting, álag, kvöl Einelti Flókin líkamleg einkenni Sjálfseyðingar- hvöt og sjálf- skaðandi hegðun Sjálfsvígshugsanir Stöðugt vantraust gagnvart öðrum Að losna aldrei við skuggann Varnarleysi, varnargarður brotinn Margþætt líkamleg einkenni Vefjagigt Vöðvabólga Sterk höfnunar- tilfinning Erfiðleikar við snertingu Mikilvægi lífsviljans Leynd, ógnun og niðurlæging Verkir Verkir Hræðsla og ofsahræðsla Erfiðleikar við kynlíf Varanlegur skaði Innibyrgður tilfinningalegur sársauki Endurminningar, endurlit (‘flashback’) Heimilisofbeldi og kynferðisleg áreitni Svefnörðugleikar Endur- minningar Erfiðleikar við tengslamyndun við börnin Uppgjöf og vonleysi en þörf fyrir frið í sálina Að fara úr eigin líkama Sjálfskaðandi hegðun Sjálfsvígshugsanir Sjálfsvígstilraunir Átröskun og áfengisnotkun Flótti, fælni og einangrun Erfiðleikar við snertingu við börnin Mikil vinna eftir inn að hjartarótum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.