Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Blaðsíða 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Blaðsíða 25
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 2009 21 Yfirfærsla heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu frá heilsugæslunni til Reykjavíkurborgar á sér langan aðdraganda. Nú þegar 2002 skilaði samráðshópur um málefni aldraða skýrslu til heilbrigðisráðherra en lítið gerðist á yfirborðinu þangað til að undirrituð var viljayfirlýsing 8. október 2008. Skrifað var svo undir þjónustusamning um tilraunaverkefni sem átti að hefjast 1. janúar 2009. Ríkið greiðir alls rúmlega 2,8 milljarða króna fyrir þjónustu Reykjavíkurborgar á samningstímanum. Samkvæmt ákvæðum þjónustusamningsins sér Reykjavíkurborg um rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík allan sólarhringinn alla daga ársins. Þar fyrir utan tekur samningurinn til reksturs heimahjúkrunar allan sólarhringinn alla daga ársins í Seltjarnarnesbæ, reksturs kvöld-, nætur- og helgidagaþjónustu heimahjúkrunar í Mosfellsbæ og rekstur næturþjónustu heimahjúkrunar í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Reyndar hafa umræður átt sér stað í mörg ár og aðilar hafa unnið saman að því að samþætta þjónustu við skjólstæðingana þó að engar formlegar ákvarðanir hafi verið teknar. Þessi samþættingarvinna hófst í febrúar 2004. Fundað var vikulega um hvern einstakling en fyrst var kortlagt hverjir fengu þjónustu frá bæði heimahjúkrun og félagsþjónustunni. Áður hafði starf félagsþjónustunnar aðallega verið þrif en borgin jók kvöld- og helgarþjónustu og tók við einfaldri aðhlynningu. Einstaklingar, sem vilja félagsþjónustu, þurfa að greiða fyrir hana en ákveðið var að kvöld- og helgarþjónusta yrði gjaldfrjáls eins og heimahjúkrun. Reynt var einnig að samþætta stjórnun en Reykjavíkurborg var þá að „hverfavæða“ en heimahjúkrun var orðin miðlæg þannig að stjórnun var gjörólík í þessum stofnunum. Hagsmunasamtök eins og Félag eldri borgara hafa krafist þess að nærsamfélagið, það er Reykjavíkurborg, sjái um þjónustuna. Mikill pólitískur vilji var einnig um að sameina heimahjúkrun og félagsþjónustu en tekist var á um leiðir. Haustið 2007 hófust formlegar samræður. Uppi voru hugmyndir um að sameina frá 1. febrúar 2008 en tíð meirihlutaskipti í borginni settu strik í reikninginn. Þetta var lán í óláni því að nú gafst tími að vinna betur að sameiningunni. Óvissan um framhaldið leiddi til togstreitu og reyndi mikið á fólk allt árið 2008. Hjúkrunarfræðingar í heimahjúkruninni komu saman á fundi hjá FÍH í desember 2008 þar sem Guðlaugur Þór Þórðarson, þáverandi heilbrigðisráðherra, Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, og Stella K. Víðisdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs, útskýrðu gang mála. Skipst var á skoðunum en flestir voru þó sammála um að best væri að hafa þetta á einni hendi. Það var orðið þunglamalegt fyrirkomulag að þrír aðilar kæmu að heimahjúkrun, þ.e. heilsugæslan, heimaþjónustan og svæðisskrifstofur um málefni fatlaðra. Nú stendur þetta allt til bóta og áætlað er að málefni fatlaðra fari undir borgina 2012. CM Langur aðdragandi Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, fer yfir sjónarmið borgarinnar á fundi 4. desember 2008. Ingvarsdóttir félagslegri heimaþjónustu faglega stjórn. Við heimahjúkrun starfa 115 manns, 36 hjúkrunarfræðingar í 30 stöðugildum og 55 sjúkraliðar sem eru í lítið eitt færri stöðugildum. Iðjuþjálfarnir sem starfa hjá heimahjúkrun eru tveir og nýlega bættist læknir í hálfu starfi í hópinn, Helga Hansdóttir öldrunarlæknir. Þjónustusvæðinu er skipt upp í tólf teymi eða svæði og er umsjónar- hjúkrunarfræðingur yfir hverju þeirra sem aftur hefur í liði sínu starfsfólk sem sinnir gjarnan á bilinu 50 til 85 skjólstæðingum. að fá starfsfólk í sumarafleysingar, þó ég voni að úr rætist.“ Þúsundir skjólstæðinga Á bilinu 900 til 1.100 heimili njóta heima- hjúkrunar á hverjum tíma, eða um 2.200 ein staklingar á ársgrundvelli og yfir 3.700 heimili njóta félagslegrar heima þjónustu yfir heilt ár. Árlegar vitjanir hjúkrunar- fræðinga og sjúkraliða hafa verið rúmlega 156 þúsund. Um 87% beiðna um heimahjúkrun koma frá Landspítala „Já, okkur hefur í stórum dráttum gengið mjög vel að manna starfsemina. Í fyrra þegar atvinnuástand var með besta móti notuðu margir tækifærið til að róa á ný mið en okkur tókst þó blessunarlega að fá nýtt fólk í staðinn,“ segir Þórdís Magnúsdóttir. „Eftir hrunið síðasta haust hefur fólk, sem var á lausum kili, greinilega lagt mikið upp úr því að binda sig til lengri tíma ákveðnum vinnustöðum einfaldlega til að hafa fast land undir fótum. Því höfum við verið í ákveðnum vanda að undanförnu með
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.